Fréttablaðið - 23.09.2009, Side 2

Fréttablaðið - 23.09.2009, Side 2
2 23. september 2009 MIÐVIKUDAGUR BORGARTÚNI 29 OPIÐ FRÁ KL 11-19. VER ÐH RU N! Komdu og sparaðu ! Allt að 90% afsláttu r Allir sem versla fá bók að gjöf! (Meðan birgðir endast!) SLYS „Ég man voðalega lítið eftir þessu öllu saman – bara brot og brot úr sjúkrabílnum,“ segir Jón- ína Klara Pétursdóttir, nítján ára stúlka, sem lenti í sérstæðu umferðarslysi undir Höfðabakka- brúnni um miðjan dag í gær. Lög- regla segir mildi að Jónína hafi ekki slasast meira en raun bar. Jónína ók bíl móður sinnar á eftir stórum vöruflutningabíl vest- ur Miklubraut þegar slysið varð. Ökumaður flutningabílsins hafði gleymt að loka hliðarhlera bílsins, sem rakst upp undir brúna, losnaði af og kastaðist á bílinn sem Jónína ók. Að sögn lögreglu er hlerinn um 200 kíló að þyngd. Hann reif þak fólksbílsins nánast af í heild sinni og telur lögregla að hann hafi jafn- framt lent í höfðinu á Jónínu, sem missti meðvitund við höggið. Klippa þurfti Jónínu úr bílnum á eftir. „Mér líður ágætlega núna,“ sagði Jónína þegar blaðamaður náði tali af henni á fimmta tímanum í gær. Hún lá þá enn á sjúkrahúsi en átti von á að fara heim síðar um kvöld- ið. Hún slapp ótrúlega vel en er þó með skurði í andliti og á hnakka. „Annars er ég í fínu lagi,“ segir hún. Lögregla segir augljóst að bíl- stjóri flutningabílsins hafi sýnt af sér gáleysi þegar hann gleymdi að loka hliðarhleranum á bílnum og ók síðan af stað. Of snemmt sé hins vegar að segja til um það hvort hann þarf að axla ábyrgð með ein- hverjum hætti. Sjálf er Jónína ekki gröm út í bíl- stjórann. „Þetta var nú örugglega bara alveg óvart hjá honum,“ segir hún. stigur@frettabladid.is Fékk 200 kílóa fljúg- andi hlera í höfuðið Jónína Klara Pétursdóttir, nítján ára, slapp ótrúlega vel þegar þungur hleri af flutningabíl kastaðist á bíl hennar, reif þakið nánast af honum og slóst í höfuð hennar. „Ég man voðalega lítið eftir þessu,“ segir Jónína, sem er öll að braggast. MIKILL VIÐBÚNAÐUR Loka þurfti Miklubrautinni í talsverðan tíma á meðan Jónína var klippt úr bílnum og henni komið í sjúkrabíl. Á myndinni má sjá Jónínu á börum sjúkraflutningamanna. Í samtali við Fréttablaðið sagðist hún hafa misst meðvitund og myndi lítið eftir atvikum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sigurður, eruð þið farnir að hleypa lömbunum út á haust- in? „Já, þegar allt annað bregst þá fer íslenska sauðkindin í útrás.“ Um þriðjungur af haustframleiðslu lambakjöts verður líklega fluttur úr landi í ár, meira en nokkru sinni fyrr. Sigurður Eyþórsson er framkvæmdastjóri Lands- samtaka sauðfjárbænda. BANDARÍKIN Tvær nýjar rann- sóknir sýna að bann við reyk- ingum hefur víðast hvar haft þau áhrif að hjartaáföllum fækkar verulega, eða um 17 pró- sent að meðaltali og sums staðar um allt að þriðjung. Teknar voru saman upplýs- ingar úr rannsóknum á áhrifum reykingabanns sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópuríkjum. Fyrirfram var búist við því að reykinga- bann myndu fækka hjartaá- föllum. Niðurstöður rannsókn- anna fara þó fram úr björtustu vonum. Rannsóknirnar voru birtar í vísindatímaritunum Circulat- ion og Journal of the American College of Cardiology. - gb Reykingabönn rannsökuð: Hafa fækkað hjartaáföllum STJÓRNMÁL „Við viljum virða þing- ræðið sem best við getum,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sem hafnar alfarið bráða- birgðalögum til að ljúka Icesave- samningnum. Jóhanna segir að niðurstaða í Icesave-málinu liggi væntanlega fyrir þegar þingfundir hefjast á Alþingi að nýju. Ef breyta þurfi lögum fari málið fyrir þingið. „Við förum ekki í neina bráðabirgðalaga- setningu, það er alveg útilokað,“ segir forsætisráðherra. Jóhanna játar þó að mikið liggi á enda hangi mikið á lausn Icesave- málsins. Hún nefnir þar endurreisn bankanna, lánsfjármögnun, láns- fjáreinkunnir matsfyrirtækja, lána- fyrirgreiðslu frá Norðurlöndunum og endurskoðun á áætlun Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. „En hvort þetta eru nokkrir dagar núna til eða frá skiptir ekki máli,“ segir hún. Þá segist Jóhanna vona að það sé sameiginlegur skilningur stjórnar og stjórnarandstöðu að ljúka þurfi Icesave-málinu sem fyrst. „For- sendan fyrir því að við förum með það inn í þingið er auðvitað að við höfum meirihluta fyrir því í þing- flokkunum og ég hef fulla trú á því við höfum það,“ segir Jóhanna sem kveðst ekki hafa hugmynd um hvort afstaða stjórnarandstöðunn- ar hafi breyst frá því síðasta útspil Breta og Hollendinga var kynnt. Þingflokkar stjórnarflokkana hittust í gær á sameiginlegum fundi á Hótel Nordica til að fara