Stúdentablaðið - 01.12.1939, Síða 20
12
STÚDENTABLAÐ
Stúdentar útskrifaðir úr Reykjavíkur-Menntaskóla vorið 1939.
Myndin tekín í trjágarði Hressingarskálans.
að flest þeirra þjást af uppdráttarsýki. Annað
veifið kemur í þau fjörkippur, fundargerðar-
bækur eru leitaðar uppi með mestu fyrirhöfn,
rykið dustað af þeim og starfað af krafti um
hríð. Svo vantar „vitamin“ og allt fellur í
sama farið.
Orsakir þær, sem verka lamandi á félagslíf
stúdenta, eru margar.
Fyrst má nefna hinn geysilega sæg félaga,
á öllum mögulegum sviðum, sem eru starf-
andi í ekki stærri bæ en Reykjavík.
Ef stúdent hefir áhuga í einhverja sérstaka
átt, er ofur eðlilegt að hann gangi í félag
utan Háskólans, sem veitir honum margfalt
betri skilyrði til þess að rækja hugðarefnið.
í öðru lagi eru menn oft komnir í félög
áður en þeir koma í Háskólann og farnir að
starfa þar. Það er því lítil eða engin ástæða
fyrir þá til þess að afrækja þann félagsskap,
í því skyni að ganga inn í annað, sem lélegra
er, og sem menn starfa ekki í lengur en 1—2
—5 ár. Þetta er það, sem gerir íþróttafélagi
Háskólans meðal annars erfitt fyrir.
Þá veldur það miklum örðugleikum í félags-
lífi stúdenta, að í Háskólanum eru menn stöö-
ugt að koma og fara og afleiðingin er sú, að
engin verulega formföst stofnun getur mynd-
azt. Jafnvel stúdentaráðið, sem þó situr og
starfar að staðaldri, ber glögg merki um það
stöðvunarleysi, sem leiðir af hinum stöðugu
mannaskiptum.
Annað,sem að mínum dómi veldur töluverðu