Stúdentablaðið - 01.12.1950, Qupperneq 36
30
STÚDENTABLAÐ
Akademiskur annáll
I iáskólahátíðin.
Háskóli Islands var settur 1. dag vetrar að vana,
cn þá hafði kennsla farið fram um það bil mán-
aðarskeið. Viðstaddir setninguna voru boðsgestir
margir, stórmenni þessa lands og annarra. Rektor
háskólans, Alexander Jóhannesson, setti skólann með
ræðu, þar sem hann rakti helztu viðburði skóla-
ársins, sem leið, breytingar á kennaraliði og vænt-
anlegar breytingar á stofnuninni. Þá flutti prófessor
Jóhann Sæmundsson þann vísindalega fyrirlestur,
sem fjallaði um nýjungar síðustu 15—20 ára á sviði
læknisfræðinnar. Að honum loknum ávarpaði rector
nýstúdenta og hvatti þá til dáða og drengiundar,
Dómkirkjukórinn söng í byrjun ,,Ris Islands fáni“,
en að lokum þjóðsönginn. Háskólaborgarabréf fengu
nýstúdentar afhent að athöfninni lokinni, hver í
sinni kennslustofu.
Stúdentaráðskosningarnar.
Kosning í stúdentaráð fór fram laugardaginn 28.
október, en dagana á undan höfðu 4 pólitísku fé-
lögin gefið út hvert sitt blað, sem ætlað væri til
Hann var kominn niður undir sjávarflöt-
inn og flaug nú beint áfram í átt frá landi,
sá græna víðáttu sjávarins fyrir neðan sig
með litlum, síkvikum gárum, og hann lagði
undir flatt og gargaði af kátínu. Foreldrar
hans og systkini voru nú sezt á þessa grænu
flöt og bentu honum að koma til sín og köll-
uðu til hans skrækhljóða. Hann bar fyrir
sig fætur til að koma standandi niður á þenn-
an græna sjó, en fæturnir sukku í. Hann æpti
í skelfingu og reyndi að lyfta sér til flugs
aftur og baðaði vængjunum, en hann var
orðinn lémagna og uppgefinn af þessari ó-
venjulegu áreynslu, og auk þess máttfarinn
af hungri, svo að hann hafði sig ekki á loft.
Fæturnir sukku ofan í sjóinn græna, svo að
kviður hans nam við — og svo sökk hann
ekki dýpra, — hann flaut!
Og í kringum hann var fjölskyldan garg-
andi lof og hól um hann og öll nef á lofti
að rétta honum fiskæti.
Fyrstu flugferðinni var lokið.
sálnaveiða, og kvöldið áður fór fram framboðs-
fundur, þar sem frambjóðendur æfðu mælsku sína,
sjálfum sér og mörgum öðrum til óskiptrar ánægju.
Að þessu sinni komu fram 5 listar, hvað aldrei
hefur komið fyrir áður (síðastl. ár aðeins 3). Félag
frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélag lýðræðissinn-
aðra sósíalista báru nú fram hvort sinn lista, en
höfðu 2 síðastliðin ár staðið saman að einum. Þá
báru verkfræðinemar fram ópólitisíkan lista, sem
að þeirra sögn, var leiðin til að stuðla að fram-
vindu lagabreytinga um stúdentaráð, þar sem öll
afskipti af pólitískum málum séu frá þvi numin,
en fcngin í hendur almennum stúdentafundum.
Kosningin fór þannig; A-listi, listi Stúdentafélags
lýðræðissinnaðra sósíalista, fékk 59 atkvæði og 1
fulltrúa kjörinn í ráðið, Magnús E. Guðjónsson, stud.
jur. B-listi, listi Félags frjálslyndra stúdenta, hiaut
60 atkvæði og 1 mann kjörinn, Ásmund Pálsson,
stud. jur. (1 síðustu kosningum höfðu þessi félög
saman 134 atkv. og 3 fulltrúa). C-listi, listi Félags
róttækra stúdenta, fékk 106 atkvæði (s.l. ár 120
atkv.) og 2 fulltrúa kjörna, þá Ólaf Halldórsson,
stud. mag. og Hreggvið Stefánsson, stud. mag. D-
listi, listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta,
fékk 230 atkvæði (213 s.l. ár) og 4 menn kjörna,
þá Árna Bjcrnsson, stud. jur., Guðjón Lárusson, stud,
med., Kristján Flygenring, stud. polyt., og Sigur-
björn Pétursson, stud. odont. E-listi, listi verkfræði-
nema, hlaut 56 atkvæði og 1 mann kjörinn, Isleif
Jónsson, stud. polyt. 5 atkvæðaseðla voru auðir, en
ógildur einn, og hafa þá neytt kosningaréttar 517
manns, en á kjörskrá voru 614, þar af fjarverandi
40, svo að þátttaka hefur numið 90,7% í ár, cn var
í fyrra 92,6%.
Á fyrsta fundi ráðsins fór fram stjórnarkjör.
Fram komu tveir listar, frá C- og D-lista og eiga
sæti i hinni nýju stjórn þcssir menn: Árni Björns-
son, formaður, Guðjón Lárusson, féhirðir, og Hrcgg-
viður Stefánsson, ritari,
Rússar.
Nýir nemendur á þessu hausti cru 177, en auk
þess hafa 14 áður innritaðir flutzt milli deilda, og
skiptast nýstúdentar þannig milli deilda skólans: