Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 31
STÚDENTABLAÐ
23
Th. Smith, stud. jur.:
Norræna stúdentamótið 1939
i.
Það hefir falið í minn hlut að lýsa að
nokkru norræna stúdentamótinu, sem haldið
var í Oslo dagana 23.—27. júní sl.
Mót þetta var hið fimmta í röðinni. Hið
fyrsta var haldið í Uppsölum 1875, en síðan
leið hálf öld þar til þau voru tekin upp að
nýju, en árið 1925 var stúdentamót í Oslo,
1928 í Stokkhólmi, 1930 hér í Reykjavík, 1935
í Kaupmannahöfn og loks nú í sumar í Oslo.
Var í upphafi ætlazt til, að mótið yrði að
þessu sinni haldið í Helsingfors, en af or-
sökum, sem mér eru ókunnar, fórst sú fyrir-
ætlun fyrir og norska stúdentasambandið
annaðist mótið. — Töluverðan undirbúning
þurfti við þátttöku i mótinu. í þvi skyni var
kosin nefnd og skipuðu hana þeir Axel V.
Tulinius, stud. jur., Magnús Már Lárusson,
stud. theol. og undirritaður. Var unnið kapp-
samlega, því tími var naumur til stefnu, en
verkið seinunnið. Ráðstafanir okkar í sam-
bandi við utanförina voru torveldar, bæði
vegna hörguls á hagkvæmum skipaferðum og
síðast en ekki sízt vegna gjaldeyrisvandræða.
En svo fór þó að lokum, að ríkisstjórn og
gjaldeyrisnefnd brugöust vel við og létu okkur
í té nauðsynlegan farareyri Þess ber og að
Skrúögangan til setningar mótsins hefst.