Spegillinn - 01.07.1983, Page 36

Spegillinn - 01.07.1983, Page 36
a FRETTIR MikkJagger á íslandi Súperstjarnan úr Rolling Stones, Mikk Jagger kom til íslands í gærkvöldi. Hélt hann tónleika í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli á meðan fólk sat af sér seinkun Flugleiðavélarinnar sem var á leið vestur til New York. Myndina tók fréttaritari Spegilsinsá Keflavíkurflugvelli, Þorgeir Þorgeirsson, lögreglustjóri, þegar Mikk var að taka mígrafóninn úr sambandi að loknum tónleikum. Búsáhöld lækka í verði Það er skammt stórra högga á milli hj á fj ármálaráðherra og kemur engum á óvart. Nú síðast hefur hann ákveðið að stórlækka tolla á búsáhöldum. Er lækkunin mjög yfirgripsmikil og meðal þess varnings sem hún tekur til má nefna korktappa; vínglös, ámur, tunnur og hverskonar keröld önnur; tappatogara; slöngur; ger og eimingartæki. Ýmis félagasamtök hafa tjáð sig um málið, enda eiga menn öðru að venjast en tollalækkunum af innflutningsvörum. M.a. hafa Samtök áhugamanna um áfengisneyslu, SÁÁ, fagnað ákvörðun fjármálaráðherra, og telja að nú hafi loks skapast hér aðstaða til að búsa svo einhver veigursé í. Þetta varbara djókur Fræðimenn og pólitíkusar deila nú hart vegna loforða Vigdísar Finnbogadóttur, forseta, um að stofna verðlaunasjóð sem úr yrði hlutað árlega skattlausri og verðtryggðri sæmdarfjárhæð til framúrskarandi rithöfunda. Þykir fræðimönnum sem forsetinn hafi með þessu tekið sér vald úr annarra höndum. „Mér finnst að mennirnir ættu nú ekki að vera að æsa sig yfir þessu,“ sagði Vigdís í viðtali við Spegilinn. „Þetta var bara djókur, og einkar vel við eigandi þarna fyrir vestan í mannfæðinni og tíðindaleysinu undir gafli á fæðingarstað fyrirrennara míns, JónsSigurðssonarforseta. Enda Ljósmæðraskólanum. Til umræðu hefur verið að gefaöllum konum jafnt giftum ogógiftum, kost á verðlaunum, þar eð allt að helmingur barna fæðist föðurlaus. Hefur það mætt ákveðinni andstöðu innan ríkisstjórnarinnar, því talið er að slíkt mundi auka lausung um allan helming. Tilþess að eigakostá verðlaunum þurfa konur að færa óyggjandi sönnun fyrir því að þær hafi átt alla möguleika á að eignast barn, en hætt við. Ákveðið hefur verið að formaður matsnefndar verði Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður. Verðlaunin hafa verið ákveðin; Transitorútvarp frá Radíó-búðinni. (Úr fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.) Svavarfékk æðiskast Til tíðinda dró í samkvæmi hjábandaríska sendiherranum í Menningarstofnuninni við Hagamel á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4ða júlí sl. Með því að hóta starfsfólki í eldhúsi limlestingum með grúsískri sveðju komst Svavar Gestsson í samkvæmið. Naut hann um stund rausnarlegra veitinga sendiherrans. Skyndilega rann æði á Svavar. Rauk hann upp í ræðupúlt, sem þarna var, og hóf br j álæðislegan heiftaráróðurfyrir Alþýðubandalaginu, Sovétríkjunum og Afganistan; flutti blautlig kvæði og nýddi skóinn af Bandaríkjaforseta. Öryggisverðir komu formanninum í spennitreyju og var hann fluttur í sjúkrabíl upp að sovéska sendiráðinu við Garðastræti og tók fyrsti sendiráðsritari Rússanna við honum nteð virktum. Málið hefur verið sett í geðrannsókn. sér það hver í hendi sér, eins og kallinnsagði, aðá bókmenntasviðinu er ekkert til að verðlauna og ekkert í augsýn af því tagi. Því ættu menn að leggja niðurþessardeilurog finnaséraðrarog þýðingarmeiri.“ „Greipviðkverk“ Mynd þessa tók Guðmundur Hermannsson, lögregluforingi þegar William Möller, lögregluforingi, var að yfirheyra ritstjóra Spegilsins. Var beitt nýrri aðferð við yfirheyrslurnar og gafst hún með fádæmum vel. Hafa lögregluyfirvöld sótt um einkaréttáþessari yfirheyrsluaðferð og hyggjast seljatilannarra menningarlanda. Hefur aðferðin hlotið nafnið „Greip við kverk“ og verið er að vinna að þýðingu heitisins yfir áönnur tungumál. Barnleysis- verðlaun Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita hjónum verðlaun, eignist þau ekki barn á næsta ári. Er þettagert til þess að dragaúrgreiðslum T ryggingarstofnunar vegna fæðingarorlofs og mæðralauna, til að spara í rekstri fæðingarheimila, og til að fækka nemendum og kennurum í 36 SPEGILLINN

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.