Fréttablaðið - 23.09.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 23.09.2009, Síða 10
10 23. september 2009 MIÐVIKUDAGUR www.rannis.is/visindavaka Magnús Árni Magnússon forstöðumaður Félagsvísindastofnunar HÍ fjallar um umræður um ESB aðild Íslands og rökin sem notuð eru í henni af fylgjendum og andstæðingum. Umræðan er borin saman við umræðuna á Möltu og skoðað hvað er líkt og ólíkt með umræðunni á eyjunum tveimur. er í kvöld Þriðja VÍSINDAKAFFIÐ Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Menntamálaráðuneytið Iðnaðarráðuneytið föðurlandssvikara Harðsnúin klíka 23.september kl. 20:00 - 21:30 Súfi stinn Iðuhúsinu Allir velkomnir. Láttu sjá þig! H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Bónus heill kjúklingur 30% afsláttur 489.- Auglýsingasími – Mest lesið BANDARÍKIN, AP „Við skiljum alvöru loftslagsógnarinnar. Við erum staðráðin í að grípa til aðgerða,“ sagði Barack Obama Bandaríkja- forseti þegar hann ávarpaði leið- togafund Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, sem haldinn var í New York í gær. „Við munum rísa undir ábyrgð okkar gagnvart kyn- slóðum framtíðar.“ Tilgangur leiðtogafundarins var að undirbúa loftslagsráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember, þar sem á að sam- þykkja framhaldsaðgerðir í stað Kyoto-bókunarinnar sem rennur út eftir tvö ár. Erfiðlega hefur gengið að ná samkomulagi um aðgerðir, og hafa líkur þótt litlar á því að ríki heims geti undirritað nýjan samn- ing í Kaupmannahöfn. Meðal annars hefur staðið á Bandaríkjunum, sem í stjórnar- tíð George W. Bush þóttu heldur áhugalítil um þátttöku í aðgerð- um gegn útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda. Ban Ki Moon, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti ríkjaleiðtogana hundrað, sem mættu til fundarins í gær, til þess að leggja ágreining sinn til hliðar og einbeita sér að því sem gera þarf. Obama lagði í ræðu sinni áherslu á að Bandaríkin muni ekki skorast undan ábyrgð. „Það væri siðferðilega óafsakan- legt, efnahagsleg skammsýni og pólitísk óskynsemi ef ekki tekst að ná samkomulagi í Kaupmanna- höfn,“ sagði hann. Á leiðtogafundinum skýrðu Kínverjar og Indverjar einnig frá metnaðarfullum áformum sínum um að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda næstu áratugina. Bush, forveri Obamas í embætti, kenndi einkum aðgerð- arleysi Kínverja og Indverja um andstöðu sína við að fallast á skuldbindingar fyrir hönd Banda- ríkjanna í þessum efnum. Bandaríkin og Kína bera hvort um sig ábyrgð á 20 prósentum af losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloft jarðar. Evrópusam- bandið kemur næst með 14 pró- sent og síðan bera Rússar og Ind- verjar ábyrgð á fimm prósentum hvorir um sig. Efnahagskreppan í heiminum virðist reyndar ætla að hjálpa eitthvað til, því af hennar völd- um er talið að losun gróðurhúsa- lofttegunda dragist saman um 2,6 prósent á þessu ári, sem er mesti samdráttur losunar í fjörutíu ár. gudsteinn@frettabladid.is Segir Banda- ríkin ekki skorast undan Bandaríkjaforseti ávarpaði leiðtogafund um lofts- lagsmál í New York í gær. Hann segir Bandaríkin ætla að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. OBAMA Í RÆÐUSTÓL Leiðtogafundurinn í New York þykir auka líkurnar á að samkomulag takist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember. NORDICPHOTOS/AFP PÚTÍN Í DÝRAGARÐI Hlébarði virðir fyrir sér Vladimír Pútín Rússlandsfor- seta gegnum rimla í dýragarði í borg- inni Sochi við Svartahaf. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BÆJARSTJÓRN. Ragnheiður Her- geirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg, tilkynnti félögum sínum í Sam- fylkingunni í gær að hún ætli ekki að bjóða sig fram til endurkjörs í bæjarstjórn í sveitarstjórnar- kosningunum næsta vor. Ragnheiður hefur setið í bæj- arstjórn í átta ár og hefur verið bæjarstjóri í þrjú og hálft ár. RÚV greindi frá þessu í gær. Breytingar í Árborg: Bæjarstjóri ætl- ar að hætta RAGNHEIÐUR HERGEIRSDÓTTIR FRAKKLAND, AP Irina Bokava, sendiherra Búlgaríu í Frakk- landi, verður næsti fram- kvæmdastjóri UNESCO, menn- ingarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Stjórn stofnunarinnar þurfti fimm sinnum að greiða atkvæði en tók á endanum Bokava fram yfir Farouk Hosny, umdeildan menningarmálaráðherra Egyptalands. Hosny þótti lengi vel líkleg- ur til að hreppa hnossið, þrátt fyrir að hann stjórni ritskoðun Egyptalands og hafi á síðasta ári hótað að brenna ísraelskar bækur. - gb Nýr framkvæmdastjóri: Irina Bokava stýrir UNESCO HONDÚRAS, AP Manuel Zelaya, hinn brottrekni forseti Hondúras, laum- aðist yfir landamærin aftur á mánu- dag og leitaði skjóls í sendiráði Bras- ilíu í höfuðborginni Tegucigalpa. Þúsundir manna héldu síðan út á götur borgarinnar strax á mánu- dagskvöldið til að mótmæla brott- rekstri Zelayas og fagna endurkomu hans. Fólkið safnaðist saman við sendiráð Brasilíu, dansaði og hróp- aði þúsundum saman langt fram á nótt. Snemma í gærmorgun lét síðan lögreglan til skarar skríða, skaut táragasi á fólkið og hrakti það frá sendiráðinu. Lula da Silva, forseti Brasilíu, ræddi við Zelaya í síma í gær og sagði hann hafa það gott í sendiráð- inu. Leiðtogar nánast allra ríkja í Suður-Ameríku hafa fordæmt brott- rekstur Zelayas frá Hondúras. „Við getum ekki samþykkt að fólk telji sig hafa rétt til þess, vegna pól- itísks ágreinings, að steypa af stóli lýðræðislega kjörinn forseta,“ sagði Silva. „Ef þú ert ánægður eða óánægður með eitthvað þá geturðu fengið því breytt í kosningum.“ Zelaya var vikið úr embætti í lok júní og strax rekinn úr landi. Bráðabirgðastjórnin sem tók við af honum átti greinilega ekki von á því að hann sneri aftur. - gb Manuel Zelaya kominn aftur til Hondúras þremur mánuðum eftir valdarán: Táragas notað á mótmælahóp MANUEL ZELAYA Forsetinn brottrekni talar í símann í sendiráði Brasilíu í Hondúras. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN Rúmlega sextug kona í Flórída hefur verið dæmd til eins árs og eins dags fangelsis- vistar fyrir að hafa geymt lík móður sinnar á heimili sínu í sex ár og hirt ellilífeyri hennar á meðan, alls um 230.000 dollara. Móðirin látna átti rétt á lífeyri fyrir sjálfa sig og einnig fyrir mann sinn, sem hafði gegnt her- þjónustu. Var því um töluverða upphæð að ræða og því lét dóttir- in freistast. Auk fangelsisvistar er konunni gert að endurgreiða alla upphæð- ina með vöxtum. - asg Dæmd til fangelsisvistar: Geymdi lík móður sinnar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.