Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 8
8 STÚ DENTABLAÐ 1. Þingið, þar sem sæti eiga kjörnir fulltrúar þjóðþinga land- anna sex. 2. Ráðið, þar sem situr einn fulltrúi frá hverri rikisstjórn að- ildarríkjanna. Fer það í raun með æðstu völd bandalagsins. Hlut- verk ráðsins er að tryggja fram- kvæmd samningsins og það, að stefnur aðildarrikjanna á sviði efnahagsmála séu samræmdar. Ráðið getur tekið ákvarðanir með meirihluta atkvæða, og eru atkvæði þátttökuríkjanna þá veg- in eftir stærð þeirra. 3. Framkvæmdastjórnin, sem skipuð er 9 mönnum, sem valdir eru til starfsins til fjögurra ára með tilliti til hæfni, og sem eiga að vera sérlega óháðir og sjálf- stæðir í skoðunum. Fram- kvæmdastjórninni er falið að gera tillögur um ákvarðanir til ráðs- ins. Þessum tillögum verður ein- att ekki breytt nema með sam- hljóða atkvæðum. 4. Dómstóllinn, sem fylgjast á með því, hvort ákvarðanir ráðs- ins og framkvæmdarstjómarinn- ar séu í samræmi við sáttmálann. Stofnun hins sameiginlega markaðar, sem er jafnframt tolla- bandalag, er eins og áður getur einn megintilgangur Rómarsátt- málans. Sá markaður á að ná til allra vara, jafnt iðnaðarvara sem landbúnaðar- og sjávarafurða. Tolla og viðskiptahöft milli land- anna á að fella niður. Samtímis skal settur sameiginlegur tollur gagnvart ríkjum utan bandalags- ins. Tollar milli aðildarríkjanna skulu felldir niður á aðlögunar- tímabili, sem lengst er 12—15 ár. Skal þetta gert í þremur stigum og vera lokið 1970. Ákvæðum um niðurfellingu tolla má breyta með samhljóða atkvæðum ráðsins. Slík ákvörðun var tekin í maí 1960, og ákveðið að flýta tolla- lækkunum. Er nú allt útlit fyrir, að við lok fyrsta stigsins þ. e. hinn 31. des. 1961 muni tollar hafa verið lækkaðir um 50% enda þótt samningurinn geri aðeins ráð fyrir 30% lækkun. Af þessu virð- ist mega draga þá ályktun, að aðlögunin að hinum breyttu markaðsviðhorfum hafi gengið betur en menn gerðu sér almennt von um, og að erfiðleikarnir hafi jafnframt verið minni, en gert var ráð fyrir í upphafi. Þá skulu aðildarríkin við lok aðlögunartimabilsins hafa sett sameiginlegan toll gagnvart lönd- um utan bandalagsins. Aðalregl- an um þann toll er, að hann skuli fundinn, sem óvegið meðaltal af tollum aðildarríkjanna, og er þá Benelux-svæðið tekið sem eitt ríki. Frá þessu eru þó nokkrar undanþágur. Tollur á fullunnum vörum verður yfirleitt hár, en lágur á hráefnum. Staða Islands Það þykir nú mjög sennilegt að Efnahagsbandalag Evrópu muni, á einn eða annan hátt, ná til allra ríkja Vestur-Evrópu. Augljóst er að tilkoma þessa bandalags muni hafa víðtæk áhrif á efnahag og afkomu okkar íslendinga. Á þetta jafnt við, hvort sem við stöndum utan bandalagsins eða innan þess. Stöðu okkar má skýrast ræða með tilliti til þess væntan- lega hagræðis, sem við hefðum af aðild og þess óhagræðis, sem ætla má að leiddi af því að standa utan bandalagsins. Ef litið er á Vestur-Evrópu sem heild er hún langsamlega þýðing- armesti markaður okkar, kaupir rúm 50% heildarútflutnings. Lífs- kjörin eru þar í örum vexti, og þar bíða okkar mikil tækifæri til aukins matvælaútflutnings og útflutnings hvers konar vandaðr- ar iðnaðarvöru. Svo sem fyrr greinir munu nú aðildarríki efna- hagsbandalagsins setja nýjan sameiginlegan toll gagnvart lönd- um utan bandalagsins í stað þeirra tolla, sem áður giltu í hin- um einstöku löndum gagnvart umheiminum. Hinir nýju tollar fyrir sjávarafurðir, aðalútflutn- ingsvöru okkar, eru yfirleitt mjög háir. Lauslega reiknað virðist tollunin á þeim sjávarafurðum, sem nú flytjast til sex-veldanna u. þ. b. þrefaldast vegna tilkomu hins sameiginlega tolls. En í raun og veru verða breytingarnar mun óhagstæðari en þetta, því að tollahækkunin er hvað mest á þeim útflutningi, sem ætla má að mundi geta aukizt verulega frá því sem nú er. Þannig er tollurinn á freðfiski í Benelux-ríkjunum nú enginn, 5% í Þýzkalandi og 10% í Bretlandi. Nýi tollurinn verður 18%. Þá hækkar