Spegillinn - 01.07.1983, Síða 27
FRETTIR
Leiðrétting
Þaðerekki rétt, semsegirí
síðasta fréttadálki Spegilsins,
2.tbl., maí 1983, að éghafi
dvalið langtímum saman í
afmælisveislu hjá Stefáni
Jónssyni. Þegarégkomí
veisluna voru drykkjarföng á
þrotum. Eg stoppaði því
ákaflega stutt.
Steingrímur Hermannsson,
forsœtisráðherra.
Geysir
seldurúrlandi
Hinn heimsfrægi goshver,
GeysiríHaukadal, hefur
verið seldur úr landi.
Menntamálaráðherra, sem
hafði yfir hvernum að segja,
sagði á blaðamannafundi sl.
mánudag, að þjóðin hefði
ekki lengur efni á að eiga
Geysi; ótrúlegt magn af
innfluttri grænsápu færi í að
mana hann til að gjósa hverju
sinni, auk þess sem
kísilmengað vatnið gjöreyddi
öllum gróðri á hverasvæðinu.
Það var verslunarfulltrúi
sovéska sendiráðsins sem
keypti hverinn. Verður hann
settur upp á Rauða torginu í
Moskvu. Hugsa Russarnirsér
gott til eyðingarmáttar
kísilvatnsins, aðsögn
menntamálaráðherra.
Stefnum
á toppinn
„Það er algjörlega
óviðunandi“,segirí
trúnaðarbréfi viðskiptaráðherra,
Matthíasar Á. Mathiesen til
Spegilsins, „að við skulum aðeins
veraí8. sætihvað
verðbólguhraða áhrærir meðal
þjóðanna, og það á eftir
vanþróuðum ríkjum á borð við
Bólivíu, Perú, Brasilíu og Zaire.
Á þessu sviði höfum við
íslendingar möguleika á að skara
langt fram úr öðrum og ná
yfirburðaforystu. Að því mun
ríkisstjórnin vinna. Við stefnum
átoppinn.
Þessu vildi ég fá að koma á
framfæri í stjórnarmálgagninu,“
skrifar viðskiptaráðherra að
lokum.
Geir afþakkar
GeirHallgrímsson,
utanríkisráðherra, hefur ritað
Speglinum bréf, þar sem hann
afþakkar gott boð um að
gerast dreifingarstjóri
Spegilsins úti á landi. Segir í
bréfi hans, að hann hafi verið
kvaddur til annarra starfa.
Kvaðst Geir þó vilja leggja
sitt af mörkum til að
Spegillinn mætti verða það
menningarrit, sem stefnt hafi
verið að og fyrir vikið sendi
hann eitt ljóð til birtingar.
Spegillinn þakkarGeir
hlýtt viðmót, svo og hið
stórkostlega ljóð hans, sem
birt er annars staðar í blaðinu.
Mun Spegillinn halda starfi
lausu handa Geir fram undir
veturnætur, vegna ótryggs
ástandsíþjóðmálum.
Gleymdi engu
„Þessir pólsku dallar? Nei,
ég var nú svo sem ekkert
búinn að gleyma þeim,“ sagði
Steingleymur Hermannsson,
forsætisráðherra, aðspurður
um skipakaupin frá Póllandi.
„Og úr því verið er að atast í
þessu get ég svo sem skýrt frá
því, að það voru ekki barasta
þessir tveir eða þrír togarar,
sem um er að ræða. Ég inan
ekki betur en ég hefði samið
|um það við Gómúlka - eða
hvað hann nú hét - að Walesa
og strákarnir í
Lenínskipasmíðastöðinni
smíðuðu 33 systurtogara.
Þetta var reyndar fyrsta
raðsmíðaverkefnið af þremur
semég samdi um.
„Ég er að vísu ekki
sjávarútvegsráðherra lengur,
sem betur fer, en ég er viss um
að hann Halldór veit um
einhverj a góða og gegna
framsóknarmenn sem langar
til að spreyta sig á útgerð.
Byggðastefnan er ekki dottin
uppfyrir þótt komin sé ný og
betristjórnílandið. Ognógur
er fiskurinn í sjónum," mælti
Steingleymur að lokum.
Fögnuður
og gleði
Mikill fögnuður er ríkjandi í
landinu vegna efnahagsaðgerða
ríkisstj órnarinnar. Meðfylgj andi
mynd tók Colm Henry, einn af
ljósmyndurum Spegilsins, af
einum af starfsmönnum
Alþýðusambandsins þegar hann
frétti um afnám samningsréttar
og bann við launahækkunum.
Hungurverkföll ?
Það gengur fjöllunum hærra að
ASÍ og BSRB muni hvetja
félagsmenn sína til þess að fara í
hungurverkföll frá og með næstu
mánaðamótum til að drýgja
ráðstöfunartekjur heimilanna.
Bæði Ásmundur Stefánsson
forseti ASÍ og Kristján
Thorlaciusform. BSRB verjast
allra frétta. Þó hrökk út úr
Ásmundi að bráðabirgðalög
ríkisstjórnarinnar um bann við
verkföllum næðu ekki yfir
hungurverkföll og því yrði slík
aðgerð fullkomlega lögleg- ef af
yrði.
Prestarfagna
Speglinum
í ályktun prestastefnu segir svo
áeinum stað:
„Prestastefna íslands fagnar
auknum skilningi á gildi
siðbótarinnar.“
Spegillinn þakkar
prestastefnunni þann vináttu- og
hlýhug, sem felst í þessum
orðum, og mun ótrauður boða
kristna siðu sem hingað til.
Ætlaðiað
leita hælis
Einnafforingjum
neðan jarðarhreyfingarinnar A1
Fatha, Jassir Allha Kamel, kom
til landsins á dögunum og baðst
hælis sem pólitískur flóttamaður.
Útlendingaeftirlitið hefur hafnað
beiðni hans þar sem hann hafði
hvorki atvinnuleysi né íslenskt
vegabréf.
Myndina tók B j arki Elíasson,
yfirlögregluþjónn, þegar Jassir
Allha Kamel var í yfirheyrslu hjá
útlendingaeftirlitinu.
SPEGILLINN 27