Fréttablaðið - 23.09.2009, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 23. september 2009 21
Leikstjórinn Milos Forman lýsti
því yfir á blaðamannafundi
á mánudaginn að hann hefði
ætlað að gera mynd um skák-
einvígi Bobbys Fischer og Boris
Spasskíj. Erfitt skap Fischers
hefði hins vegar átt sinn þátt í því
að Forman ákvað að hverfa frá
þeirri hugmynd. Hann virðist þó
ekki alveg hafa gefið myndina frá
sér endanlega því Forman mun
heimsækja leiði íslenska skák-
snillingsins að Laugardælum í
dag ásamt fulltrúum Saga film.
Hugmyndin er víst að skoða
heppilega tökustaði ef af mynd-
inni verður í náinni framtíð en
fáir eru eflaust betur til þess
fallnir að gera mynd um skák-
snillinginn. Leikstjórinn á jú
að baki myndir um umdeilda
menn á borð við Mozart, Larry
Flynt og Andy Kaufman í Man
on the Moon. „Við munum bara
fara með hann þangað sem hann
vill fara. Ef hann vill sjá Þing-
velli þá förum við þangað og ef
hann vill sjá Eyjafjöll þá verður
bara farið þangað,“ segir Krist-
inn Þórðarson hjá Saga film. „Við
eigum bara að vera búnir að skila
honum heim fyrir kvöldmat.“
Annars virðist Forman vera
að koma sér vel fyrir í haustblíð-
unni í Reykjavík því til hans sást
meðal annars á Hressó í gær þar
sem hann drakk malt og íslenskt
brennivín og reykti risastóra
vindla.
Keisha Buchanan, einn meðlimur
stúlknasveitarinnar Sugababes,
hefur sagt skilið við sveitina. Heidi
Range og Amelle Berrabah halda
áfram samstarfi sínu og fá til liðs
við sig nýjan meðlim. Buchanan
mun halda samstarfinu við útgáfu-
fyrirtækið Island Records áfram,
en nú sem sólólistamaður. Keisha
er eini meðlimur sveitarinnar
sem hefur verið með frá upphafi,
en hún gekk til liðs við Sugababes
aðeins þrettán ára gömul og hefur
því verið í tónlistarbransanum í
ein ellefu ár.
„Kæru vinir, mér þykir leitt að
tilkynna ykkur að ég er ekki lengur
hluti af Sugababes. Ég hef skemmt
mér konunglega og náð lengra en
mig hefði nokkurn tímann órað
fyrir. Það var ekki ósk mín að
yfirgefa sveitina en ég lít á þetta
sem nýjan kafla í ferli mínum. Ég
hef aðeins jákvæða hluti að segja
um stúlkurnar og óska þeim alls
hins besta í framtíðinni,“ skrifaði
Keisha á Twitter-síðu sinni.
Hætt í Sugababes
MEÐLIMASKIPTI Keisha, lengst til hægri,
hefur ákveðið að segja skilið við Suga-
babes. NORDICPHOTOS/GETTY
ELSKAR UMDEILDA MENN Milos Forman
er eflaust betur til þess fallinn en
margur annar að gera mynd um Bobby
Fischer.
Söngkonan Jessica Simpson varð
fyrir því óláni að týna hundi
sínum fyrir einum mánuði. Vinir
söngkonunnar hafa í kjölfarið
verið nokkuð duglegir við að ræða
einkamál Simpsons við bandarísk
slúðurblöð. „Hundurinn Daisy var
barnið hennar. Hvarf hennar mun
koma Jessicu í mikið ójafn-
vægi. Þegar Jessica var
sorgmædd grét hún sig í
svefn með Daisy í fang-
inu. Jessica getur verið
mjög uppáþrengj-
andi. Hún er mjög
ljúf en vegna þess
hversu uppáþrengj-
andi hún er þá á fólk
erfitt með að umgang-
ast hana. Hún þolir
ekki einveru, hún kæfir
fólk. Hún á sér heldur
engin áhugamál og Daisy
var því einmitt það sem
Jessica þurfti á að halda,“
sagði vinur söngkonunnar
í viðtali við People Mag-
azine.
Kæfir fólk
Heimsækir leiði
Bobbys Fischer
Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen
vakti nokkra athygli fyrir tónlist-
armyndbandið við lagið sitt Super-
time, sem var frumsýnt í sumar. Nú
er annað myndband komið í spilun
á Youtube.com og þykir ekki síðra.
Myndbandið er við lagið Lover In
The Dark, sem er titillag væntan-
legrar plötu hljómsveitarinnar.
„Ég fór alla leið til Svíþjóðar til
að gera myndbandið. Tveir sænskir
strákar, Farzad Farzaneh og Vikt-
or Gårdsäter, sem vinna við mynd-
bandagerð vildu taka verkefnið
að sér og buðu mér út í gegnum
tengslanet. Myndbandið er gert í
„stop-motion“ sem þýðir að það er
sett saman úr fjölda ljósmynda.
Ég þurfti að standa á öðrum fæti
í tæpa fjórtán klukkutíma á meðan
verið var að taka myndirnar og
búninginn sem ég klæðist fékk ég
að hluta til hjá mömmu vinar míns
sem vinnur sem flugfreyja,“ segir
Davíð.
Hljómsveitin Berndsen sam-
anstendur af Davíð sjálfum og
Sveinbirni Thorarensen, sem starf-
ar einnig undir nafninu Hermig-
ervill. „Það er von á fyrstu plöt-
unni frá okkur innan skamms,
þangað til gerum við bara nógu
mikið af flottum myndböndum og
vekjum athygli á okkur þannig.“
Berndsen er á meðal þeirra
hljómsveita sem munu leika á tón-
leikahátíðinni Réttum sem hefst í
dag. Tónleikarnir eru jafnframt
fyrstu tónleikar hljómsveitarinn-
ar. Davíð segist ekki kvíða því að
stíga á svið í fyrsta sinn. „Það er
ekki hægt að vera kvíðinn þegar
maður spilar svona seint því áhorf-
endur verða orðnir svo fullir.“
- sm
Fékk föt hjá mömmu vinar síns
BERNDSEN Davíð Berndsen segist ekki
kvíða því að stíga á svið í fyrsta sinn, en
hljómsveitin spilar á Batteríinu á föstu-
dagskvöld á Réttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
0
9
-1
7
0
5
Við erum stolt af því að styðja FH
Til hamingju
meistarar!
Íslandsmeistarar 2009
Íslandsmeistarar 2008
Bikarmeistarar 2007
Íslandsmeistarar 2006
Íslandsmeistarar 2005
Íslandsmeistarar 2004
Samfelld sigurganga