Stúdentablaðið - 01.10.1983, Page 16
(ljósmynd Guðni B. Guðnason.)
Munið að gefa öndunum
Leiðréttingar — eöa
sjálfsgagnrýni ritstjóra
Ekki verður annað sagt en
að nokkuð hafi verið kastað til
höndunum við tæknilegan
frágang á síðasta blaði. Er hér
nokkuð sem skrifast að hluta
til á reikning prentstofu en
ekki síður á prófarkalestur
okkar ritstjóra. Verður hér
aðeins fátt eitt talið.
Á baksíðu er mynd af fólki í
þungum þönkum. Undir
henni átti að standa: „Verður
haustið heitt?“ Frá fundi
námsmannasamtakanna með
Dan Smith. (Ljósm. Þjóðvilj-
inn). Ein meinleg prentvilla
var á baksíðu þar sem sagði að
Stúdentaráð ályktaði um
hugvélar. Hér átti að sjálf-
sögðu að standa: Um flugvél-
ar. Á blaðsíðu 12 mátti sjá
orðið fyrirliggjandi með
tveimur yfsilonum í auglýs-
ingu frá húsnæðismiðlun. Á
sömu síðu er fjölritunaraug-
lýsing án þess að auglýsanda
sé getið. Þar er Háskólafjöl-
ritun, 2. hæð í FS sem auglýsir.
Fleira mætti telja enda full-
víst að svona slæmur hefur
frágangurinn ekki sést lengi.
Ritstjórar heita því að standa
sig betur hér eftir jafnframt
því að haft hefur verið sam-
band við prentstofuna sem
lofar bót og betrun. b. ogj.
........... ' \
Ahugaljósmyndarar,
teíknarar listamenn, ungt
skapandi fólk á uppleið
Hjálp
Er ekki til einhver sem vill fá uppáhaldsljósmyndina
sína birta á forsíðu eða baksíðu. Langar ekki einhvern
að koma sínum aðskiljanlegustu teikni- eða skrípa-
myndum (nú eða bara myndum) á framfæri. Er ekki til
fullt af mönnum sem iða í skinninu eftir að koma
sínum fínustu hugverkum á framfæri.
Okkur vantar alltaf myndir, bæði á forsíðu og til
myndskreytinga með greinum. Ekki nóg með að við
séum að birta sömu andsk. myndirnar hvað eftir annað
heldur eru vel flestar stolnar úr erlenduni tímaritum
eða okkur óviðkomandi blöðum.
Ljósmyndarar! Hvað segið þið til dæmis um að
smella af svo sem einni filmu hérna á lóðinni. Ykkur að
kostnaðarlausu. Okkur vantar myndir úr kennslu-
stundum, af háskólaráðsfundum, deildarfundum, úr
kaffistofunum og úr daglega lífinu, af vinnuþjökuðum,
aðþrengdum og auralausum námsmönnum ... og
mörgu fleira.
Fyrir alla muni hafið samband, síminn hjá okkur er
28699.
7
Afsláttur sem kom of seint
Vonandi er nú flestir búnir að ná
í sitt skólaskírteini og þar með af-
sláttarkort Stúdentaráðs. Að þessu
sinni er kortið gefið út í samvinnu
við BÍSN og LMF og eru á því
margir nýtilegir afslættir. En einn
varð eitthvað útundan og komst
seint til skila. Það er 15% áskriftar-
afsláttur að Vikunni sem er hér
með komið á frantfæri.
SLIJÐUR
r
Afram strákar
Gott og göfugt var það, þegar í
síðasta blaði var hrópað áfram
stelpur. En nú krefst ég þess að það
verði hrópaðÁFRAM STRÁKAR,
og það ekki af nauðsynjalausu. S.l.
vor voru kosnir átta nýir strákar í
Stúdentaráð. Jæja nú átti maður
von á að sjá þessa nýju „pleyboja"
fjölntenna á aðra hæð FS. Þetta eru
jú strákar á æfingavellinuni víð-
fræga. Menn með fyrrverandi
bjarta framtíð að baki byrjaðir að
æfa sig í stjórnarstörfum. En er æf-
ingavöllurinn að bregðast? Því einu
strákarnir sem ég kem auga á eru
gömlu harðjaxlarnir, mér virðast
þessir nýju tæplega þora að mæta á
fundi en það hafa þó nýju stelp-
urnargert og staðið sig vel. En nýju
strákarnir eru sennilega hræddir
við kvennabyltinguna og þar af
leiðandi ... J.
