Spegillinn - 01.07.1983, Síða 11
rikissaksóknara-t
Ættfræðiþættir mínir vekja stöðugt
meiri athygli enda er ættfræðin móðir
allra fræðigreina og stjórnmála. Síðasti
þáttur minn í Speglinum vakti svo mikla
athygli að ríkissaksóknari gerði hann
uptækan - en að vísu að því er ég ætla
fyrir misskilning. Hinn ættgöfugi og
ágæti maður, Þórður Björnsson, sem ég
ætla að hafi aldrei séð umræddan þátt
heldur orðið bitbein óviturra, ættlausra
manna, er sagður þeirrar skoðunar að
ég hafi farið með guðlast og klám. Ég
skil nú bara ekkert í þeirri ákæru og ekki
heldur vinur minn, ættfræðingurinn
Dofri Skúlesen. Ég hef alltaf viljað hafa
það sem sannara reyndist og aldrei vikið
mér undan því að leiðrétta smávægi-
legar villur sem mér hafa orðið á. Ég hef
t.d. - með ásetningi - vikið mér undan
að rifja upp deilurnar um vafasamt
faðerni Jesúar Krists, forföður okkar
allra. Og þó að mönnum og konum
verði á að geta börn á laun get ég ekki
séð að það flokkist undir sorafengið
efni. Slíkt er einfaldlega staðreynd sem
vísindin geta ekki vikið sér undan að
taka afstöðu til. Mér varð að vísu smá-
vegis á í síðustu grein minni - um það
getur Dofri Skúlesen vitnað - en nú verð
ég að bíða þangað til almenningi gefst
færi á að sjá villurnar. Það er hið lög-
fræðilega lögmál um orsök og afl-
eiðingu. (sbr. dr. Björn Þórðarson:
Móðir Jóru biskupsdóttur, Tímarit lög-
fræðinga I, 193).
Mér er fullkunnugt um að Þórður
Björnsson er réttsýnn, grandvar og
guðhræddur maður eins og öll hans ætt
telur hún flesta lögfræðinga hérlendis.
Mun ég sýna fram á það í þessari grein
minni og sanna þa með að Þórður hafi
verið erlendis þegar Spegilmálið kom
upp og ákvörðun um ákæru hafi verið
tekin gjörsamlega í blóra við hann. Von-
ast ég til að hann komi sent skjótast
heim og leiðrétti gjörðir ættlausra undir-
manna sinna.
Þórður Björnsson fékk ríka réttlæti-
skennd í vöggugjöf enda hefur hin gagn-
merka ætt hans ekki aðeins alið af sér
alla helstu réttvísinnar menn á íslandi
heldur hafa stærstu og bestu stjórnmála-
flokkar landsins, Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsóknarflokkurinn, sótt þangað
þann forystukjarna sem best hefur dug-
að um áratugaskeið. Svo er jafnvel um
fleiri flokka.
Þórður Björnsson fæddist í þennan
heim 1916 og lauk cand. juris-prófi strax
er hann hafði aldur til. Ekki mun hinn
ungi sveinn hafa verið hátt vaxinn úr
grasi er hannákvað að helga allt sitt líf
glæpamálum, svo og félagsmálum í
Framsóknarflokknum. Að loknu lög-
fræðiprófi byrjaði hann sem auðmjúk
undirtylla hjá sakadómaranum í
Reykjavík en vann fljótt slíka hylli
frændgarðs síns að hann erfði ríkissaks-
óknaraembættið af frænda sínum Vald-
imar Stefánssyni, í fyllingu tímans. Þeir
eru báðir af Briemsætt. Þórður var for-
maður Framsóknarfélags Reykjavíkur,
í miðstjórn Framsóknarflokksins og
borgarfulltrúi hans í Reykjavík um 12
ára skeið. Eftir það lágu vegir réttvísinn-
ar og Framsóknarflokksins ekki sam-
hliða. Meðal helstu fræðiritgerða hans
er: Tvö hundruð og áttatíu ára stríð Alþ-
ingisbóka, Úlflj. XVI, 4. tbl. 1963.
Faðir Þórðar var dr. Björn Þórðarson
hæstaréttarlögmaður en hann hlaut ein-
mitt doktorsgráðu fyrir ritgerð sína
Refsivist á íslandi 1761-1925. Hann var
einnig guðhræddur maður og réttlátur,
svo mjög að þegar allt var komið í óefni í
stjórnmálum íslands árið 1942 fól forseti
íslands honum að vera forsætisráðherra
í einu utanþingsstjórninni sem setið hef-
ur á íslandi. Það er sú stjórn sem ýmist
er kennd við kóka kóla (eftir Birni Ól-
afssyni fjármálaráðherra og forstjóra
Kóka kóla) eða nefnd frímúrarastjórnin
(eftir utanríkisráðherranum Vilhjálmi
Þór, einum löghlýðnasta borgara ís-
lands fyrr og síðar)?.
Afi Þórðar var Þórður Runólfsson
hreppstjóri á Móum á Kjalarnesi og lan-
gafi hans Runólfur Þórðarson hrepp-
stjóri í Saurbæ á Kjalarnesi. Eins og sjá
má af þessu er réttvísin gróin og nánast
samvaxin föðurlegg ríkissaksóknarans.
