Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Blaðsíða 8
Kunnugleg hárgreiösla fyrir aödáend- ur kvikmyndarinnar Leningrad Cow- boys go America eftir finnska leik- stjórann Aki Kaurismáki. En þessi mynd er úr stuttmyndinni Those were the days eftir Aki, sem sýnd verður á Norrænu kvikmyndahátíöinni. Auk hennar á Aki myndina Bóhemalíf á há- tíöinni. Bóhemalíf er yndislega grát- brosleg mynd um þrjá bóhema í París, albanska málarann Rodolfo, franska skáldið Marcel og írska tónskáldiö Schaunard. Þeir tengjast fyrir tilviljun enda eiga þeir allir þaö markmiö að lifa af list sinni en þurfa þó stööugt aö flýja rukkara og leigusala. Aki, er á- samt bróöur sínum Mika, í hópi fremstu leikstjóra heimsins sem fást viö ódýrar og listrænar myndir. Norræn kvik- myndahátíð í Reykjavík Bestu kvikmyndir Norö- urlandanna síöustu árin veröa á boðstólnum í Há- skólabíói á Norrænu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík 24. til 27. mars næstkomandi. Fjöldi er- lendra gesta, leikstjóra, leikara og framleiöenda sækir hátíðina þar sem besta kvikmynd Norður- landanna áriö 1993 verð- ur verðlaunuð. Sýndar verða 20 bestu norrænu myndir síðustu tveggja ára, 4 frá hverju Norðurlandanna. Að auki verða sýndar 10 bestu myndir síðustu 10 ára og 20 stuttmyndir. Auk þess verður haldið málþing í Norræna húsinu þar sem fengist verður við þá spumingu hvort til séu sameiginleg norræn einkenni í listum. Hátíðar- dagana verður starfræktur klúbbur á Hótel Borg þar sem leikstjórar sitja fyrir svörum gesta, flutt verður lif- andi tónlist og fleira. ísland Islensku myndirnar á hátíðinni eru Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson, Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannesdóttur, Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jón- asson og Ingaló eftir Asdísi Thoroddsen. Stuttmyndimir frá ís- landi eru þrjár: Ævintýri á okkar tímum eftir Ingu Lísu Middleton og tvær myndir eftir Sigurð Öm Brynj- ólfsson, Jólatréið og „It takes all kinds“. Danmörk Brita Wielopolska: Vofa Jaspers (Det skallede spógelse). Liv Ull- mann: Soffía (Sofie). Nils Malmros: Sjóvá-Almennar tryggingar hf. auglýsa eftir umsóknum um styrki sem félagið hyggst veita tveimur tryggingatökum Námsmannatrygginga Sjóvá-Almennra. Allir sem hafa keypt Námsmannatryggingar fyrir 15. apríl 1993 ga kost á styrk vegna yfirstandandi námsárs. Hvor styrkur er að upphæð 100 þúsund krónur og verður afhentur í apríl 1993. Umsóknum með upplýsingum um námsferil, námsárangur, heimilishagi og framtíðaráform skal skilað eigi síðar en 15. apríl nk. merktum: SJOVA-ALMENNAR NÁMSMANNASTYRKIR „Fyrir mér var faöir minn ynd- islegasti maöur í heimi og ég vonaðist til aö tröllatrú mín á honum gæti gefiö honum styrk. Ég var sú eina sem þekkti leyndarmál fööur míns. Ég var ellefu ára þaö sumar. Viö vorum á leiö uppí sveit til frænku minnar. Ég sat í aftursætinu í bílnum, í Norrköping-fótboltabúningi ..." Nick Börjlind og Rolf Lassgárd í kvikmynd Kjell- Ake Andersson, Stóri feiti pabbi. Pabbi var athafnamaö- ur í heimabænum, aóalsöngv- arinn í óperuhúsinu, fram- kvæmdastjóri lítils flutninga- fyrirtækis og varaformaöur fótboltafélagsins. En svo kom aö því aó pabbi varð aö flýja Norrköping og flytja til Stokkhólms. Sárar ástir (Kærlighedens smerte). Jprgen Vestergaard: Snúkurinn (Snpvsen). Noregur Knut Erik Jensen: Pólstjaman (- Stella Polaris). Thomas Robsahm Tognazzi: Svartir hlébarðar (Svarte pantere). Erik Gustavson: Loft- skeytamaðurinn (Telegrafisten). Eva Isaksen: Hinn fullkomni glæpur (Homo Falsus - Det perfekte mord). Finnland Claes Olson: Ast Söru. Veikko Aaltonen: Týndi sonurinn. Aki Kaurismaki: Bóhemalíf (La vie de bohéme). Pekka Lehto: Brunnurinn (Kaivo). Svíþjóð Kjell-Áke Andersen: Stóri feiti pabbi (Min store tjocke far). Colin Nutley: Englabær (Ánglagaard). Jan Troell: II Capitano. Susanne Bier: \ Freud flytur að heiman (Freud flyttar hemifrán). 10 bestu síðasta áratuginn Eftirtaldar myndir verða sýndar á hátíðinni sem 10 bestu norrænu myndimar síðasta áratuginn: Fómin eftir Andrei Tarkowski, Mit liv som hund eftir Lasse Hallström, Pelle er- obreren eftir Bille August, Vejviseren eftir Nils Gaup, Element of Crime eftir Lars von Trier, Hrafn- inn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugs- son, Fanny och Alexander eftir Ing- mar Bergmann, II Capitano eftir Jan Troell, The Match Factory Girl eftir Aki Kaurismáki og En hándful tid eftir Martin Asphaug. Hinn fullkomni glæpur eftir norska leikstjórann Evu Isaksen fjallar um Pierre, ungan kvik- myndaleikstjóra sem vinnar aö erótískri hrollvekjumynd þar sem ástkona hans, Gréta fer meö aö- alhlutverkió. Mynd hans fjallar um dularfulla konu sem tælir til sín menn og lætur þá hverfa. En úti í hinum raunverulega heimi taka hlióstæöir atburóir aó ger- ast. Menn hverfa í nóttina, lokk- aöir af dularfullri konu. Er þetta hans eigin Gréta? Loks hittir Pi- erre hana sjálfur. Er hann kannski næstur á listanum?

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.