Fréttablaðið - 23.09.2009, Side 22

Fréttablaðið - 23.09.2009, Side 22
18 23. september 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Hvað ertu að gera hérna? Gleymdirðu að stilla klukkuna á vetrartímann? Þú ... ... hefðir getað sofið í klukku- tíma í viðbót! MikaelogHerdís, þetta eru Andrésog- Drífa... þau voru að flytja hingað. Mér fannst að þið yrðuð bara að kynn- ast, þið eigið svo margt sameiginlegt Hvað er hann að meina? Oh, þessi köttur er nú meiri... hann brýnir klærnar á húsgögnun- um og klínir drullu á gluggana. Klifrar í gardínunum, nagar stofublómin og skilur moldarspor eftir sig á teppinu! Ég er bara að reyna að gera þetta svolítið heimilislegt. Súkkulaði eða vanillu? Bíddu, ég er bara að hvíla hend- urnar. Ætlarðu þá að fá súkkulaði.Sko, mér finnst vanilla mjög góð. En samt er súkkulaði uppáhaldið mitt. En svo fékk ég súkku- laði í gær. Ég verð samt aldrei leið á súkkulaði. Auðvitað væri ég til í að bjóða henni á stefnumót... en hvað ef það neistar ekki á milli okkar? Næturlífið er flutt vestur fyrir læk segja þeir enda nokkrir staðir, fáein-ir góðir, sem hafa sprottið upp vestan Lækjargötunnar undanfarna mánuði. Slíkt getur verið merkileg upplifun fyrir þá sem hafa varla hætt sér á bar vestan Sirkuss undanfarin ár. Að sjá unglingana sem liggja dauðir meðfram 10/11 í Austurstrætinu og fólkið sem bíður syndandi og sálarlaus- um augum eftir úttroðnum fitulöðrandi Hlölla. „Miðbærinn er enginn vígvöll- ur“ segja sumir og fussa yfir siðgæðis- postulum, eins og Agli Helgasyni, sem kvarta yfir skrílslátunum þar. Reykja- vík, nú hún er auðvitað bara eins og hver önnur stórborg þar sem fólk fer út að skemmta sér, og lætur stundum svolítið illa rétt eins og annars staðar. Hingað til hefur maður líka vanist ýmsu og kippir sér ekki upp við slagsmál eða að sjá slefandi stelpur pissa á götuhornum. Þar sem við skötuhjúin búum örlítinn spöl utan miðbæj- arins hefur það verið áhugavert að ganga á haustkvöldum yfir Skólavörðuholtið og núna yfir Lækjargötuna til að kíkja í bjór og hitta vini. Þegar líður að miðnætti er ekki hægt að tala saman fyrir öskrum í fólki, því ölvaðir Íslendingar öskra í staðinn fyrir að tala, rétt eins og morðóðir víkingar. „SIGGI!“ æpir annar hver maður í eilífri leit að einhverjum Sigga og á leiðinni rúlla sokkabuxnalausar skinkur út úr leigubílum og hafa hátt. Síðasta helgi gerði þó alveg útslagið þegar góður vinur á gangi í miðbænum lenti í því að ókunnugur maður hálfpartinn datt ofan á hann. Áður en hann vissi hvaðan á sig stóð veðrið var sá ofur- ölvaði búinn að bíta hann, þéttingsfast í gegnum gallabuxurnar, í typpið! Er miðborgin ekki orðin að vígvelli þegar maður þarf að ganga með punghlíf? Myrkar miðaldir miðbæjarins NOKKUR ORÐ Anna Margrét Björnsson Fundarstjóri Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands 14:00 Ávarp menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur 14:10 Vísinda- og rannsóknastarf í íþróttum og heilsu á Íslandi Dr. Erlingur Jóhannsson deildarforseti íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfa- deildar Háskóla Íslands, Laugarvatni 14:30 Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði: háskólastofnun á landsbyggðinni Dr. Ragnar Sigbjörnsson forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði, Selfossi 14:50 Gunnarsholt: Miðstöð rannsókna í uppgræðslu, frærækt og uppbyggingu vistkerfa Dr. Guðmundur Halldórsson rannsóknastjóri Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti 15:10 Árangursmælingar verkjameðferðar á HNLFÍ Sigrún Vala Björnsdóttir bæklunarsjúkraþjálfari við Heilsustofnun Náttúru- lækningafélags Íslands í Hveragerði, lektor og doktorsnemi í HÍ og styrkþegi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Fræðslunets Suðurlands 2007/2008 15:30 Háskólasetur Suðurlands: Landnotkunarsetur Háskóla Íslands Dr. Tómas Grétar Gunnarsson forstöðumaður Háskólaseturs Suðurlands, Selfossi og Gunnarsholti 15:50 Málþingsslit Steingerður Hreinsdóttir formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands 16:10 Vígsla Glaðheima – húsnæðis Háskólafélags Suðurlands, Háskólaseturs Suðurlands og Fræðslunets Suðurlands Tónlist og léttar veitingar Háskólafélag Suðurlands er einkahlutafélag í eigu sveitarfélaganna á Suðurlandi. Tilgangur félagsins er að auka búsetugæði og styrkja efnahag á Suðurlandi með uppbygg ingu þekkingarsamfélags. Málþingið er öllum opið en sveitarstjórnarmenn, vísindamenn og aðrir áhugamenn um vísindi og rannsóknir á Suðurlandi eru sérstaklega hvattir til að sækja þingið. Málþing Háskólafélags Suðurlands um rannsóknir á Suðurlandi föstudaginn 25. september 2009 í Fjölbrautaskóla Suðurlands

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.