Stúdentablaðið - 01.10.1983, Síða 15
STÚDENTABLAÐIÐ
15
Hvad kostar kaffid?
Eins og flestum er kunnugt eru reknar kaffistofur í allflestum
húsum hér á lóðinni. Félagsstofnun rekur kaffistofur í Lögbergi,
Árnagarði og í aðalbyggingu. I húsum Verkfræði og raunvísinda-
deildar reka nemendur sjálfir sínar kaffi og gossölur svo og í Jarð-
fræðihúsinu. Þeir nemendur sem stunda nám á öðrum vígstöðum
en hér á lóðinni hafa ýmist kaffiaðstöðu á spítölunum t.d. lækna-
nentar eða þá þeir hafa sínar eigin kaffivélar og kaffisjóði.
Ritnefnd og ritstjórar ákváðu að gera könnun á verði á þeim
kaffistofum sem stúdentar reka sjálfir og þeim kaffistofum sent FS
rekur.
Niðurstöðurnar fara hér á eftir og getur hver og einn dæmt fyrir
sigog svarað þeirri spurningu með sjálfum sér: ,,Hvort það efli ekki
almenna siðferðiskennd manna að vera trúað fyrir því að rækta
garðinn sinn sjálfir?"
Kaffistofan í
Jarðfræðihúsinu
„Noregsfarasjóður jarðfræðinema
rekur kaffistofuna og leggur á
liverja vörutegund 3—4 kr. eftir
aðstæðum. Gróðinn er síðan not-
aður til styrktar námsferð jarð-
fræðinema til útlanda. Undanfarin
úr hefur reksturinn gengið mjög
vel. Fólk bregður sér liingað inn
tekur það sem það langar í og skilur
eftir peninga fyrir því sem það tók,
í þar til gerðri glerkrukku. Fólk er
almennt mjög heiðarlegt og á því
byggist reksturinn," sagði Bryndís
Stefánsdóttir umsjónamaður kaffi-
stofunnar í Jarðfræðihúsinu.
Umrædd kaffistofa er til húsa í
litlu býtibúri á fyrstu hæð jarð-
fræðihússins. Fyrirframan býtibúrið
er aðstaða fyrir 6—8 manneskjur,
til að tylla sér. Þarna er opið allan
Býtibúrið í Jarðfræðihúsinu
sólarhringinn ef svo ber undir þó
oft sé bakkelsið búið þegar halla
tekur degi.
Vöruúrvalið er ágætt og verðið
enn betra eins og sjá má ú eftirfar-
andi lista. Kaffi 5 kr. Snúðar 15 kr.
Sérbökuð vínarbrauð 15 kr. Kringl-
ur 9 kr. og gos 18. kr.
Ennfremur gat Bryndís þess að
til stæði að vera með rúnstykki og
heilhveitihorn. „Það er stelpa
hérna í deildinni sem ætlar að
koma við í bakaríi á morgnana og
kaupa brauðvöru, síðan eru aðrir
sem taka að sér sjálfboðavinnu að
smyrja og ganga frá því sem á boð-
stólum er," sagði Bryndís að lok-
um.
Læknakaffi
Af kaffimálum lesandi lækna-
nerna er það að segja að lesstofan í
Árrnúla 30 hefir ekki lekið til starfa
vegna breytinga. Því er einskis
kaffis neytt þar enn sem komið er.
í lesstofunni að Tjarnargötu 39
er kaffisjóður sem menn borga í
jafnóðum er þeir fú sér kaffi. Kost-
ar bollinn 4 kr. Ekkert meðlæti er á
boðstólum. en stutt í sjoppu og
bakurí. Uppáhellingar eru á ábyrgð
neytenda sjálfra.
Þeir nemar sem lesa og sækja
fyrirlestra á Árnagarði og í Lög-
bergi búa að sjálfsögðu við kaffi-
þjónustu Félagsstofnunar.
Læknanemar eru mikið ú
sjúkrahúsum eins og kunnugt er.
Til gamans má geta um verðlag
þar. Á ríkisspítulum (Landspítal-
anum, Kleppi, Vífilsstöðum) kostar
kaffi 9 kr. í miðum. Borgi maður
22,50 kr. í miðum fær rnaður að éta
eins mikið af meðlæti og maginn
leyfir. ef manni finnst það þá þess
virði. — Á Borgarspítalanum er
svipað verð á kaffi en meðlæti er
verðlagt eftir magni. Sömu sögu er
að segja um Landakot.