tollurinn á salt- fisk og skreið á Ítalíu úr 0 í 13%. Á nýjum ísuðum fiski verður 15% tollur í stað núverandi tolls, sem er 0—10% í Þýzkalandi og 10% í Bretlandi. Á frystri og ís- aðri síld hækkar hann í Þýzka- landi úr 0% í 20%. Augljóst er því, að útflutning- ur íslendinga til Efnahagsbanda- lagsins mun bíða hnekki og er erf- ítt að meta hversu víðtæk hin óhagstæðu áhrif munu verða. Vægilega er til orða tekið, þegar sagt er, að um verulegt markaðs- tap verði að ræða og verri við- skiptakjör en áður. Gerist Norð- menn og Danir meðlimir banda- lagsins mun gamanið enn kárna og aðstaða okkar versna. En er þá von til þess að hægt sé að vinna nýja markaði eða selja meira til þeirra, sem við þegar seljum til? Óhætt er að segja, að um nýja stórmarkaði verði ekki að ræða í Afríku, Asíu eða Suður- Ameríku í náinni framtíð. Banda- ríkjamarkaðurinn, sem er okkur þýðingarmikill, mun að öllum líkindum halda áfram að vaxa. Hins vegar þolir hann ekki skyndilegt aukið framboð Við- skiptin við Austur-Evrópumark- aðina eru okkur einnig mikils virði. Ekki er samt líklegt, að um aukningu þeirra geti verið að ræða. Bæði er, að Austur-Evrópu- ríkin auka nú mjög eigin fiskveið- ar og hitt, að þar eru ekki á boð- stólnum margir þeir hlutir, sem við sækjumst eftir, en sem kunn- ugt er fara viðskipti við þessi lönd fram á jafnkeypisgrundvelli. Á hinn bóginn mun nánari efnahagsleg samvinna við Vestur- Evrópu ekki einungis tryggja okkur áframhaldandi aðgang að þeim mikilvægu markaði, sem við höfum þar nú, heldur veitir hún einnig tækifæri á auknum viðskiptum í framtíðinni. Auð- veldara verður að útvega hag- kvæm lán til framkvæmda hér á landi, meira jafnvægi mun skap- ast í þjóðarbúskapnum og örugg- ari vöxtur þjóðarframleiðslunnar mun þar af leiðandi nást. Lokaorð Sameining Vestur-Evrópu er nú í deiglunni og mótun samstarfs- grundvallar langt komið. Þjóðir sem um aldaraðir hafa háð styrj- aldir sín í milli hafa bundizt sam- tökum um friðsamlega samvinnu á sviði efnahagsmála. Árangur þeirrar samvinnu er þegar farinn að koma í ljós. Framleiðsla og viðskipti hafa aukizt og lífskjör batnað, og standa góðar vonir til, að sú þróun haldi áfram með vax- andi hraða. Undirstaða þessarar samvinnu er Rómarsáttmálinn og hljóta allar þjóðir, sem taka vilja þátt í þessu samstarfi, að undirgangast ákvæði hans að ein- hverju eða öllu leyti og fer hag- ræði það, sem af aðild eða auka- aðild hlýzt nokkuð eftir þeim skuldbindingum, sem rikin vilja undirgangast. Island er hluti Vestur-Evrópu menningarlega, efnahagslega og stjórnmálalega. Við getum ekki skorizt úr leik og staðið utan þessarar samvinnu. Slíkt mundi hafa í för með sér rýrnun lífskjara og menningarlega og pólitíska einangrun frá þeim þjóðum, er okkur eru skyldastar. Okkar stærsta vandamál er smæðin og þeir erfiðleikar, sem henni fylgja. Vegna þessa hefur ýmsum orðið starsýnt á nokkur ákvæði Rómarsáttmálans og tal- ið, að þau hefðu í sér fólgnar hættur fyrir þjóðerni okkar, tungu og menningu. Lítil ástæða er þó til að ætla, að þjóðir Vestur-Evrópu vilji í þessum efnum leggja á okkur þyngri byrðar en við teljum okkur geta borið. Ef við sjálfir sýnum ótvíræðan vilja til að taka þátt í þessu samstarfi og hjálpa til að byggja stærri og betri Evrópu, er enginn vafi á því, að við fáum skipaðan þann sess, er okkur einangrun frá þeim þjóðum, er hæfir. Lítil ástæða er því til fyrir okkur — og ekki karlmannleg — að skorast undan öllum skyldum. Menn skyldu forðast að mikla fyrir sér erfiðleikana, og benda á sérstöðu eða nauðsyn und- anþága, þeirra sjálfra vegna, hvort sem þeirra er raunverulega þörf eða ekki. Með því mótinu verður fórnað á altari hræðslu og minnimáttarkenndar ómetanlegu hagræði, sem efnahagssamvinnan getur boðið, ef haldið er á spilun- um af vizku og þekkingu. Teflt skal í senn varlega og djarflega. Eitt er víst, utan þessarar þró- unar megum við ekki né getum staðið.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.