Spegillinn - 15.12.1971, Qupperneq 4
Er gátan um uppruna
Islendinga leyst ?
Spegillinn hefur líklega leyst gátuna
miklu um uppruna þjóðflokksins.
Hann hefur kostað ungan og furðu-
legan vísindamann í þjóðháttafræðum
til náms undanfarna mánuði og okkur
til mikillar furðu hefur hann ekki
eytt öllum þeim gífurlegu íjármunum,
sem honum voru fengnir til rannsókn-
anna og námsins, í vín og gleðikonur,
heldur haldið sig að efninu. Reyndar
hefur maðurinn útlitið á móti sér,
þannig að honum hefur aldrei verið vel
til gleðikvenna.
Eins og við vitum hafa hinar norður-
landaþjóðirnar aldrei viljað við okkur
kannast, frekar en við værum lausa-
leiksþjóðflokkur, sem ætlaðist til
Birt án ábyrgóar
meðlagsgreiðslna, og hafa aðeins snúið
sér undan með fýlusvip, ef á það hefur
verið minnzt, að við værum þaðan
flúnir undan ofríki og yfirgangi.
Höfum vér því leitað uppruna vors til
gyðinga og skota, jafnvel hugleitt,
hvort ekki værum við eins konar
blóðblöndun þeirra þjóðflokka, ekki
eru helztu einkenni þeirra ólík því,
sem hér gengur og gerist.
Sama sagan, þeir hafa snúið sér undan
með sama fýlusvipinn og hinar þjóð-
irnar hér í næsta nágrenni.
Niðurstaða rannsóknanna er birt hér
með góðfúslegu leyfi höfundar, sem
hefur aftur á móti stolið samlíking-
unum frá erlendum heimildum:
íslendingar eru ættaðir frá Austur-
Frísnesku eyjunum undan Hollands-
ströndum. Sannanirnar eru eftir-
taldar lýsingar á daglegum háttum
þeirra og venjum, sem telja verður
mjög skyldar mörgum þeim þjóð-
lífsháttum, er einkenna þjóð vora og
ríkisstjórn.
Eftirfarandi dæmi eru tekin beint úr
Austur-Frísneskum heimildaritum:
Hvers vegna er drukknun algengasta
dánarorsök á Austur-Fríslandi ?
Klósettskálar eru ekki framleiddar
með handföngum.
4