Hurðaskellir í Félagi
Vinstri Manna
Við hér í slúðurdálknum bein-
línis lifum á ósætti meðbræðra
okkar. Síðast skýrðum við frá erf-
iðleikum í sanrstarfi meirihlutans.
Nú er það afturá móti Félag vinstri
manna sem pupullinn hefur milli
tannanna. Þar eru ekki allir jafn
ánægir með alræði umba yfir
Stúdentablaðinu. Minnast menn
þeirra góðu daga er þeir voru sjálfir
í stjórnarandslöðu en höfðu þó
annan ritstjórann innan sinna vé-
banda. Sú skoðun virðist þó hafa
náð meirihlutafylgi að núverandi
ritstjórar séu nógu andskoti rauðir.
Engin eining náðist enda um rit-
stjóraefni FVM, Einar Guðjóns-
son. Það er sami kjarninn og á sín-
um tínia var ekki alltof ánægður
með að ganga til samstarfs við
umba og nú vill ritstjóraskipti.
Enn urðu einhverjar ýfingar
innan félagsins á fundi þar sem
umræðuefni fyrir 1. des var ákveð-
ið. Einhverjir höfðu ráðgert að
dregin yrði upp sígild krafa: ísland
úr Nató — herinn burt, (og enn
tengist ritstjóri Stbl. málinu) en
meirihluti fundarmann hafnaði
þessu og ofaná varð; „Sjálfstæði",
er það eitthvað oná brauð.
Umbar
eiga aftur á móti ekki við neina
óeiningu að etja á sínum fundum.
Fjöldi fundarmanna leyfir ekki
nema eina klíku . . .
Frá mennta-
mála ráöu-
neytinu
Styrkir til náms
í Sambandslýðveldinu
Þýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykja-
vík hefur tilkynnt íslenskum
stjórnvöldum að boðnir séu
fram eftirtaldir styrkir handa
íslendingum til nárns og
rannsóknastarfa í Sambands-
lýðsveldinu Þýskalandi á
námsárinu 1984—85:
1. Fjórir styrkir til háskólá-
nárns. Umsækjendur skulu
hafa lokið a.m.k. tveggja ára
háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að
sækja þýskunámskeið sumar-
ið 1984. Unrsækjendur skulu
hafa lokið eins árs háskóla-
námi og hafa góða undir-
stöðukunnáttu í þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vís-
indamanna til námsdvalar og
rannsóknastarfa uni allt að
fjögurra niánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa
skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík. fyrir 1. nóv-
ember n.k. Sérstök umsókn-
areyðublöð og nánari upplýs-
ingarfást í ráðuneytinu.
Styrkir til háskóla-
náms í Sviss
Svissnesk stjórnvöld bjóða
fram í löndum seni aðild eiga
að Evrópuráðinu sjö styrki til
háskólanáms í Sviss háskóla-
árið 1984—85. Ekki er vitað
fyrirfram hvort einhver þess-
ara styrkja muni koma í hlut
fslendinga. Styrkirnir eru ein-
göngu ætlaðir til framhalds-
náms við háskóla og eru veittir
til 9 mánaða nántsdvalar.
Nauðsynlegt er að umsækj-
endur hafi nægilega þekkingu
á frönsku eða þýsku og þurfa
þeir að vera undir það búnir,
að á það verði reynt nreð
prófi. Umsækjendur skulu
eigi vera eldri en 35 ára og
hafa lokið háskólaprófi áður
en styrktímabil hefst. — Um-
sóknir um styrki þessa skulu
sendar menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 1. deseniber
n.k. á tilskildum eyðublöðum
sem þar fást.
Styrkir til náms
í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða
fram nokkra styrki handa er-
lendum námsmönnum til að
stunda nám í Svíþjóð náms-
árið 1984—85. Styrkir þessir
eru boðnir frarn í mörgum
löndum og eru öðru fremur
ætlaðir til nánts sem eingöngu
er unnt að leggja stund á i
Svíþjóð. Styrkfjárhæðin er
3.020,- sænskar krónur á
mánuði námsárið, þ.e. 9 mán-
uði. Til greina kemur að
styrkur verði veittur í allt að
þrjú ár. — Nánari upplýsingar
um styrki þessa fást í mennta-
málaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6. 101 Reykjavík, en um-
sóknir skulu sendar til
Svenska Institutet, box 7434-
S-103 91 Stockholm, og lætur
sú stofnun i té tilskilin um-
sóknareyðublöð fram til 1.
desember n.k„ en frestur til að
skila umsóknum er til 15.
janúar 1984.