yfir verk- efnin sem bíða. - gar Forsætisráðherra segir að nokkrir dagar í lausn Icesave-málsins skipti ekki máli: Engin bráðabirgðalög vegna Icesave FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna Sigurð- ardóttir og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræddu við fjölmiðla fyrir sameiginlegan fund þeirra. FJÁRMÁL Arnar Þór Jónsson, lögmaður 27 erlendra kröfuhafa í Glitni, gerði á fundi skilanefndar með kröfuhöfum í gær alvarlegar athugasemdir við ferli málsins allt frá því bankinn hrundi fyrir tæpu ári. Í samtali við Fréttablaðið segist Arnar Þór ekki að svo stöddu hafa umboð skjólstæðinga sinna til að ræða við fjölmiðla um málið. Þeir eru meðal annars stórir, þýskir bankar. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, segir Arnar Þór hafa gert margvíslegar athuga- semdir. „Hann lýsti óánægju sinna skjólstæðinga með ferlið frá upphafi; hvernig bönkunum var skipt, að Fjármálaeftirlitið skul hafa skipað skilanefnd og það var eiginlega sama hvað það var; hann lýsti eig- inlega allsherjar óánægju með allt,“ segir Árni sem kveðst telja viðkomandi kröfuhafa í raun ekki ósátta heldur fyrst og fremst vera að reyna að styrkja stöðuna sína. Á fundinum í gær var farið yfir samninga sem skilanefndin gerði við ríkið fyrir tíu dögum um það að annaðhvort eignist kröfuhafar í Glitni 95 pró- sent í Íslandsbanka eða fái skuldabréf fyrir kröfum sínum. „Það var almenn ánægja með samningana,“ segir Árni sem kveður nú liggja fyrir að afla við- bótarupplýsinga frá Íslandsbanka áður en ákvörð- un verði tekin á næsta fundi skilanefndar þann 29. september. - gar Lögmaður erlendra kröfuhafa í Glitni gerði miklar athugasemdir hjá skilanefnd: „Allsherjar óánægja með allt“ SKRIFAÐ UNDIR Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, gekk frá samningum um frágang mála bankans fyrir tíu dögum. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Þorsteinn Þorsteinsson skrifuðu undir fyrir ráðuneytið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON DÓMSMÁL Akureyringur um þrí- tugt hefur verið ákærður fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en hann réðst að tvítugum manni í júlí í fyrra og sló hann í andlitið með hækju. Árásin átti sér stað utandyra við Hólabraut á Akur- eyri. Sá sem ráðist var á hlaut mar og bólgur undir hægra auga auk þess sem fimm tennur í honum brotnuðu. Fórnarlambið krefur árásar- manninn um hálfa aðra milljón króna í skaðabætur, auk vaxta. Ákæran var þingfest í Héraðs- dómi Norðurlands eystra í gær. - sh Missti tennur og vill bætur: Ákærður fyrir árás með hækju SUÐUR-AMERÍKA Kólumbískir og mexíkóskir eiturlyfjahringir hafa fært út kvíarnar og komið sér upp bækistöðvum í ýmsum Vestur-Afríkuríkjum til að auð- velda flutning kókaíns á evr- ópskan markað. Gínea-Bissá og hin svonefnda Gullströnd hafa sérstaklega orðið fyrir barðinu á kókaín- flutningum og er nú svo komið að Gullströndin er uppnefnd Kókströndin. Þetta helgast af því að kókaín er dýrara í Evrópu en í Banda- ríkjunum og löggæsla í vest- urhluta Afríku er ekki upp á marga fiska. Kókaínneysla hefur þrefald- ast á nokkrum árum í Evrópu á meðan hún hefur dregist saman um nær helming í Bandaríkj- unum. - asg Bækistöðvar eiturlyfjahringja: Smygla kókaíni gegnum Afríku FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI FJÖLMIÐLAR Enn hefur ekkert verið staðfest um það hver sest í stól ritstjóra Morgunblaðsins. Óskar Magnússon, formaður stjórnar Árvakurs, útgáfufélags blaðsins, segir að nýr ritstjóri verði ráðinn á næstu dögum enda sé brýnt að eyða óvissu hratt. „Það er ekki aðeins vegna ráðningar ritstjórans heldur líka vegna skipulagsbreytinga. Það er ekki hægt að hafa starfsfólkið í óvissu lengi. Það er aðalatriðið í þeirri vinnu sem er í gangi. Það er ekkert sérstakt áhyggjuefni þótt þjóðin sé í óvissu í stutta stund,“ segir Óskar Magnússon. - gar Breytingar á Morgunblaðinu: Óvissan verst fyrir starfsfólk Guðlaugur Jónsson hár- greiðslumeistari lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 21. september eftir baráttu við krabba- mein. Guðlaugur var ættaður úr Svefneyjum á Breiðafirði, sonur Jóns Ólafssonar og Svanfríðar Sól- bjartsdóttur. Hann átti eina systur, Berg- þóru, sem búsett er í Banda- ríkjunum. Sonur Guðlaugs er Svan Gunnar, fæddur árið 1961. Kona hans er Inese Babre. Guðlaugur lærði hárgreiðslu hjá Konuglega hárgreiðslu- meistaranum á Strikinu í Kaupmannahöfn. Um 1960 kom hann til Íslands og vann lengst af á Rakara- og hárgreiðslu- stofunni að Kirkjutorgi 6 í Reykjavík. Guðlaugur Jónsson látinn GUÐLAUGUR JÓNSSON SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.