Stúdentablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 21
STÚDENTABLAÐ
21
Framhald af bls. 1 8
sumarfagnað að Hótel Borg, var þar
góður fagnaður. Á þessum fagnaði voru
mættir flestir formenn stúdentaráðs
frá upphafi, en þeir höfðu komið sam-
an fyrir fagnaðinn í tilefni af 40 ára
afmæli SHÍ.
Þennan sama dag sáu stúdentar um
dagskrá i Ríkisútvarpinu. í undirbún-
ingsnefnd þeirrar dagskrár voru: Ing-
ólfur Guðmundsson, stud. theol., Gylfi
Baldursson, stud. philol., Vilborg Svein-
bjarnardóttir, stud. philol., og Jakob
Þ. Möller, stud. jur.
Nýir prófessorar
Cand. mag. Þórhallur Vilmundarson
hefur verið skipaður prófessor í íslenzk-
um fræðum.
Cand. med. Tómas Helgason hefur
verið skipaður prófessor í læknisfræði.
Cand. oecon. Árni Vilhjálmsson hef-
ir verið skipaður prófessor í viðskipta-
fræðum.
Formannaróðstefnur
voru 3 á árinu. Sú fyrsta fór fram i
Helsinki 17. og 18. des. Hana sóttu
fyrir hönd stúdentaráðs Hörður Sig-
urgestsson, stud. oecon., formaður
ráðsins, og Halldór Halldórsson, stud.
med.
Önnur ráðstefnan var í Uppsölum
9.-13. maí og sóttu hana Hörður Sig-
urgestsson og Grétar B. Kristjánsson,
stud. jur., sem hélt áleiðis til Júgóslavíu
í boði stúdentasambands þarlendra að
formannaráðstefnunni lokinni.
Þriðja formannaráðstefnan var
haldin hér í Reykjavík fyrstu vikuna í
október. Þá ráðstefnu sóttu 7 fulltrúar
frá Norðurlöndum, tveir frá hverju
landi nema Noregi, þaðan kom einn,
auk íslenzku fulltrúanna. Auk þess
komu hingað meðan á ráðstefnunni
stóð Joyti Singh, aðalframkvæmda-
stjóri COSEC og Richard Rettig, fyrrv.
form. Bandaríska Stúdentasambands-
ins.
Doktorsvörn
Ein vörn fyrir doktorsnafnbót í
heimspekideild fór fram á árinu. Þann
7. janúar varði Finnbogi Guðmundsson
ritgerð sína, Hómersþýðingar Svein-
bjarnar Egilssonar.
Andmælendur voru dr. Steingrímur
J. Þorsteinsson prófessor, og dr. Jón
Gíslason, skólastjóri.
Fyrirlestur
Próf. Hans Kuhn frá Háskólanum í
Kiel, er hér var viðstaddur Háskóla-
hátíðina til að taka á móti heiðurs-
doktorstitli sínum, notaði jafnframt
tækifærið til að flytja fyrirlestur, er
nefndist: „Um stafsetningu í Konunga-
bók Sæmundar Eddu“. Fyrirlesturinn
var vel sóttur og kunna stúdentar hon-
um beztu þakkir fyrir fyrirlestur
þennan.
Nýstúdemar
að þessu sinni eru 194 að tölu. Flest-
ir eru í læknadeild, 42, þá næst í B. A.
29. Heimspeki fékk 27, viðskiptafræð-
in gómaði 25 stykki; íslenzka og lög-
fræði sitt sautjánið hver. Verkfræði
hlaut 14, efnafræði 9, tannlækningar
8, lyfjablöndun 4, og teólógían 2. Er-
lendir stúdentar í íslenzku eru 17.
Viðskiptodeild
hélt nýlega upp á 20 ára afmæli sitt
með hófi í Herðubreið.. Við það tæki-
færi afhjúpaði Höskuldur Jónsson
fjallaref þann, er í framtiðinni á að
vera helgigripur og átrúnaðargoð
deildarinnar. Flutti hann við það tæki-
færi ræðu eina skörulega, er væntan-
lega verður birt hér í blaðinu einn góð-
an veðurdag. Svo er auðvitað ekki að
spyrja að því, að lærisveinar hinnar
döpru vísinda gerðu sér glaðan dag
fram eftir nóttu, en af því kunnum vér
því miður ekki nánari fréttir.