Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 17
STUDENTABLAÐ
9
Sigurður Bjarnason frá Vigur,
fráfarandi formaður Stúdentaráðs.
Þetta vakti þegar töluverða athygli í hópi
stúdenta, og nokkrum dögum seinna hélt fé-
lag lýðræðissinnaðra stúdenta, „Vaka“, fund
um málið. Skömmu síðar hafði félag lögfræði-
nema, „Orator“, fund um sama efni. Enn-
fremur tók Félag læknanema málið til með-
ferðar og loks var það tekið fyrir á almenn-
um fundi háskólastúdenta.
í „Vöku“, „Orator“ og á almenna fundin-
um var meirihlutinn andvígur lokun, en fé-
lag læknanna var heldur hlynnt takmörkun,
þótt ágreiningur væri um hvaða aðferð skyldi
beitt.
Aðalrökin, sem fram hafa komið af hálfu
„lokunarmanna", eru þau, að fjölgun lækna-
og lögfræðinga, einkum þeirra fyrrnefndu,
sé þegar gengin úr hófi fram og fyrirsjáan-
legur voði sé á ferðum, ef allt verður látið
sitja við sama.
Um þetta er það að segja, að enda þótt
mikið sé vafalaust rétt í því, þá hefir nár
kvæmlega því sama verið haldiö fram annað
veifið síðastliðin 20 ár og síðast 1934, að ég
hygg, en sætti þá almennri andstöðu. Það
má að vísu benda á, að fjöldi stúdenta ,í
lækna- og lagadeild hefir farið mjög vaxandi
hin síðustu ár.
Einkum innritaðist mikill fjöldi stúdenta
í þessar deildir s. 1. haust, en orsakir þess má
rekja til stríðsins og alveg óvíst hvort, í mörg-
um tilfellum, er um annaö en bráöabirgða-
ráðstafanir þeirra, sem ekki sáu sér fært að
sigla, að ræða.
Nokkuð er það, að eftir langa og djúpa þögn
um þetta mál, tekur háttvirt Háskólaráö
snöggan kipp og boöar tvennt í senn, serh ó-
neitanlega fer þó dálítið illa saman.
Á öðru leitinu er sagt, að í ráði sé aö stofna
nýjar deildir við Háskólann og taka hiria
nýju byggingu til afnota þegar næsta haust,
en á hinu er ráðgert að loka tveim deildum
að nokkru eða öllu leyti.
Með öðrum orðum á að grípa til þeirra
hæpnu ráðstafana, að skella í lás við nefið
á þeim, sem ekki eru komnir inn fyrir, en
vildu gjarnan, einmitt þegar skilyrði virðast
vera að skapast til þess, að aðsókn að lækna-
og lagadeild takmarkist af sjálfu sér, vegna
nýrra námsskilyrða og aukinna og stórum
betri húskynna, samfara því að deildir þessar
eru þegar svo skipaðar, að fyllilega má gera
ráð fyrir, að menn veigri sér við því af sjálfs-
dáðum að setjast í þær.
Það er eftirtektarvert í þessu sambandi,
að Danir hafa ekki treyst sér til að loka
læknadeildinni við Hafnarháskóla, og mun
þó ástandið hafa verið alvarlegt þar. Hins-
vegar hafa danskir læknar hafið kröftugan
áróður gegn því að læknanemum fjölgaði,
samfara því að upplýsa verðandi stúdenta
ítarlega um ástandið. Þetta hefir borið þann
árangur, að tala innritaðra stúdenta í lækna-
deild hefir farið stórlega lækkandi.
Þessari aðferö hefir ekkert verið sinnt hér.
Mér vitanlega hefir því hvergi verið á: lofti