Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Page 26

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Page 26
18 STÚDENTABLAÐ væri að hafa marga lækna á landinu? Ég mundi segja, að hæfilegt væri, að við hefðum 100 lækna alls, sem svaraði til þess, að 1 læknir kæmi á hverja 1200 íbúa. Með því væri séð fyrir læknum í öll héruð landsins, sem eru alls 49, það er 48 fyrir utan Reykjavík. Þá væri pláss fyrir 52 lækna í Reykjavík og öðr- um kaupstöðum landsins, sem ætti að vera meira en nóg. Þá er næsta spurning, hvað myndum við þurfa að útskrifa marga lækna til þess að geta haldið þessari tölu, nl. haft 100 lækna í landinu. Til þess að halda við tölu 100 lækna í landinu, mundi verða nægilegt að útskrifa 5 lækna á ári. Með því móti er gert ráð fyrir, að læknafjöldinn end- urnýist á 20 árum, og ætti það að vera meira en nóg. En þá kemur n^esta spumingin, og það er, hvað þyrfti að hleypa mörgum lækn- um inn í deildina til þess að fá út úr henni sem svarar 5 læknum á ári að meðaltali. Eftir reynslu undanfarinna ára, myndi vera nóg að taka inn í deildina á hverju ári 7 manns. Með þeim læknafjölda, sem nú er fyrir í landinu, myndi vel fyrir læknafjölguninni séð, með því að taka inn 5 nýja menn á ári hverju. Ég býst við, að flestir geti verið sammála um það, að við höfum ekkert að gera við fleiri lækna en þetta. Spurningin er þá sú, hvernig yrði bezt framkvæmt að fá ekki fleiri lækna- efni inn í deildina, og hvaða ráðstafana væri hægt að grípa til í þeim tilgangi að fá stemmt stigu fyrir þeirri fjölgun, sem þegar er orðin, og sem verður of mikil og hlýtur að leiða til vandræða, ef ekkert er að gert. Sumir hafa stungið upp á því að loka lækna- deildinni í 'hokkur ár. Það væri vafalaust ó- hætt, vegan læknamenntunarinnar í landinu; enginn efi á því, að landið myndi ekki vanta lækna, þótt deildinni yrði lokað í 4—5 ár. En þetta væri neyðarráðstöfun, sem hlyti að verða illa séð hjá stúdentunum, sem útskrifast á næstu árum og hafa ætlað sér að verða lækn- ar, en finna öll sund lokuð. Eðlilegast væri vafalaust, að Háskólinn gæti boðið upp á nógu margar fræðigreinar, svo að stúdentafjöld- inn dreifðist eðlilega og því fækkaði þeim, sem koma í læknadeild, frá því sem verið hefir. En þó er það enganveginn víst, að slík ráðstöfun ein kæmi að haldi, því að sú hefir orðið raunin á við flestalla háskóla erlendis, þar sem úr nægilega mörgum fögum er að velja, að stúdentarnir þyrpast allt of mikfð í læknadeildirnar. Það væri því engan veginn öruggt, þótt deildum yrði fjölgað við háskól- ann, að stemmt yrði stigu fyrir offjölgun í læknadeild. Margir erlendir háskólar hafa gripið til þess að takmarka aðganginn að ýmsum deildum. Sérstaklega eru það lækna- og lagadeildir, er hafa orðið fyrir slíkum takmörkunum, vegna þess hve margir hafa sótt í þær. Komið hefir til mála að grípa til slíkra ráðstafana hér, en það sem virðist vera lang erfiðast í því efni, er að finna aðferð til þess að velja stúd- entana í deildirnar. Það sem liggur lang næst og er vafalaust einfaldast, er blátt áfram það að taka menn eftir stúdentsprófseinkunnum.það er, að stúd- entsprófið eitt verið látið ráða, og ekki yrðu þá teknir hér aðrir en 5—7 árlega af þeim hæstu, sem gefa sig fram til náms í deildinni. Þessi aðferð má þó teljast óhæf. Því það mega allir vita, að stúdentsprófið út af fyrir sig er eng- inn mælikvarði á það, hversu vel stúdentinn er fallinn til að verða læknir. Til þess að tak- mörkunin yrði vel framkvæmd, þyrfti að velja mennina með það fyrir augum, hvaða hæfi- leika þeir hafi til þess starfs, sem þeir hafa valið sér. Hvað læknunum viðvíkur, skal ég játa, að ég hefi lengi haft augun á þeim möguleika, að unnt væri að gera sér hug- mynd um mennina áður en þeir koma í deild- ina, reyna að sjá þá út, hve vel þeir myndu duga sem læknar, og fá með því móti úrvals- menn í stéttina. Hér hefir komið til mála að takmarka inn- ganginn í læknadeildina, en lítið hefir verið rætt um, hvaða aðferð ætti að hafa. Ég hefi verið því fylgjandi, að ef við tækjum upp takmörkun hér, þá yrði það með nokkru öðru móti heldur en hingað til hefir þekkzt hér á landi. Ég vil n.l. alls ekki, að aðeins sé tekið

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.