Spegillinn - 15.12.1971, Page 5

Spegillinn - 15.12.1971, Page 5
Hvers vegna eru Austur-Frísverjar oftast klóraðir og rifnir í andlitinu á mánudagsmorgnum ? A sunnudag- um reyna þeir að borða með hníf og gaffli. Hvernig skrúfa Austur-Frísverjar rafmagnsperur í loftljós? Með einum stjórnanda og fjórum aðstoðarmönnum. Einn klifrar upp í snúruna og heldur perunni fastri, hinir fjórir ganga síðan í hringi og snúa fatningunni. Hvers vegna hafa Austur-Frísneskar stúlkur klúta um höfuðið, þegar þær mjalta? Svo þær þekkist frá belj- unum. FRÍSNESK AÐFEFjÐAFRÆÐÍ ÚR HEÍMÍLDAMYNDASAFNÍ FRÓ£)GRU5K5 BERGMANN5 Hvers vegna er flóð og íjara í Austur- Fríslandi? Þegar Austur-Frísverjar komu fyrst í fyrndinni til strandarinnar, varð sjórinn svo skelfingu lostinn, að hann hörfaði til baka. Síðan hefur hann komið aftur á sex tíma fresti og athugað, hvort þeir væru ekki farnir aftur. (Hér er um nákvæmlega sams konar fyrirbrigði að ræða og á íslandi og styður þetta kenningu mína, svo ekki verður með rökum hrakið). Hvers vegnar hjólar langafi alltaf hringinn í kring um kvöldverðar- borðið? Svo að fjölskyldan geti borðað við ljós. Hvers vegna eru heilabú Austur- Frísverja svo eftirsótt til Iíffæraflutn- inga? Þau hafa verið svo lítið notuð. Hvað tákna gylltu borðarnir á erm- um Austur-Frísneskra lögreglu- þjóna? 1 borði — Hann er læs þessi. 2 borðar — Hann kann að skrifa þessi. 3 borðar — Þessi þekkir mann, sem kann bæði að lesa og skrifa. (Hér er um augljóst samhengi, nema hvað þetta á betur við slökkviliðið hér á landi). Hvaða breyting verður á Austur- Frísverja, sem gleypt hefur flugu? Hann hefur meira vit í maganum, heldur en í höfðinu. Tilvitnunum lokið. Fróógrúskur Bergmann (sign.) 5

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.