Stúdentablaðið - 01.12.1939, Síða 44
36
STÚDENTABLAÐ
5. Félag lœknanema. Stjórn skipa: Eggert Stein-
þórsson. Meðstjórnendur eru Arinbjörn Kolbeinsson
og Guðmundur Eyjólfsson.
Síðastliðinn vetur var í fyrsta skipti veittur styrkur
úr Styrktarsjóði læknanema og var einum kandidat
veittur styrkur úr sjóðnum. Umsóknarfrestur um styrk
úr sjóðnum er til 15. marz.
Stjórn sjóðsins skipa: formaður Guðmundur Thor-
oddsen prófessor, Karl Strand, stud. med. og Hannes
Þórarinsson, stud. med.
6. Stúdentafélag Háskólans. Stjórn: Thorolf Smith,
stud. jur., Lárus Fjeldsted, stud. jur., og Þorgeir Jóns-
son, stud. med.
7. Bindindisfélag Háskólans. Formaöur Árelíus
Níielsson. Meðstjórnendur eru Guðmundur Björnsson,
stud. med., og Magnús Már Lárusson, stud. theol.
8. Kristilegt stúdentafélag. Stjórn þess skipa Ástráður
Sigursteindórsson cand. theol. formaður. Meðstjórnend-
ur eru Þórður Möller stúd. med. og Magnús Runólfsson
cand. theol.
9. íþróttafélag stúdenta. Stjórn skipa: Skúli Thor-
odsen, stud. med., formaður, Gísli Ólafsson, stud. med.,
ritari og Sigmundur Jónsson, stud. med., gjaldkeri.
í fyrra tók stjórn félagsins upp þá nýbreytni að hún
skipaði sér til aðstoðar þrjú iþróttaráð. Þessi þrjú
íþróttaráð skipa nú. Sundráð: Logi Einarsson og
Brandur Brynjólfsson. Handbolta- og knattspyrnuráð:
Björgvin Bjarnason og Brandur Brynjólfsson. Skíða-
ráð: Harald Wigmoe og Hilmar Kristjónsson. Skíða-
vörður er Erlendur Konráðsson. «
Selsför háskólastúdenta.
í lok janúar s. 1. fóru háskólastúdentar í útilegu
í hið nýreista skólasel Menntaskólans. Hafði rektor
skólans lánað stúdentum selið allt að því vikutíma,
i viðurkenningarskyni þess, að nú eru komnir svo
margir stúdentar i háskólann, sem á menntaskóla-
árum sinum höfðu unnið að byggingu selsins og fjár-
söfnun til þess. Þátttakendur í förinni voru 31 og
skemmtu menn sér hið bezta í 4 daga austur þar.
Á daginn voru iðkaðar skíðagöngur og fjallaferðir,
en á kvöldin var spilað og sungið. Er þetta nýbreytni í
félagslífi stúdenta. Má því vænta þess, að uppteknum
hætti verði haldið, og slík för verði árlegur viðburður í
stúdentalífinu.
Styrkjamál stúdenta.
Á síðastliðnu starfsári sínu, skipaði Stúdentaráðið
nefnd til þess að gera athuganir og tillögur um styrkja-
mál stúdenta. í nefndinni áttu sæti: Ólafur Lárusson
prófessor, Jón Jóhannesson can. mag. og Axel V. Tuli-
nius stud. jur. Skilaði nefndin áliti s. 1. vor, er var
sent fjármálaráðherra ásamt umsókn um hækkun
náms- og húsaleigustyrks á næstu fjárlögum. í álit-
inu gerði nefndin grein fyrir hag stúdenta, tekjum
og skuldum. Taldi hún ekki rétt að bæta úr fjárþörf
stúdenta með því að auka lánsmöguleika þeirra fram
yfir það, sem nú er. Auk þess taldi nefndin, að stefna
bæri að því að gera stúdentum kleift að komast hjá
því að eyða tíma sínum og kröftum í aukastörf jafn-
hliða náminu. Lagði nefndin því til, að beinir styrkir
til stúdenta yrðu hækkaðir. í samræmi við þetta sótti
Stúdentaráðið um hækkun styrkjanna fyrst um sinn
í 33 þús. kr.
Enn er ekki vitað hvernig Alþingi tekur málum
þessum.
Forstöðumaður
upplýsingaskrifstofu Stúdentaráðsins er nú Lúðvíg
Guðmundsson, skólastjóri.
Sftúdentar!
Skiptið við pá, sem auglýsa
í blaði ykkar.
KJÓLAEFNI
úr ull og silki, uiidirfatnaðni* kven-
og karlmanna, wokkar, ínan-
chottskyrtiir. lilndi og flihkar.
Asgeir Gunnlaugsson & Co.
Austurstrœti 1
Prentsmiðjan Edda.