Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Blaðsíða 3

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Blaðsíða 3
Réttur ungs fólks til atvinnu og menntunar Norðurlandaráðsþing æskunn- ar sem haldið var í Osló í lok febr- úar, samþykkti ályktun um menntamál þar sem þess er kraf- ist að nám verði túlkað sem vinna, ekki bara þegar stjórnvöldum hentar hcldur líka þegar það veit- ir réttindi. Lögð var fram róttæk hugmynd um að tryggja öllu ungu fólki atvinnu eða aðgang að námi. I umræðum á þinginu kom fram að stjómvöld túlka nám og þau rétt- indi og skyldur sem því fylgja, eftir hentugleikum. Þegar gerðar eru kröfur um námsframvindu til að öðl- ast lánsréttindi og fleira þá er nám full vinna en þegar út á vinnumark- aðinn kemur þá veitir nám engin réttindi til atvinnuleysisbóta svo dæmi sé tekið. Enn fremur var rætt Nýbökuó stjórn S.H.I.: Ný stjórn I kjölfar þriðja kosningasigurs Röskvu, samtaka félagshyggju- fólks í Háskóla Islands, hefur verið mynduð ný Röskvustjórn í Stúd- entaráði. Stjórn Stúdentaráðs er nú þannig skipuð: Páll Magnússon guðfræðinemi er fonnaður, Guðrún um að sá hluti vinnumarkaðslöggjaf- ar sem lýtur að aðbúnaði á vinnustað nær ekki til námsmanna. Megináhersla þingsins var þó á jafnrétti til náms og að Norðurlöndin yrðu eitt menntasvæði. I lokaályktun I yfirlýsingu frá skrifstofu há- skólarektors vegna máls stúdents- ins sem kaus tvisvar sinnum í kosningum til Háskólaráðs og Stúdentaráðs, segir að Háskólaráð muni ekkert aðhafast í málinu og að rektor telji að skýringar þær sem stúdentinn hafi gefið, séu full- nægjandi. Laganeminn, sem var skráður Guðmundsdóttir læknanemi er varaformaður, Jón Grétar Jónsson verkfræðinemi er gjaldkeri, Hclga Kristín Haraldsdóttir íslenskunemi er ritari og meðstjórnendur eru Málfríður Gísladóttir laganemi og Brynhildur Þórarinsdóttir ís- lenskunemi. Norðurlandaráðsþings æskunnar fékkst samþykkt hugmynd um að ungu fólki undir tuttugu og fimm ára að aldri verði tryggður réttur til atvinnu eða náms. bæði í sagnfræðideild og lagadeild og kaus á báðum stöðum hefur gef- ið þá skýringu á atburðinum að um mistök hafi verið að ræða af hans hálfu. Hann hafi talið að með því að greiða atkvæði í sinni núverandi deild, myndu atkvæði þau sem hann hafði greitt fyrr um daginn í sagnfræðideildinni ógildast. í kosningunum til Stúdentaráðs og Háskólaráðs hlaut Röskva rúm- lega 55 prósent gildra atkvæða en Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta, fékk tæp 45 prósent. I Stúd- entaráði silja nú 16 stúdentar af listum Röskvu en 14 af listum Vöku. Háskólaráð aðhefst ekkert Atvinnumiðlun náms- manna tekur til starfa Að ofan Páll Magnússon, formaSur Slúdentaráðs Mikilvægi Stúdentaráðs Að standa vörð um hagsmuni stúdenta Háskóla ís- lands og að berjast fyrir bættum hag þeirra er mikil- vægt. Þess vegna er Stúdentaráð Háskóla íslands til. Hlutverk þess er alltaf mikilvægt, en aldrei hefur það verið mikilvægara en nú síðustu árin þegar fast hefur verið sótt að okkur stúdentum. Á næstunni munu stúdentar leita eftir leiðrétting- um sinna mála. Úthlutanarreglur Lánasjóðsins fyrir næsta skólaár verða afgreiddar nú í vor. Eins og öll- um er í fersku minni voru þær úthlutanarreglur sem stjórn Lánasjóðsins samþykkti fyrir yfirstandandi skólaár afar óhagstæðar fyrir námsmenn. í þeirri vinnu sem framundan er í stjórn LÍN við gerð úthlut- unarreglna, munum við sem stundum nám hér við Háskólann, leggja sérstaka áherslu á að fá breyttri reglu um námsframvindu. Það hefur komið í Ijós að í ýmsum deildum geta stúdentar ekki staðist kröfur lánasjóðsins, þótt námsframvinda þeirra teljist eðlileg innan deilda. Við munum heldur aldrei láta af baráttunni gegn nýjum lögum um sjóðinn. Þar skal fyrst telja hinar al- ræmdu eftirágreiðslur, en einnig munum við leggja mikla áherslu á breytt endurgreiðslukerfi. Baráttan fyrir bættum fjárhag Háskólans hefur þegar skilað nokkrum árangri. Við munum halda áfram góðu sam- starfi við yfirvöld Háskólans og Félag háskólakenn- ara, en það samstarf er grunnur þess árangurs sem þegar hefur náðst. Hagsmunamálin munu því fá allan þann tíma sem þarf. Við munum hins vegar einnig huga að öðrum málum. Breytingar á uppbyggingu Stúdentaráðs hafa verið lengi í umræðunni. Síðustu ár hafa komið fram tillögur um breytingar, en enn hefur ekki náðst samstaða um þær. Breytingar mega hins vegar aldrei verða breyt- inganna vegna. Það er ýmislegt sem þarf að færa til betri vegar, annað er nokkuð gott og við því hreyfum við ekki. Ég tel að það sé brýnt að samstaða náist um nokkrar breytingar og verð að telja líklegt að það takist, því um fyrirkomulag Stúdentaráðs, hagsmunaflið mik- ilvæga, verður að ríkja sem víðust samtstaða. Glæsileg verðlaun fyrir besta innsenda efnið Besta innsenda efnið í Stúdentablaðið í vetur verður verðlaunað af óháðri dómnefnd. Hewlett Packard Vectra 486 tölva frá Tæknivali, Hewlett Packard DeskJet 500 bleksprautuprentari og sex stórbækur þekktra íslenskra rithöfunda og skálda í vönduðum útgáfum Máls og menningar. Verið með í næstu tölublöðum. Kíkið á skrifstofu Stúdentaráðs eða hringið í síma 621080. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arnar Guðmundsson Ritnefnd: Aðalsteinn Leifsson, Elínborg Sturludóttir og Helga Kristín Har- aldsdóttir. Ljósmyndari: Guðbrandur Örn Arnarson Prófarkaiestur: Ármann Jakobsson Filmuvinna og prentun: Frjáls fjölmiðlun Að þessu blaði unnu með rit- nefndinni þau Ármann Jakobs- son, Brynhildur Þórarinsdóttir, Christopher lan Astridge, Ein- ar Logi Vignisson, Flosi Eiríks- son, Gríma, Gunnar H. Ár- sælsson, Hreinn Sigmarsson, Höskuldur Ari Hauksson, Kol- ur, Ólafur G. Haraldsson og Svava Jónsdóttir. STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.