Spegillinn - 01.07.1983, Side 3
LEIÐARI
Spegillinn
M. SdtTMska [apödnnndr
Aðdáandinn
43. árg. 3. tbl. Útgefandi: Félag áhuga-
manna um alvarleg málefni. Málgagn
félagsins, ríkisstjórnarinnar og
heilbrigðrar skynsemi. Piggur gjarnan
ríkisstyrk og tekur við áheitum og gjöf-
um. Hækkað verð þessa tbl. í kr. 80
vegna geymslugjalds á lögreglustöðum
fyrir 2. tbl. Aðsetur: Grjótagata 9, 101
Rvík. Ritstjórnarsími 14 2 15; pantana-
sími fyrir söluturna 30180 og 1 42 15.
Pósthólf 1169. Starfsmenn:Hjörleifur
Sveinbjörnsson, Hjörtur Cýrusson,
Úlfar Þormóðsson (ÁBYRGÐAR-
MAÐUR).
Teiknarar: Anna Gunnlaugsd., Árni
Ingólfsson, Birgir Björnsson, Brian
Pilkinton, Friðrik Erlingsson, Ingólfur
Margeirsson, Pétur Halldórsson og
Ólafur Pétursson. Haus: Auglst. Gísli
B. Björnsson Útlit og hönnun: Björn Br.
Björnsson, Björgvin Ólafsson. Ljós-
myndir og texti: Bestu synir og dætur
þessarar þjóðar ofl. Litgreining:
Myndamót hf. Setning og umbrot:
Prent. Filmugerð: Prentþjónustan.
Prentun og bókband: Prentsmiðjan
Oddi hf. Áskrifandi: Höskuldur Skarp-
héðinsson. Lesendur 2. tbi.: Löreglan.
Aðdáandi: Þórður Björnsson,
saksóknari.
Forsíðumynd: Brúðuna gerði Ólafur
Pétursson, klæði Anna G. Líndal,
ljósmvndina tók Guðmundur Ingólfs-
son, Imynd.
Varúð: Það sem birtist í blaði þessu eru
útúrsnúningar, hártoganir og rang-
færslur.
Blessunarlega tókst að mynda ríkisstjórn landsmönnum öll-
um til heilla, þó svo ekki hafi verið fært að fara í einu og öllu að
tillögum Spegilsins frá síðasta tölublaði. Enda skiljanlegt þar
sem það var gert upptækt og enginn fengið að lesa það nema
Þórður saksóknari, Sigurjón lögreglustjóri, William lögreglu-
foringi og Hallvarður spæjarastjóri. Þó mun að því stefnt að
farið verði að þeirri ábendingu Spegilsins að kjósa sem allra
fyrst aftur og ekki síðar en um áramót þegar allt verður orðið
kolófært
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hefur þegar sýnt það
að hún verður til góðra hluta vís. Hitt er annað að fyrstu
aðgerðir hennar bera þess vitni að enn hefur stjórnin ekki
öðlast fullt sjálfstraust og ráðstafanir hennar því nokkuð
feimnislegar; komu of seint og voru of smátækar.
Má í þessu tilefni nefna að gengisfellingin hefði þurft að
koma fyrr og vera amk. 55%. Einnig var ástæðulaust að greiða
þessi 8% af 23% verðbótum, því sést hefur til fjölda fólks með
hálffulla vasa fjár. Þá hefðu landbúnaðarvörur átt að hækka
amk. 120% og afnema hefði átt allar niðurgreiðslur, því það er
ekki nokkru lagi líkt hvað sumt fólk kaupir óhóflega bæði af
mjólk, smjöri og kjöti. Jafnvel osti. Svo ekki sé nú talað um
Húsavíkurjógúrtina. Þá var bensínhækkunin langt fyrir neðan
það, sem olíufélögin geta talið eðlilegt og hefði þurft að vera
þreföld á við það sem hún loks varð eftir dúk og disk. Loks var
hækkun á opinberri þjónustu smánarlega lítil.
En þetta eru allt smáatriði, sem kippa má í liðinn fyrr en
varir.
Þau eru hins vegar mörg teiknin sem benda til þess að hér sé
loks komin sterk stjórn og gæfurík. Framganga landbúnaðar-
ráðherra í jógúrtmálinu og tilþrif fjármálaráðherra við sölu
ríkisfyrirtækja og stofnana er vaskleiki og tvímælalaust fram-
faraspor.
Hæst ber þó - og lofar mestu - afnám ríkisstjórnarinnar á
samningsrétti verkalýðsfélaganna og bann við launahækkun-
um. Reynsla áranna sannar að verkalýðshreyfingin í höndum
kommúnista er gjörsamlega óhæf til að gera kjarasamninga.
Ár eftir ár hefur verið samið um mun hærri laun en hægt hefur
verið að greiða. Þetta hefur leitt til gjaldþrots hjá fjölda fyrir-
tækja, stefnt verðbólgunni í stórfellda hættu og hækkað vexti
upp úr öllu kafi.
Haldi stjórnin þeim sterku tökum sem hún þegar hefur náð
og herði þau sem slakari eru mun henni vel farnast. Þá má
öruggt heita að takast megi að halda kaupæði almennings í
skefjum, stemma stigu við skefjalausu flandri fólks út um allan
heim og halda verðbólgunni í 85-100%, misserum saman.
saman.
Og þá er vel.
SPEGILLINN 3