Amma Þórðar Björnssonar í föðurætt
var engin önnur en Ástríður Jochums-
dóttir frá Skógum í Þorskafirði, systir
þjóðskáldsins Matthíasar. Þess skal get-
ið hér að Matthías Jochumson missti -
fyrir ráðabrugg misviturra manna -
hempuna vegna ásökunar um trúvillu.
Frá honum eru komnir gagnmerkir lög-
fræðingar svo sem Ragnar Arnalds fv.
fjármálaráðherra og upphafsmaður
styttingaleiðarinnar í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Hann er því frændi Þórðar.
Móðir Þórðar Björnssonar var Ingi-
björg Briem, dóttir Ólafs Briem sem var
formaður SÍS í 5 ár og alþingismaður
Skagfirðinga í 23 ár. Faðir Ölafs og lan-
gafi Þórðar Björnssonar var Eggert Bri-
em sýslumaður Skagfirðinga. Eggert
Briem átti 19 réttfeðruð börn og frá
honum er kominn hinn stóri og
guðhræddi skari lögfræðinga sent áður
gat um. Hér verður aðeins getið nokk-
urra þeirra, svo og nokkurra stjórn-
málamanna í ættinni. Þeir eru allir náfr-
ændur eða venslamenn Þórðar.
Elsti afabróðir Þórðar var Eiríkur
Briem prófessor og alþingismaður. Son-
arbörn hans voru m.a. Gyða Briem,
kona Héðins Valdimarssonar alþingis-
manns, Guðrún Briem, kona Pcturs
Benediktssonar lögfræðings, alþingis-
manns og bankastjóra (hann og Ragn-
hildur Helgadóttir eru systrabörn) og
Pétur J. Thorsteinsson lögfræðingur og
ambassador. Pétur á og son sem er lög-
fræðingur og heitir Pétur Thorsteinsson.
annar afabróðir Þórðar var Gunn-
laugur Briem alþingismaður í Hafnar-
firði. Sonarsonurhans erValgarð Briem
lögfræðingur en lians sonur aftur
Garðar Briem lögfræðingur. Af Gunn-
laugi er líka kominn Ólafur Egilsson lög-
fræðingur og sendiherra.
Afasystir Þórðar hét Kristín Briem.
Börn hennar voru m.a. Eggert Claessen
stórlögfræðingur og bankastjóri, Ingi-
björg, kona Jóns Þorlákssonar forsætis-
ráðherra og María Kristín, móðir lög-
fræðinganna Gunnars Thoroddsens
forsætisráðherra og Jónasar Thoro-
ddsens bæjarfógeta. Tengdasonur Egg-
erts Claessens er Guðmundur Bene-
diktsson lögfræðingur og ráðuneytis-
stjóri (hann er líka frændi Ragnhildar
Helgadóttur). Barnabörn Maríu Kri-
stínar eru m.a. lögfræðingarnir Jón G.
Tómasson borgarlögmaður, Magnús
Thoroddsen hæstaréttardómari, Ásgeir
Thoroddsen lögfræðingur og Sigurður
Thoroddsen lögfræðingur.
Þriðji afabróðir Þórðar, sem hér verð-
ur nefndur, var Páll Briem amtmaður og
alþingismaður. Hann var mjög réttsýnn
maður og gat sér gott orð fyrir að fang-
elsa bændur í stórum stíl í Rangárvalla-
sýslu er hann var sýslumaður þar (sjá
Tíntann nýlega). Dóttursynir hans eru
Sigurður Líndal lagaprófessor og Páll
Líndal fv. borgarlögmaður í Reykjavík,
báðir mjög sleipir lögfræðingar. Sonar-
sonur Páls er Gunnlaugur Brieni yfir-
sakadómari í Reykjavík. Aðrir lög-
fræðingar sem af Páli amtmanni eru
komnir eru Kristín Briem, Þórhildur
Líndal og Björn Líndal (upprennandi
hjá Framsókn).
Fjórði afabróðir Þórðar, sem hér
verður nefndur, er Sigurður Briem sýsl-
umaður og síðar póstmálastjóri. Teng-
dasonur hans var Jón Kjartansson lög-
fræðingur og alþingismaður en sonur
hans er Sigurður Briem Jónsson lög-
fræðingur og sýslufulltrúi.
Fimmti afabróðirinn var Eggert Bri-
em hæstaréttardómari. Sonur hans er
Gunnlaugur Briem lögfræðingur og
hæstaréttardómari.
Hér hafa aðeins verið taldir upp nok-
krir tugir af hinum öfluga lögfræðingafr-
ændgarði Þórðar Björnssonar ríkissaks-
óknara en af því sést að annar ein maður
fer ekki með neitt fleipur.
Þá skal þess að lokum getið að bróðir
Þórðar Björnssonar var Þorsteinn Bri-
em prestur, alþingismaður og ráðherra
og um skeið bæði formaður Framsókn-
arflokksins og síðar Bændaflokksins.
Barnabarn Þorsteins er Valgerður
Bergsdóttir en hún er einmitt gift Arn-
mundi Backman lögfræðingi Spegilsins.
Sést af þessu hversu mikil firra það er að
Þórður hafi kært. Þetta er lokasönnunin
fyrir fjarvist hans í málinu. Ættlausir
undirmenn hans sem ætla að hrifsa til sín
ríkissaksóknaraembættið að honum
látnum, geta ekki unnt réttbornum erf-
ingja hans, Arnmundi Backman, entb-
ættið og ætluðu að koma höggi á hann á
þennan lúalega hátt. Já, var það ekki?
SPEGILLINN 11