Stúdentablaðið - 01.12.1939, Blaðsíða 33
STÚDENTABLAÐ
25
vissum við, að við áttum að búa á Akerhus-
kastala meðan á mótinu stæði. En þar sem
við komum fyrstir, og tveim dögum áður en
mótið skyldi hefjast, hafði verið samið við
hina ágætu stofnun „Pension Sol“ í Eckers-
berg-götu, um gistingu þar til við gætum
flutt á Akerhus. En okkur líkaði engan veg-
inn við téða stofnun, því það kom á daginn,
að við urðum að vera 2 og 3 í herbergi saman
og kostaði næturgistingin 3 kr. fyrir mann.
Þótti okkur það bæði dýrt og óhentugt. En
sleppum því. Var okkur úthlutuð prentuð
dagskrá mótsins, kort yfir Oslo og söngva-
hefti. í því voru þjóðsöngvar Norðurland-
anna og ýmsir stúdentasöngvar, og þar á með-
al þessi, sem ortur hafði verið í tilefni af
mótinu og síðar var mjög mikið sunginn und-
ir laginu „Tan Brown’s Baby“:
Vi ha kommit frán de tusen sjöars land,
frán Sveriges rike, — og fra Danmarks blide Strand,
i fra Sagaöya lysende der nord
og synger oss med Norge sammen i Studenterkor:
Refr.: La ungdomssangen festlig klinge,
og bud og frendehilsen bringe.
La Norden vise veien hvor vi skal dra hen; —
og la oss snakke sammen slik svo venn til venn.
Auk þess var öllum þátttakendum mótsins
fengið lítið kringlótt nafnspjald, sem nælt
var á áberandi stað á fötum manns, en á
spjaldið skyldi letrað nafn og ættland. Með
þessu móti þurfti maður aldrei að kynna sig
formlega, heldur var bara litið á spjaldið og
síðan þúast. — Næsta morgun kom blaða-
maður frá stórblaðinu „Aftenposten“ og bauð
okkur í bíltúr. Ók hann með okku'r um borgina
og sýndi okkur ýmsar merkar byggingar, svo
sem ráðhús það hið mikla, sem nú er verið
að reisa niðri við höfnina. Er það hið mesta
bákn, með tveim risavöxnum turnum og mun
eiga að kosta um 30 milj. kr. Síðan bauð hann
okkur upp á „Skansen“, sem er alþekktur úti-
skemmtistaður Oslo-búa, og veitti bjór, og
var hann vel þeginn, því heitt var í veöri og
mollulegt. Tók hann þar myndir af okkur,
sem birtust í „Aftenposten“ sama dag ásamt
greinarkorni, undir fyrirsögninni: „De förste
pá skansen". Loks var haldið heim á „Sólar-
hótelið“, allt góss tekið saman og ekið út á
Akerhus kastala. Var okkur komið þar fyrir
í leikfimissal og hermannaskálum. Akerhus
er ævafornt virki, og eru elztu hlutar þess
frá því um 1300 en hina núverandi mynd sína
fékk það á dögum Kristjáns 4. Þótti virkið
rammbyggilegt mjög fyr á öldum og hefir
hrundið af sér mörgu áhlaupinu áður fyrr.
Nú á tímum hefir Akerhús enga hernaðar-
lega þýðingu lengur, en þó er þar hervörður
og setulið. Þar er og fangelsið „Akerhus Lands
fengsel“, en það mun líka vera orðið gam-
alt og úrelt. Þar sátu forðum ýmsir dánu-
menn, sem var illa við kvaðir og skyldur
þjóðfélagsins, svo sem Óli Hálendingur, sem
að sögn var hinn mesti afreksmaður í sinni
grein, en hann var mjög riðinn við grip-
deildir. En skuggar fortíðarinnar, umsátur,
þjófar og morðingjar, voru óralangt frá hug-
um hinna 200 norrænu stúdenta, sem fylltu
sali og skála Akerhus-virkis þennan júní-
dag 1939.
III.
Svo rann upp 23. dagur júnímánaðar, fyrsti
dagur mótsins. Þátttakendur allir komu sam-
an á Akerhus og fylktu liði. Fremst í fylkingu
voru þjóðfánarnir og þá stúdentafélagsfán-
arnir. Við höfðum nýjan íslenzkan silkifána
meðferðis og hjörtun slógu ósjálfrátt hraðar
í brjóstum okkar, er við sáum fallega íslenzka
fánann okkar blakta þarna við hlið hinna
norðurlandafánanna. Við fundum greinilega
til þeirrar einingar og samhuga, sem nú ríkir
meðal hinna fimm fullvalda ríkja Notður-
landa. — Hinar svörtu stúdentahúfur norsku
stúdentanna voru í meirihluta í fylkingunni,
en það var samt eins og þeir drukknuðu inn-
an um hvítar húfur Dana, Svía, Finna og ís-
lendinga.
Síðan var lagt af stað og lék lúðrasveit
stúdenta- og hermanna-göngulög undir
göngunni. Veður var ekki hið ákjós-
anlegasta, skýjaður himinn og hálfgerð-
ur suddi í lofti, en þó rigndi ekki á
meðan á göngunni stóð. Var fylkingunni tek-
ið með miklum fagnaðarlátum hvar sem við