Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 43

Stúdentablaðið - 01.12.1939, Qupperneq 43
STUDENTABLAÐ 35 Ólafur Jóhannesson I. eink. Vagn Jónsson I, eink. Þorsteinn Sveinsson II. eink. betri. Hátt próf. Ólafur Jóhannesson cand. juris lauk því hæsta prófi, sem tekið hefir verið við háskólann. Hann hlaut 155 stig í einkunn. — Hæstu einkunn í lögum hafði til þess tíma prófessor Bjarni Benediktsson. Nýr doktor. Séra Eiríkur Albertsson, prestur að Hesti í Andakíl, varði í janúar s. 1. doktorsritgerð sína um Magnús Eiríksson, guðfræði hans og trúarlíf. Háskólasetningin. Sú nýbreytni var tekin upp í haust við háskólann, að setningu hans var frestað til fyrsta vetrardags og er ákveðið, að svo skuli vera framvegis. Háskólasetningin fyrsta vetrardag var hátíðleg. Fyrir utan setningarræðu rektors flutti dr. Ágúst H. Bjarnason fyrirlestur, er hann nefndi: Menning og siðgæði. Útvarpskórinn söng hátíðasöngva. Kosning í Garðsstjórn. Stúdehtaráð kaus í haust Hannes Þórarinsson stud. med. til þess að taka sæti í Garðsstjórn' í stað Ólafs Bjarnasonar stud. med., sem lokið hafði kjörtímabili sínu. Rússagildi. Um kvöldið fyrsta vetrardag var nýjum stúdentum fagnað að Garði. Magister bibendi var dr. theol. Magnús Jónsson, prófessor. Stýrði hann hófinu með skörungsskap. ísleifur Árnason prófessor juris ávarpaði Rússana og fórust honum vel orð. Fleiri ræður vóru fluttar og kvæði. Að lokum var dans stiginn fram eftir íróttu. Fór allt hófið fram með ágætum og varð öllum, er það sóttu, til ómengaörar ánægju. Félög innan Háskólans. 1. Val'a, félacj lýðrœSissinnaöra stúdenta. Stjórn fé- lagsins skipa: Einar Ingimundarson, stud. jur., for- maöur, Gisli Ólafsson, stud. med., ritari og Sigfús H. Guðmundsson, stud. med., gjaldkeri. 2. Félag frjálslyndra stúdenta. Stjórn félagsins skipa: Þorvaröur K. Þorsteinsson, formaður, Erlendur Konráösson, stud. med., ritari og Halldór Þorbjarnar- son, stud. jur., gjaldkeri. — Félag frjálslyndra stúdenta var stofnaö á s. 1. vori. Fyrsti formaður félagsins var Siguröur Ólason, stud. med. 3. Félag róttœkra stúdenta. Stjórn félagsins skipa þessir menn: Gissur Brynjólfsson, stud. med., formað- ur Haukur Kristjánsson, stud. med., gjaldkeri og Guðni Guðnason, stud. jur., ritari. 4. Orator, félag laganema. Stjórn skipa: Hans Andersen formaöur. Meðstjórnendur eru Ármann V. Snævarr og Halldór Þorbjarnarson.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.