Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Page 30

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Page 30
22 STUDENTABLAÐ Vegna stríðsins Já, sannlega’ er mannanna illska nú óskapleg, í útlöndum heyja þeir styrjöld og drepa hvern annan. Svo fólslegan ófrið í svínunum segi eg: Sjáðu, minn kœri, það œtti sko klárlega’ að bann’ ’ann. Og ekki er nóg, að þeir andskotist úti þar, og úthelli saklausu blóði á nótt sem degi; því jafnvel hér heima er andstreymi allskonar, og ömurleikinn á gandreið á förnum vegi, Og ólukku dýrtíð og kreppa, sem kvelur oss og kuldinn í veðrinu bœtist svo ofan á þetta et ubi sumus ibi nunc etiam mors og alltaf er verið að svíkja mann eitthvað og pretta. Svo sárlega blankur víst enginn hér áður var, né auðnan svo hverflynd við stúdentahópinn á Garði, og aldregi minna af aqua vitae þar og aldregi meira þar neinn við sig lúxusinn sparði. En hvernig nú svo sem er ástatt um okkar hag, þá erum við fúsir að leysa úr hvers annars klípu, og því finnst oss grátlegt að geta’ ekki dag eftir dag gefið svo mikið sem vini sínum í pípu. Hér sitjum við Geiri og glápum á allsleysið, og galtómar pípurnar sitt út í loftið hvað benda. Hvenœr fœr maður tóbak og hvenœr frið og hvenœr taka vandrœði manna enda? E xt er nu s. líka svo komið, að veggur nágrannans brenn- ur fyrir Bandaríkjunum. Að því er snertir Japan, er það sá aðili, sem minnst myndi græða á hreinum sigri hvors styrjaldaraðila um sig. Fullkominn ósigur nazismans á Þýzkalandi, myndi gefa Sovét- Rússlandi stór-aukin áhrif og vald í Asíu og sigrandi Bretland mundi hafa ráð á að halda svo sterkan flota í Kyrrahafinu, að hann væri þess megnugur, að hafa gát á hverri hreyf- ingu Japana. Og þó er ekki ósennilega til getið, að óttinn við vaxandi vald Sovét-Rúss- lands í Asíu, sem óhjákvæmilega myndi leiða af fullkomnum ósigri Þýzkalands, geri það að verkum, að í hjarta sínu óski Japan Þýzka- landi sigurs. En það má ekki taka of fljótan tíma. Bretar verða að eiga í langri styrjöld, til þess að Japanir geti haft næði til þess að tryggja sem bezt aðstöðu sina í Kyrrahafinu og helzt að ná þar undir sig brezkum yfirráða- svæðum. Þetta virðast þá vera helztu óskir og mark- mið hinna hlutlausu. Japan og Ítalía eru sammála um það, að vilja reisa skorður við hinu rússneska valdi og um þau er eins ástatt að því leyti, að bæði tapa nokkru, hvor aðili sem vinnur. Bandaríkin og Sovét-Rússland eru sammála um það, að stemma stigu fyrir vaxandi valdi Japana, og þetta þýðir það, að innan vissra takmarka óskar Sovét-Rússland ekki eftir að sjá Bretland eyðilagt að svo stöddu.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.