Spegillinn - 01.07.1983, Blaðsíða 37
Viðtalið:
Eitt
sinn
ísland
ávallt
Island
Rœtt við
Weismúller John,
ferðalang.
„Eftir aö maður hefur á annað
borð komist til þessa lands kemur
maður aftur og aftur“, sagði
Weismiiller John.
„Hér í auðnum norðursins getur
maður vaðið út um allar grundir
víðar án þess að vera sífellt að
rekast á fólk. Það er stórkostlegt
kikk sem fá má út úr því að spæna
upp hálendinu á for víl dræv
jeppa og þá ekki síst þar sem
einhverja gróðurnál er að finna;
snúningshraði hjólanna er alveg
með ólíkindum á þannig blettum.
Og kvöldin, maður. Skafheiður
himinn og hvergi ber skugga á við
fjallavötnin. Þú liggur bara á
bakkanum og teygir þig eftir
álftarunga eða silungi eftir því
hvað þú vilt fá í matinn; kippir úr
kvikindinu lífinu og hendir ofan í
hver hinum megin við þig. Svo er
soddan djöfulsins munur að þurfa
aldrei að ganga frá eftir sig;
næstum hvergi þessir leiðinlegu
eftirlitsmenn sem ekki verður
þverfótað fyrir í öðrum löndum.
Nei. Það er eins og ég hef sagt
tvisvar.þrisvar eðajafnvel
fjórum sinnum áður; eitt sinn
fsland, ávallt ísland."
Hitt viðtalið:
Trúum
á
hið
góða
*
i
fólki
Rœtt við
Th. Thorgrimsson,
eggjavísi
„Eggjun Co. Ltd. er alþjóðlegt
fyrirtæki og var stofnsett fyrir sjö
árum og er, eins og nafnið bendir
til, ætlað að efla samskipti þjóða
á milli, vináttu og bræðraþel“,
sagði Th. Thorgrimsson,
framkvæmdastjóri er við hittum
hann að máli í varðstöðu við
fálkahreiður við
Rauðasandsfjörur.
„í þessum bransa gildir það að ná
og skapa samhygð, samstöðu og
trú á hið góða í manninum“,
sagði Th. Thorgrimsson
ennfremur. „Ætli menn sér að ná
slíkum markmiðum gilda ekki
músarholusjónarmiðin. Þá þarf
að hugsa stórt, hátt og vítt. Og
breitt. Trúir þessu verkefni okkar
höfum við skráð 22 fálkahreiður
og staðsett kyrfilega; 18
arnarhreiður, 3012
mýrarsnípuhreiður, 18324
lóðuhreiður; en lóuna er mjög
þægiiegt að góma meðan hún
liggur á og eins og þið vitið
kannski ekki þá er hún
sannkallaður herramannsmatur.
Loks eigum við skrá með
teikningum yfir þau 43
blesandarhreiður sem hér eru í
landinu.
Svo heimta ég að fá að segja að
þetta að lokum: Úrþvíhægterað
nota flugvarginn og afurðir hans
til þess að byggj a brýr yfir höfin á
að gera það alveg hiklaust. Auk
þess sem það eykur
gjaldeyriseign einstaklingsins.
Já.“
SPEGILLINN 37