Stúdentablaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 18
12
STÚDENTABLAÐ
Hástökk með atrennu:
1. Örn Clausen, stud jur. ....... 1,85 m.,
sem jafnframt er nýtt íslenzkt
met í hástökki innanhúss.
2. Gunnlaugur Jónsson, stud. med. 1,65 —
3. Isleifur Jónsson, stud. polyt.. 1,65 — •
Kúluvarp:
1. Bragi Friðriksson, stud. theol. 14,09 m.
2. Sigui’ður Júlíusson, stud phil 13,80 —
3. Örn Clausen, stud jur. ... 13,70 —
Hindrunarþraut í leikfimi:
1. Baldur Jónsson, stud mag. _____ 88 stig,
2. Siguróur B. Sveinsson, stud. med. 81 stig,
3. Halldór Sigurgeirsson, stud. jur. 77 stig,
Hindrunarþrautin samanstendur af þess-
um atriðum: höfuðstökk, þjófastökk, yfir-
sveifla og terra á slá og hvarf áfram, lóð-
rétt stökk, velta áfram, fleginn köttur í
köðlum, svifstökk, velta afturábak, handa-
hlaup og hástökk beint á. Heildarúrslit
urðu þessi:
1. Laga- og hagfræðideild .... 44,5 stig,
2. Guðfræði- norrænu-
og heimspekideild _______ 38 stig,
3. Læknadeild ...... ...... 31,5 stig,
4. Verkfræðideild ... ..... 18 stig,
Stigagjöf var þannig, að fyrsti maður fær
7 stig, annar maður 5 stig, þriðji maður 4
stig, fjórði 3 stig, fimmti 2 stig og sjötti
maður 1 stig.
Framan af var keppnin nokkuð hikandi,
en eftir því sem á leið, virtust stúdentar fá
méiri áhuga fyrir því að standa sig, hver
fyrir sína deild. Að keppninni lokinni voru
verðlaun afhent og stig tilkynnt. Er óhætt
að fullyrða, að keppni þessi hafi gefizt vel
og áhugi sé vakinn fyrir áframhaldi hennar
á komandi árum.
Ég þekkti einu sinni mann, sem komst
skyndilega í álnir. Hann sagðist ætíð láta
vekjaraklukkuna hringja klukkan sjö, ekki
vegna þess að hann ætlaði sér að fara á fæt-
ur, heldur einungis til að njóta ánægjunnar
við að þagga niður í henni, því þá sagðist
hann sofna svo vel á eftir.
Stúdentum háskólans eru boðin margvís-
leg fríðindi umfram aðra unga menn þjóð-
arinnar, en það þarf sterk bein til að þola
góða daga og öfluga sjálfsstjórn til að þola
mikið frelsi. Það eru of margir, sem þagga
niður í klukkunni, ungi stúdent, þegar kall-
að er á þegnskap og þjónustu i starfi og
félagslífi. Starfið fyrir skólann, fyrir deild-
ina og fyrir ylíkur sjálfa að eflingu félags-
legra samtaka. Starfið að því að byggja það
umhverfi, sem hæfir þroska ykkar og
metnaði og trúnni á lífið.
Sá, er rækir skyldur sínar við þá stofnun,
er liann nemur við, mun rækja skyldur
sínar við þá stofnun síðar meir, er hann
starfar hjá. Einhverjum finnst það ef til vill
ekki skipta máli, hvort hann tekur virkan
þátt í félagslífi skólans, íþróttaæfingum og
deildakeppnum. Svo mun þó reynast, að þeii,
sem þjóna félagslegum hugsjónum í æsku,
muni reynast síðar mestir athafnamenn
liinnar íslenzku þjóðar.
Ef yður langar til að komast í
bréfasamband við einhvern hér á landi
eða erlendis ]iá skrifið til
Bréfaklúhhsins ISLANDIA,
Pósthólf 1014, Iteykjavík,
sem veitir yður allar nánari upplýs-
ingar.
Oft hafa bréfaskipti ókunnugra
skapað varanlega vináttu.
B R f f A K l Ú I) B U R I N N
IUANDIA