Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 6

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 6
6 STÚDENTAB LAÐ MÁR ELÍSSON, hagfrœðingur: Efnahagsleg samvinna Með tilkomu Efnahagsbanda- lags Evrópu eru í heiminum þrjú stórveldi á sviði efnahagsmála. Fyrir voru, sem kunnugt er ann- ars vegar Bandaríkin og hins veg- ar Sovétríkin ásamt fylgiríkjum sínum. Þróunin í Bandaríkjunum annars vegar og Austur-Evrópu hins vegar hefur á vissan hátt í senn verið fyrirmynd þess, sem nú er að gerast í Vestur-Evrópu og jafnframt svipa, svo sem vikið verður að síðar. Það er því gagn- legt að greina örlítið frá þessari þróun, sem hér um ræðir í Banda- ríkjunum og Sovétríkjunum. Frá aldaöðli hafa þjóðir og þjóðflokkar Evrópu borizt á bana- spjótum og háð styrjaldir sín á milli. I Vestur- og Mið-Evrópu reyndist ekkert ríki nægilega sterkt til að verða uppistaða stórrar pólitískrar og efnahags- legrar heildar. I Austur-Evrópu gerðist ein þjóð, Rússar, nægilega öflug til að leggja undir sig marg- ar smærri nágrannaþjóðir og þjóðflokka í vestri og suðri og leggja grundvöll einnar samfelldr- ar ríkisheildar. Landvinningar hófust í austurátt. Var bæði um að ræða lítt numin lönd Norður- Síberíu og lönd byggð hirðingja- þjóðum og. þjóðflokkum ólíkrar tungu og menningar, sem ekki fengu rönd við reist ofureflinu og voru innlimuð sem nýlendur í Stór-Rússland keisaratímans, og hafa aldrei síðan náð að brjóta af sér okið. Rússneska varð snemma opin- bert mál í hinu víðlenda ríki og síðar gert að skyldunámsgrein í skólum. Flýtti þetta að sjálfsögðu þróuninni. Síðan kommúnistar brutust til valda, er þeir steyptu byltingarstjórn Kerenskys, stuttu eftir að Rússar drógu sig út úr heimsstyrjöldinni fyrri, óx hinni stór-rússnesku heimsveldisstefnu enn fiskur um hrygg í mynd Sov- étskipulagsins og hagnýtti Stalín dyggilega kennisetningar Marx og Lenins málefninu til framdráttar. Þá var og mikið gert að því að flytja til fólk, einkum úr landa- mærahéruðunum. Eftir síðari heimsstyrjöldina juku Sovétríkin enn við veldi sitt sem kunnugt er. Þá brutust og pólitískir skoðana- bræður til valda í mörgum lönd- um Mið- og Austur-Evrópu. Nú eru Sovétríkin og flest önn- ur Austur-Evrópuríki tengd sam- an í þremur meginbandalögum: 1. Kominform, sem er pólitískt bandalag og arftaki Komintern. 2. Varsjárbandalagið, sem er hernaðarbandalag. 3. Comecon, sem er efnahags- legt bandalag á vissan hátt skylt Efnahagsbandalagi Evrópu. Sovétrikin er langsamlega vold- ugasti aðilinn í hinum þremur of- angreindum bandalögum og ráða þar raunar því, sem þau vilja. Um hið síðasttalda bandalag, Comecon, fara fáar sögur og hef- ur merkilega lítið verið rætt um starfsemi þess. Það þýðir þó ekki að starfsemin sé ekki þýðingar- mikil. Vestur- Evrópu Stofnun Comecon átti sér stað skömmu eftir heimsstyrjöldina síðari, nokkru eftir að Marshall aðstoðin svonefnda hófst, og er það bandalag því töluvert eldra en það efnahagsbandalag Vestur- Evrópuríkjanna, sem hér verður aðallega gert að umræðuefni. Comecon var að nokkru leyti mót- leikur Rússa við Marshallaðstoð Bandaríkjanna, sem upphaflega stóð öllum Evrópuþjóðum til boða, einnig Austur-Evrópuþjóð- unum, sem ekki höfðu síður þörf fyrir efnahagslega aðstoð en þjóð- ir Vestur-Evrópu. Rússar meinuðu hins vegar lausnar vandamálum þeirra. Comecon gat á hinn bóginn ekki jafnast á við Marshalláætlunina, ekki sízt vegna þess, að Sovétríkin voru ekki fjárhagslega aflögufær. Bandalagið tók því skjótt á sig mynd efnahagsbandalags, þótt með nokkuð öðru móti hafi ver- ið en annars staðar hefur tíðkazt. Náin samvinna var hafin á sviði f járfestingarmála og einkum í vali fjárfestingarviðfangsefna, þannig, að fljótlega myndaðist verka- skipting milli aðildarríkjanna. Þó var ekki um að ræða neins konar frelsi í fjármagns- eða vinnuafls- hreyfingum eða varðandi stofn- setningu fyrirtækja í þeim skiln- ingi, er við þekkjum til. Um hitt stórveldið, sem nefnt var að framan. Bandariki Norð- ur-Ameríku, þarf ekki að fjölyrða. Þar hafa fjölmörg þjóðabrot runnið saman í eina heild, án nokkurra sérstakra opinberra ráðstafana. Bandaríkin eru gott dæmi um tollabandalag. Alríkis- hugsjónin bar þar samt tiltölu- lega fljótt sigurorð af ríkjahug- sjóninni eða „konfederalisman- um“, þannig að Bandaríkin urðu fljótlega efnahagsleg og pólitísk heild. Óþarfi er á þessum vettvangi að benda á hina miklu möguleika, sem þetta stóra land og fjölmenni markaður hefur skapað banda- rískum iðnaði og verzlun og hin góðu lífskjör, sem íbúar landsins þar af leiðandi njóta. En óhætt er að fullyrða, að rök þeirra Ev- rópumanna, sem benda á hagræði stærðarinnar, vegi mjög þungt á metaskálum þeirra Evrópuþjóða, sem nú eru að koma á hjá sér sameiginlegum markaði. Til gamans og til að gefa ein- hverja hugmynd um þau stærðar- hlutföll, sem hér um ræðir, vil ég nefna hér nokkrar tölur frá 1960, Austur-Evrópuþjóðunum, t. d. er sýna stærð og getu efnahags- Tékkum, að hagnýta sér þessa að- bandalags Vestur-Evrópu annars- stoð, en urðu þá jafnframt sjálfir vegar og Bandaríkjanna og Sovét- að sýna einhverja viðleitni til úr- ríkjanna hins vegar. Vestur-Evrópa Bandaríkin Sovétríkin íbúafjöldi millj 260 181 214 Brúttó þjóðarframleiðsla 305 504 220 Afköst stáliðn. millj. lesta 117 150 72 Raforka billj. kwk 500 840 290 Framl. bifr. í þús 4.770 6.700 140 Kolaframl. millj. lesta 480 427 410 Sement millj. lesta 93 59 50 Utflutningur milljarðar $ 48.0 20.5 6.0 Innflutningur milljarðar $ 53.0 14.7 5.5

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.