Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 10

Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 10
Jæja, er nú röðin komin að mér? Ætlar nú svefnleysið að heltaka mig líka? Þetta var nú meiri törnin þarna hjá Varðbergi í gærkvöldi. Varla von, að nokkur lifandi maður geti sofið eftir annan eins andskotans fund. Og hefði ekki Sveinn Ben hjálpað mér að Iosna út úr þessu, er óvíst nema þessi fjandi stæði fram undir morgun. Skárra að liggja andvaka í sínu eigin rúmi en láta þessa Varðbergsandskota gera sig andvana. Eða kannske andlega vanað- an, ha, ha, þessi var góður. Nei, þessi var ekkert góður. Hvaða fiflalæti eru þetta ? Svona leikur mann svefnleysið. Ferlegur er Kristján gamli Albertsson. Líklega ljótari en Þórður bróðir hans og er þó langt til jafnað. Nei, svona má ráðherra ekki hugsa. Og karlinn fór að tala um Hitler sáluga og landamæra yfirlýsinguna. Það er tungunni tamast sem hjartanu er kærast, það sannast á kallinum. Beztur var þó Sveinn Ben, þegar hann fór að kenna mér mann- kynssögu og sagði, að ég væri bezti strákur inn við beinið, þótt ég hefði lent í þessari ógæfu. Alltaf er gaman að Sveini. Þarna gerði hann sér lítið fyrir og tók yfir stjórnina á fundinum og settist meira að segja í sætið hans Manga Þórðar og þeirra í stjórninni rétt á meðan þeir skruppu eftir brauð- sneið. Eða sjúss. Líklegra, fyrst það var Magnús. Já Sveinn á engan sinn líka. Fór svo að þusa um útþenslu- stefnu Rússa í 250 ár, svo bezt væri að fara að öllu með gát. Auðvitað er bezt að fara að öllu með gát, það er ég alltaf að reyna að segja. Ekki er það mér að kenna, þótt allir séu að snúa út úr fyrir mér. Góð var sagan, sem Gylfi sagði mér og var höfð eftir móður þeirra Benediktssona, en hún var spurð, hvern þeirra hún mæti mest. Bjarni er greindastur, Pétur skemmtilegastur og Sveinn minn er stærstur átti sú gamla að hafa sagt. Alltaf dettur mér þessi saga í hug, þegar ég sé Svein. Ég er nú helzt á því, að ég hafi klórað mig sæmilega frá þessum fundi, en mér var nú líka óneitanlega hjálp í nokkrum kverúlöntum, eins og dr. Gunnlaugi og Páli S. trimmurum. Ljótu vitleysingjarnir. Verri var fund- urinn á Suðurnesjum. Hann er ekki mennskur maður þessi helvítis Páll Axelsson að fara að leggja út af prédikara Salómons um hjarta hygg- ins mans og heimsks, og færa það upp á mig. Auðvitað er mitt hjarta vinstra megin eins og annarra, og hvern varð- ar um hjartalagið. Mér dettur nú í hug að þessi blessaður draumur, sem hefur mig lifandi ætlað að drepa upp á síðkastið, en mér þykir alltaf sem hann Batti rauði vitji mín í svefni og segi: „Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður; vinsæld er betri en silfur og gull“, og bætir svo við „það sannaðist á okkur báðum í viðskiptum okkar við Samvinnubankann." Þetta þrugl get ég ekki skilið, er líklega ein- hvers staðar úr Saltaranum, en eitthvað kann ég ekki við þetta. Það verð ég að játa, að ekki vissi ég, að Jónas karlinn frá Hriflu hefði sagt um Banda- ríkin, að þau væru þroskaðasta stór- veldi heims allt frá dögum þess fyrsta, þ.e. Rómaveldis. Ja mikill er andskot- inn. Ekki datt mér í hug, að þeir ættu eftir að draga Jónas gamla fram sér til sáluhjálpar, en allt er nú hey í harðindum. Hann var nú anzi að- gangsharður, þessi Páll. Kallaði okkur Magnúsana þrifót. Skárri er það nú dónaskapurinn. Og vildi svo ekki líkja mér við Karl 12. Hann á nú eftir að fylgjast með því úr eilífðinni blessaður, þegar ég verð búinn að hreinsa dulítið til hér í veröldinni, að þá verðum við Karl 12. ekki nefndir á nafn samtímis, mín vegna. Annars verð ég að játa það svona fyrir sjálfum mér, að ég er far- inn að hálfskammast mín fyrir þetta mál alltsaman. Og verst er, að ég get engum sagt, hvernig ég ætla að fara að því að losna úr þessari fjárans klípu. Einar Jarring. Nei, Einar Bernadotte. Eða Einar Brandt. Já, jafnvel Einar Schweitzer. Þessi nöfn færu mér betur í mannkynssögunni. Magnús hefur lof- að mér því. Og Batti Nightingale. Ekki má gleyma garminum honum Katli. Myndir af mér og Brandt, þegar Ber- línarmúrinn verður rifinn, mér og 10

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.