Þess má geta að spítalakaffi er að
öðru jöfnu frægast fyrir það að vera
ódrekkandi óþverri. S.
Lögberg, Árnagarður
og aðalbygging H.í.
Félagsstofnun stúdenta rekur
kaffistofu í þessum þremurhúsum.
Þar eru fastráðnar konur sem sjá
um afgreiðsluna, uppvask og fleira.
Á þessuni kaffistofum eru enn-
frernur sæti fyrir nokkurn fjölda
fólks. Vöruúrvalið er prýðilegt af
gosi, slíkkeríi allskonar, sæta-
brauði, tveim tegundum af sam-
lokum, kaffi og tei. Opnunartími er
frá 9—15.30.
Verðið ættu flestir sem sækja
þessar kaffistofur að þekkja en ekki
sakar að rifja það upp.
Kukkclsi
Kökusneiðar ............... 17—20 kr.
Tertubitar................. 20—40 -
Snúðar ......................... 20-
Tebollur........................ 20-
Kleinuhringir................... 14 -
Vínarbrauð...................... 20-
Kókóstoppar .................... 15 -
Brauðsneið m. smjöri ........... 16 -
sama + ostur.................... 22 -
Ristað brauð á sama vcrði.
Brauð m. kjötáleggi............. 25 -
Rúnstykki m. smjöri ............. 19-
sama + ostur.................... 22 -
Úr Stúdentakjallaranum
sama + skinka...................... 29.50 -
Heilhveitihorn m. smjöri .......... 29.50-
sama + ostur....................... 32 -
Flatakaka m. hangikjöti............ 38 -
-hálf er á......................... 22 -
Drykkir
Kaffi, te ............................. 7 -
Heitt vatn......................... 4 -
Kókó................................. 16-
Mjólk ............................. 11 -
Gos úr vél......................... 21 -
Gos úr flöskum ....................... 30 -
Pilsner úr vél ...................... 32-
Ö1 í flöskum.................. 36—50 -
Ávaxtasafi ........................... 21 -
Annað
Samloka............................ 50 -
Heit samloka ......................... 51 -
Ávextir .......................... 13,50-
Verðskrá þessi nær einnig til
mötuneytisins og Stúdentakjallar-
ans. Þess ber þó að geta að í kjall-
aranum hækkar allt verð um 7
krónur eftir klukkan 7 á kvöldin.
Tebúrið
Svo nefnist býtibúr verk- og raun-
nema, staðsett á annarri hæð í VR
2. Inni í þessu herbergi. sem er
varla meira en 4 fermetrar, er lítil
eldhúsinnrétting og laust borð. Á
þessu borði sem stendur í dyra-
gættinni eru þrjár sjálfvirkar kaffi-
könnur. mjólk i fernu, molapakki.
bunki af plastglösum, plasthrærur,
bakkelsi og peningar. Þarna er
sjálfsafgreiðsla, maður tekur,
borgar og gefur sér til baka. Upp á
vegg er svo verðskrá sem er birt öll
hér og krossað við það sem var til
þegar tíðindamenn Stúdentablaðs-
ins bar að garði.
Kaffi m. glasi 9 kr. X
Kaffi 8 - X
Mjólk með glasi 7 - X
Mjölk 6 - X
Snúðar 12- X
Rúnstykki .. . 6 -
Kökusneið .. 10- X
Heilhveitihorn 8 - X
Kornstangir . 10- X
Kringlur 7 -
Smurostur . . 3 - X
Bananar 10-
Kleinuhringir 7 -
Bakkelsið reyndist með ágætum
að annarri kökutegundinni undan-
skilinni, sem var heldur hörð.
Mjólkin var köld og kaffið ágætt
(af vélarkaffi að vera), en heldur
þótti mér nú slappt að ekki skyldi
fást te í búllu með þessu nafni.
Þá sem standa að baki þessum
rekstri er að finna í kennslustof-
unni beint á móti. Það eru 4. árs
nemar i vélaverkfræði, 7 manna
hópur sém skiptir með sér verkum.
En gefum þeim orðið:
— Deginum er skipt í þrjár
vaktir og er einn um hverja. Þannig
er hver ntaður 2—3 sinnum i viku,
en opnunartími er frá 7 á morgn-
ana til 10 á kvöldin alla virka daga
en um helgar er óreglulegur opn-
unartími.
