Stúdentablaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 15
STÚDENTABLAÐ
9
azt. En gestaf jöldinn, sem safnið hefur lestr-
arsæti fyrir, hefur tífaldazt eða meir á sama
tíma, og mun það orðið hátt á 3. hundrað
manns, auk fræðimannaherbergja. Uppsala-
bær er að miklu leyti byggður stúdentum
og vandamönnum þeirra. Bæjarbókasafnið
þar er eitt hið ágætasta í Svíþjóð og mikið
notað af stúdentum. En háskólabókasafnið,
„Carolina rediviva“, hefur staðizt þá eld-
raun, sem fá hinna gömlu safna standast
hrakfallalaust, að hlaupa í kapp við nútím-
ann og ná honum á löngum spretti.
Hér skal ekki dvalið við þá hluti, sem
freista grúskarans að setjast að í húsi þessu
missirislangt: handritasafnið, vögguprenta-
safnið, Landsmálsarkivet, sem Dagur Ström-
báck stýrir, og fleira ótalmargt.
Nýja. Iiáskólasafnið í Höfn.
Nútíminn og ekkert annað en hann er sýni-
Jcgur gesti, sem heimsækir snöggvast hið
stílhreina Universitetsbibliotek II við Tagens-
vej í Kaupmannahöfn. Það er eingöngu ætlað
stúdentum og fræðimönnum í læknisfræði og
raunvísindum. Aðsókn pilta að sumrinu, þeg-
ar ég kom þar, var hverfandi lítil í saman-
burði við þann stúdentahóp, sem sást að
vinnu í Uppsalasafni t. d., en útlán eru þarna
stöðugt mikil.
Auk lestrarsalsins, sem myndin sýnir, er
annar jafnstór ætlaður stúdentum til náms-
bókalestrar. Fast bak við salinn er spjald-
skrárstofa og útlánssalur, sem gengt er í úr
forstofu. Fast bak við þann sal rís 10 hæða
turn, sem rúmar meir en helmingi meira af
bókum en Landsbókasafn og má hækka svo
síðar, að hann rúmi um 600 þús. bd.
Þetta safn fullnægir þeim byggingarkröf-
um, sem nútíminn verður að gera, um að
liafa vegalengdir sem stytztar við alla af-
greiðslu og skráning og öllu eins haganlega
fyrir komið og í verksmiðjum þeim, sem
snjallast eru skipulagðar fyrir starfrækslu
sína. Nákvæm lýsing safnsins yrði oflöng.
Sama er að segja um lýsing spjaldskráningar
og aðra fullkomnun í aðferðum, sem skarai'
þar fram úr mörgum söfnum.
Annar helmingur danska háskólabóka-
safnsins er í gömlu húsi sínu í Fiolstræde og
hýsir m. a. Árnasafn.