Stúdentablaðið - 01.12.1950, Qupperneq 30
24
STÚDENTABLAÐ
fulltrúi skólans ferðast til þeirra staða, er
til greina komu, og þótti fulltrúanum stað-
hættir beztir í Árósum, en lagði ella til, að
tekið yrði tilboði frá Askovskólanum. Standa
yfir samningaviðræður við háskólaráðið í
Árósum, og er úrslita þeirra að vænta innan
skamms.
Ákveðið er, að starfstími skólans verði
þrjár vikur, frá 9.—29. ágúst. Þótti ekki ger-
legt, að tími þessi yrði styttri, ættu nemend-
ur að hafa einhver not kennslunnai* eða
stofna til nokkurra gagnkvæmra kynna.
Fjöldi þátttakenda fyrsta pumarið var ráð-
gerður 236. Frá Danmörku 71, Finnlandi 16,
íslandi 8, Noregi 56 og Svíþjóð 85. Eru hlut-
föll þessi þó ekki fastskorðuð. Hæfir til inn-
töku í skólann eru allir stúdentar og yngri
kandídatar. Norræna ráðið hefur ekki enn
sett heildarreglur um samþykki inntöku-
beiðna, en lög skólans mæla svo fyrir, að sæki
fleiri um skólavist en gerlegt er að veita við-
töku, skuli þeir að jafnaði ganga fyrir, er
nokkurrar þekkingar hafi aflað sér á náms-
efninu.
/Eðsta stjórn Norræna sumarháskólans er
í höndurn Norræna ráðsins, en í því eiga sæti
alls 6 fulltrúar frá öllum Norðurlöndum. Ráð-
ið annast fjárreiður skólans, úrskurðar,
hverjir öðlist skólavist og ákveður námsefni
og kennaraval skólans. Formaður þess er
prófessor dr. phil. Paul Diderichsen. Lands-
deild starfar í hverju landi, og skulu þær
einkum afla fjármagns til starfrækslu skól-
ans. Loks ei'u staðardeildir í hverri háskóla-
borg, sem stjórna umræðuflokkum, taka við
inntökubeiðnum m.m.
Til stofnfundar Norræna sumarháskólans
kom einn íslenzkur fulltrúi. Vegna sérstakra
ástæðna höfðu íslendingar ekki tekið neinn
]iátt í undirbúningi málsins, en fundurinn
samþykkti einróma, að íslendingar yrðu með-
stofnendur skólans, kysu þeir slíkt, og jafn-
framt var mjög óskað eftir hluttöku okkar.
Hinsvegar féllust fundarfulltrúar á, að ls-
land hefði að ýmsu leyti sérstöðu. Gjaldeyris-
ástandi landsins væri þann veg varið, að ill-
gerlegt yrði að yfirfæra hlutfallsgreiðslur
vegna kostnaðar við starfsemi skólans, sem
áætlaður er um 100 þús. danskar krónur, þau
fargjöld, er greiða þyrfti með erlendum gjald-
eyri, og loks dvalarkostnað nemenda. Land-
fræðileg aðstaða Islands væri þannig, að ferð-
ir héðan væru mun lengri og fargjöld dýr-
ari en til greina kæmi um hin Norðurlönd-
in. Vegna þessa var væntanlegum þátttakand-
um frá Islandi þegar boðin ókeypis dvöl í
skólanum, og var boði þessu eðlilega tekiö.
Ég hef átt bréfaskipti við formann ráðsins
um lausn annarra greiðsluvandamála í er-
lendri mynt, en árangur þeirra er enn tví-
sýnn. Á hinn bóginn verður að vinna að því
hið bráðasta, að væntanlegir þátttakendur
héðan þurfi sem minnstu til ferðarinnar að
kosta og helzt engu, þar sem vinnutjón
þeirra eitt yrði nægilegt.
Á því tel ég lítinn vafa, að aðild Islend-
inga að Norræna sumarháskólanum yrði
heilladrjúg. Þar verður grafið eftir kjarna
fræðigreinanna og lýst sambandi þeirra inn-
byrðis. Þar myndast jarðvegur til gagn-
kvæmra kynna og heilla báðum aðilum. En
stúdentar verða sjálfir að öðlast áhuga fyrir
málinu til að gera aðild þessa raunverulega.
Væri þá vel farið.
1. stúdent. Hvers mundirðu óska, ef þú oettir
þrjár óskir?
2. stúdent: Eins mikils brennivís og ég gæti torg-
að.
1. stúdent: Og svo?
2. stúdent: Eins mikils tóbaks og ég gæti reykt.
1. stúdent: Og í þriðja lagi?
2. stúdent (hugsar sig lengi um): Svolítið meira
brennivíns.