Stúdentablaðið - 01.12.1939, Side 23
STÚDENTABLAÐ
15
Stúdentar útskrifaðir úr Akureyrar-Menntaskóla voriö 1939.
stúdenta sé til þess íallið, að Garður væri
gerður að uppeldisstofnun. Flestir stúdentar
telja sig losna undan okinu þegar þeir eru
lausir úr heimavistunum og hugsa sér gott til
frelsisins og mundu því hugsa sig um, áður en
þeir gengu undir nýjan aga.
Aðalerfiðleikarnir eru fjárhagsörðugleik-
arnir, sem gera stúdentum nauðsynlegt að
flýta náminu sem mest. Þrátt fyrir þetta má
að sjálfsögðu benda á ýmislegt, sem gera
mætti með litlum kostnaði og án þess að það
þyrfti að tefja námið. í þessu sambandi get
ég ekki látið hjá líða að benda á, að íþrótta-
iðkanir eru alltof litlar meðal stúdenta. Má
vera, að þetta stafi nokkuð af því, að flest allir
islenzkir stúdentar stunda líkamlega vinnu
að sumrinu í stað þess, að víða annars staðar
eru fríin frí, en ekki frestur til þess að vinna
sér inn fé til framhaldsnáms næsta vetur.
Þegar litið er til baka þessi fimm ár er ekki
hægt annað en dást að þeirri ágætu um-
gengni, sem stúdentar hafa sýnt á Garðinum,
og efast ég um, að hún finnist betri annars
staðar. Ósk min, Garðstjórnar og allra stúd-
enta er,að hægt sé að halda húsinu svo í fram-
tíðinni, að fyrirmynd sé að. Stúdentar eldri,
sem yngri hafa sýnt það með rausnarlegum
gjöfum til skreytingar húsinu, og öðru, að þeir
vilja Garði vel.
Að lokum vil ég lýsa því yfir, að þegar ég
lít yfir þessi fimm ár, þá finnst mér vel af
stað farið. Örðugleikana tel ég byrjunarörð-
ugleika, nauðsynlega til þroska, og sé það rétt,
þá heldur þróunin áfram og Garöur á eftir að
verða íslenzkum stúdentum, og þá um leið
þjóðinni, til mikils gagns í framtíðinni.