— Nei við vöknum ekki fyrir
sjö, það er „timer“ sem sér um að
kveikja á könnunni. Brauð og
bakkelsi kemur klukkan 8 á
morgnana og er yfirleitt búið
seinnipartinn. Álagningin á því er
ekki mikið meiri en til að dekka
rýrnun. — t.d. erum við ódýrari en
bakaríið hérna úti. Gróðinn er af
sjálfu kaffinu. hitt er til að trekkja
að.
En er engu stolið?
Nei fólk er heiðarlegt og eins
kemur nálægð okkar stofu í veg
fyrir það. Það er þá helst á kvöldin,
kannski eru það bara krakkar. Við
erum í beinni sjónlínu og hér er
alltaf einhver. Það eru alltaf ein-
hverjir í tímum frarn til kl. 5, og
eftir það sitja menn hér og lesa.
Það væri varla hægt að reka þetta
annarsstaðar frá en úr þessari stofu,
hér er stöðugt rennerí, það vantar
mjólk, mola eða glös.
Aðspurðir viðurkenndu þeir að
kaffiverðið væri helst til hátt miðað
við FS. en komið til vegna mistaka.
Þeir töldu að F-S myndi halda í við
verðbólguna og ákváðu sitt verð
áður en FS-stofurnar opnuðu í
haust. Þar kostar kaffið nú 7 krónur
en ætti að kosta rúmar 11 ef miðað
væri við verðið í fyrra.
Hversu mikil eru viðskiptin?
Því getum við ekki svarað enda
svo nýbyrjaðir. Það er hellt upp á
sirka fimm 36 bolla könnur á dag.
En þeir eru ánægðir með að fá að
reka sína eigin kaffistofu strákarnir
og vildu síst af öllu fá aðra í þann
bransa.
Sjoppan
Næst förum við niðrá fyrstu hæð
í VR 2. Þar reka 3. árs nemar í raf-
magnsverkfræði sjoppu í frekar lít-
illi kennslustofu. Ágóðann hyggjast
þeir nota til að fjármagna námsferð
úti lönd á sumri komandi.
Þarna er 15 manna hópur sem
skiptir með sér vinnunni, taka einn
dag í einu. Þannig þarf hverað taka
dag á tveggja til þriggja vikna fresti.
Opnunartími er frá 8—7 virka
daga. Um helgar er hann óreglu-
legur en þó yfirleitt opið allan dag-
inn á laugardögum. Vöruúrvalið
er nokkuð fjölbreytt eins og verð-
skráin sýnir og voru aðeins tvær
tegundir sem gengnar voru til
þurrðar þegar tíðindamaður Stúd-
entablaðsins mætti á staðinn.
Drykkir o.þ.h.
Gos (aðeins
seldar tegundir
frá Vífilfelli) 17—20 kr.
Ávaxtasafar . . 13 -
Kókómjólk .. 15-
Jógúrt........ 19 -
Reykföng o.þ.h.
Eldspýta 1 stk. 20 au.
Eldspýtustokkur 5 kr.
Sígaretta.... 5 -
Vindill....... 10-
Sælgæti
Florida...... 13 kr.
Hnetustaur... 13 -
Hraun........ 12 -
Karamellur... 2 -
Krembrauð .. 15-
Kúlur......... 2 -
Malta ............... 12-
Nissa........ 18 -
Nóa......... 12-
Pipp .................. 20 -
Prins póló . 20/12’-
Pops.................. 15 -
Rommy ............... 12-
Síríuslengja .. 10-
Tópas........ 12 -
Æði......... 10-
Hjúplakkrís .. 4 -
Eins og í Tebúrinu fer þarna að
mestu fram sjálfsafreiðsla og geng-
ur ágætlega að treysta á heiðarleik
manna. Oftast er samt einhver við-
látinn enda í nógu að snúast. Um
innkaup sér ákveðinn maður og
annar um peningamálin. Einn yf-
irkóngur gín svo yfir öllu.
Aðspurðir töldu strákarnir við-
skiptin kannski heldur meiri uppi í
Tebúrinu en veltuna þó engu minni
hjá þeim enda dýrara að fá sér kók
og prins en kaffi og snúð.
Kaffi eftir andann.