Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Page 39

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Page 39
STÚDENTABLAÐ 31 Stúdentum ætti því aö vera innan handar, að gera Þingvallaferðina og Rússagildið að hollum og fögrum gleðivenjum, jafnvel án þess að bjóða Bakkusi með. En vilji þeir hafa hann, þá verða þeir að undiroka goðið þann daginn, í stað þess að bera honum vit sitt og fegurð að fórn. Ég sný mér nú að síðustu orsök tómlætis stúdenta í bindindismálum. Þar sannast hið fornkveðna: „Að vandinn eykst með vegsemd hverri.“ Hver einasti stúdent, sem vill vera álitinn sæmdarmaður, verður að gera sér ljóst, að hann er háður ábyrgð gagnvart þjóð sinni og skóla sínum. Þeirra heiður er hans heiður. Þeirra fyrirlitn- ing hans fyrirlitning. Flestir stúdentar gera þá kröfu sjálfrátt eða ósjálfrátt, að vera álitnir standa fjöldan- um framar að þekkingu og menningu yfir- leitt. Þess vegna verða þeir að krefjast þess af sjálfum sér, að þeir traðki aldrei það álit undir fótum, með ógeðslegri eða ruddalegri framkomu. Hver stúdent, sem reynir af al- efli að verða skólanum og þjóð sinni til sóma, er virðingarverður. Geri hann það ekki, er hann þeim mun auðvirðilegri, sem hann veit og skilur viðhorf 'lífsins öðrum betur. Enginn nemenda Háskólans má heldur gleyma, að hvert augnablik skólatímans ber honum að nota þannig, að hann uppskeri sem mestan þroska, til þess að vinna síðar að heillum al- þjóðar í erfiðri og vandasamri þjónustu rik- isins. Til þess fær hann ókeypis fræðslu, styrki og ýms forréttindi. Hverja stund, sem hann gleymir að nota tímann þannig, svíkur hann bæði sjálfan sig og aðra. Af stúdentum er þess vænzt, að þeir geti haft forystu á ýmsum ábyrgðarmestu sviðum þjóðlífsins að embættisprófi loknu og jafnvel fyrr. Þetta er mikilsvert atriði, sem þeir verða að muna. íslenzka þjóðin fámenn og fátæk þolir það illa, að vökumenn hennar sofi á verðinum. En hlutverk stúdenta er öllu öðru fremur að vera vökumenn og vaxtarbroddur menningar, víðsýni, framsækni og dáða. Það er að miklu leyti á þeirra valdi, hvort þjóðinni munar áfram eða aftur á bak, hvort heldur á sviði atvinnulífs, tækni, vísinda eða lista. Þótt at- vinnulífið hafi hingað til um of legið utan athafnasviðs þeirra. En auk þessa eru stúdentar oft hafðir að fyrirmyndum meira en marga grunar. Stúlk- urnar taka samkvæmi þeirra fram yfir önnur. Ef til vill þessvegna telja piltarnir þá eftir- breytnisverða. Ætli sumar dömurnar settu ekki upp hundshaus, væri þeim boðið tóbak og vin, ef aðeins skríll og skrælingjar hefðu slíkt um hönd? En ekki er því að heilsa. Það er hið svo- nefnda fína fólk og menntaða, sem skapar þessa nautnatízku. Hugsunarlaust fólk apar eftir. Þeir, sem gera það ekki eru litnir horn- auga fyrir hjárænuskap. Og að síðustu, íslenzkir stúdentar, verið sjálfstæði ykkar og menningu trúir. Ekki yfir- borðssjálfstæði og sýndarmenningu hræsnara og uppskafninga, heldur þeirri göfgi, sem ís- lenzk mold getur æðsta veitt og þeirri blessun, sem fegurst er framborin á bænarörmum, af íslenzkri móðúr barni sínu til handa. Látið Háskólann verða fegurstu heilla- og frelsisstjörnu þjóðarinnar á öllum sviðum, ekki síður í bindindismálum en annars staðar. Takið höndum saman og berjist með óskertum kröftum æsku og fórnarlundar, gegn öllu myrkri, áþján, viðurstyggð og böli, hvort sem það á rætur í eigin sál, eða læðist að á uglu- vængjum gráðugra frelsisræningja. Samein- umst öll í óskinni: Blómgist Háskóli íslands í nútíð og framtíð. FRÁ RITNEFND Samstarf ritnefndar hefir verið hið ákjós- anlegasta, og ekki komiö til neins alvarlegs ágreinings. Forsíðumynd er teiknuð af Stefáni Jónssyni. Skopmyndir I annálnum teiknaði Jóhann Bernhard, en myndina af fráfarandi for- manni Stúdentaráðs Stefán Jónsson. Ritnefndin kann öllum þeim, sem á einn eða annan hátt hafa stutt að útgáfu blaðsins, beztu þakkir. Árelíus Níelssón. Gunnar Gíslason. Sigurgeir Jónsson.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.