Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Síða 42

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Síða 42
34 STÚDENTABLAÐ Carmina Canenda nefnist söngbók stúdenta, sú er kom út fyrir fáum dögum. Bókin er bundin í skinn og prentuð á vand- aðan pappir. í henni eru nokkrar teikningar, m. a. litprentaðir fánar Norðurlandanna. í bókinni eru 70 ljóð og lag prentað með hverju kvæði. Bókin er hand- hæg í notkun og hæfilega stór til þess að stinga í vasa. Þeir Jón Þórarinsson og Bárður Jakobsson hafa tekið bókina saman og séð um útgáfuna, en ísafoldar- prentsmiðja er útgefandinn. Carmina canenda er gefin út að tilhlutun stúdentaráðsins. Útkoma þessarar fall- egu og að öllu leyti vönduðu bókar má óefað telja merkasta viðburðinn í félagslifi stúdenta á þessu ári. Hver einasti stúdent eldri sem yngri ætti að kaupa hana. Hún er ómissandi, hvar sem stúdentar koma saman til fagnaðar. Takmörkunin. Það mál, sem mestar umræður hefir vakið meðal stúdenta á þessu ári, er sú ákvörðun Háskólaráðs að fara fram á við hið háa Alþingi, að það veiti Háskóla- ráði heimild til þess að takmarka aðgang að sérhverri deild háskólans, ef þörf þykir. Um mál þetta eru all-skiptar skoðanir meðal stúd- enta. Málið hefir verið rætt á fundum I þremur félögum í háskólanum, í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúd- enta, í Orator, félagi laganema og í félagi læknanema. í Vöku og Orator voru samþykktar tillögur andvígar takmörkun, en félag læknanema samþykkti tillögu með takmörkun. Þann 10. nóv. var svo almennur stúdentafundur haldínn um málið að tilhlutun Stúdentaráðs. Frum- mælandi var Alexander Jóhannesson rektor háskólans. Margir tóku til máls á fundinum og þar á meðal Steinþór Sigurðsson skólastjóri viðskiptaháskólans og mælti hann með takmörkun. Á fundinum kom fram eftirfarandi tillaga og var hún samþykkt með 27 gegn 21 atkv. „Almennur fundur háskólastúdenta haldinn að Garði 10. nóv. 1939, telur allar takmarkanir á aðgangi að deildum háskólans mjög óheppilegar og varhuga- verðar. Hinsvegar telur fundurinn, að óeðlileg fjölgun stúdenta í vissum deildum háskólans beri að mæta með því að gera ráðstafanir til þess að beina stúd- entafjölguninni inn á nýjar og eðlilegar brautir, án þess að skerða í nokkru ákvörðunarrétt stúdentan til þess að velja sér námsgrein. Vill fundurinn ein- dregið beina þeirri áskorun til Alþingis og ríkisstjórn- ar, að deildum háskólans verði fjölgað hið bráðasta og fjölbreytni náms aukin sem verða má. Þá telur fundurinn, að leggja beri áherzlu á það, að gera verð- andi stúdentum það vel ljóst, hverju fram vindur um atvinnuhorfur háskólamenntaðra manna." Stúdentaráð Háskólans. Kosið var til stúdentaráðs þann 14. október s. L Kosið var um þrjá lista: A-lista, lista Félags frjáls- Iyndra stúdenta, B-lista, lista Félags róttækra stúdenta og C-lista, lista Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Kosningin fór þannig: A-listi hlaut 55 atkvæði og tvo menn kjörna, Sigurð Ólason, stud. med. og Sigur- geir Jónsson, stud. jur. — B-listi hlaut 50 atkvæði og tvo menn kjöma, Árelíus Níelsson, stud. theol. og Högna Jónsson, stud. jur. — C-listi hlaut 101 atkv. og fimm menn kjörna, Hannes Þórarinsson, stud. med., Ármann Snævarr, stud. jur., Gunnar Gíslason stud. theol., Þorgeir Gestsson, stud. med., og Bárð Jakobs- son, stud. jur. Stjórn ráðsins skipa: Bárður Jakobsson, formaður, Sigurður Ólason, ritari, Hannes Þórarinsson, gjaldkeri. Embættispróf. Á síðastliðnu skólaári luku þessir stúdentar embætt- isprófi við Háskóla íslands. í guðfræði: í mai. Ástráður Sigursteindórsson I. eink. Ragnar Benediktsson I. eink. í læknisfræði: í janúar. Axel Dahlmann II. eink. betri. í lögfræði: í janúar. Helgi Laxdal I. eink. Henrik Sveinsson I. eink. Pétur Eggerz I. eink. í maí. Árni M. Jónsson I. eink. Erlendur Björnsson I. eink.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.