Stúdentablaðið - 01.12.1939, Blaðsíða 32
24
STÚDENTABLAÐ
geta, aS Vilhjálmur Finsen sendisveitarfull-
trúi í Osló reyndist okkur hin mesta hjálpar-
hella og fyrir hans atbeina var því til leiðar
komið, að við fengum að greiða heimför
okkar með „Lyra“ í íslenzkri mynt og var
okkur hin mesta búbót að þessu. Ég vil nota .
tækifærið til þess að færa ríkisstjórn, gjald-
eyrisnefnd, Vilhjálmi Finsen og öllum þeim,
sem á einhvern hátt greiddu götu okkar ís-
lenzku þátttakendanna. —
Lagt var af stað héðan þ. 15. júní með
„Lyra“ og voru þátttakendur þessir stúdentar:
Adolf Guðmundsson,
Axel V. Tulinius,
Einar Magnússon,
Gústaf Ólafsson,
Hannes Þórarinsson,
Haukur Classen,
Skúli Guðmundsson,
Stefán Ólafsson,
Thorolf Smith,
Þórður Björnsson,
Þormóður Ögmundsson,
Þórólfur Ólafsson.
í Oslo bættust við í hópinn þau:
Guðrún Tulinius,
Iðunn Eylands,
Inga Hallgrímsdóttir,
Ástvaldur Eydal,
Geir Þorsteinsson,
Jónas Haralz.
Vorum við því alls 19 íslenzkir stúdentar
á mótinu og má það teljast mjög góð þátt-
taka, þegar þess er gætt, hve langt ferða-
lagið er, að ógleymdum gjaldeyriserfiðleik-
unum. Enn skýrar má þó sjá, að þátttaka
okkar var góð þegar þess er gætt, að íslend-
ingar eru ekki nema 0,6% af íbúatölu Norð-
urlandanna fimm, en á mótinu vorum við
19 af 625, eða full 3%. Alls sóttu mótið 625
stúdentar, sem skiptust þannig eftir þjóðum:
Danir.......... 166
Finnar .......... 75
íslendingar .... 19
Norðmenn ...... 288
Svíar ........... 77
Er það eftirtektarvert, hversu fáir Svíar
voru, langfjölmennasta þjóðin, og áttu stytztu
leið til mótsins, en ekki er mér kunnugt um,
hverjar orsakir lágu til þess.'—
Fararstjóra kusum við Einar Magnússon,
menntaskólakennara. Skal það strax tekið
fram, að Einar reyndist hinn bezti félagi og
undum við forsjá hans ágæta vel. —
Við komum til Bergen þ. 19. júní um nón-
bilið eftir tíðindalitla sjóferð. Létum við flytja
pjönkur okkar á Hótel Rosenkrantz, en þar
ætluðum við að gista um nóttina og fara síð-
an með morgunlestinni til Oslo til þess að
sjá hina rómuðu náttúrufegurð Bergens-
brautarinnar við dagsbirtu. Hotel Rosen-
krantz, sem flestir íslendingar, sem komið
hafa til Bergen, kannast við, er rétt við höfn-
ina, steinsnar fyrir ofan „Þýzku bryggju".
Við notuðum daginn til að skoða það, sem
markvert er í Bergen. Fórum upp á „Flöien“
með dráttarbrautinni. Þar uppi er dýrðlegt
útsýni yfir borgina og skerjagarðinn þar fyr-
ir utan.
Síðan var skotið á ráðstefnu á hótelinu og
hringt til Oslo og haft tal af undirbúnings-
nefnd mótsins. Báðum við um, að sendur yrði
maður til að taka á móti okkur á brautar-
stöðinni. En okkur var svarað, að þeir myndu
ekki senda mann, heldur heilan hóp manna
til þess að fagna okkur við komuna. Þetta
voru fyrstu beinu kynni okkar af norskum
stúdentum og þau reyndust líka sönn, þvi
velvild og alúð var okkur sýnd allt frá byrj-
un til enda.
II.
Sökum rúmleysis í blaðinu kemst ég ekki
hjá því að sleppa ýmsu, sem annars hefði
gjarnan mátt vera í þessum greinarstúf. Ég
verð því að stikla á stærstu steinunum og
lýsa því stuttlega, sem fyrir bar, séð frá mín-
um bæjardyrum. —
Þegar komið var til Oslo um kvöldið, voru
þar fyrir 20—30 stúdentar, sem buðu okkur
velkomna og tókust strax ágæt kynni með
okkur. Fylgdu þeir okkur síðan á gististaðinn.
Af plöggum þeim, sem okkur höfðu verið send,