Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Blaðsíða 9

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Blaðsíða 9
1 Jesús Kristur á páskum í'/m ALLÁ Allir geta látib drauminn rœtast hjá okkur - ekki bara námsmenn! Borgarferbir - Hótelgisting Flug og bíll - Lestarkort Málaskólar - Ævintýraferöir Heimsreisur - Sólarlandaferöir Sumarleyfisfargjöld - Kilroy-fargjöld FEiMSfMBlM raW*»«f VIÐ HRINGBRAUT REYKJAVIK SÍMI 615656 ■: — Hreyfimyndafélagiö býöur um sjálfa páska- hátíðina uppá söngleik- inn Jesus Christ Superstar eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice. Þetta sungna til- brigði við líf frelsarans kannast víst hvert með- al ungmenni við enda tónlistin ein sú lífseig- asta frá hippaárunum. Söngleikurinn var sýnd- ur árum saman á Broad- way og hér á landi var verkið sett upp og vakti mikla athygli. Kanadíski leikstjórinn Norm- an Jewison fangaði söngin á filmu og hafði hann allnokkra reynslu í þvíumlíku enda áður kvikmyndað Fiðlarann á þakinu og fyllt bíóhús um víða veröld auk þess sem hann átti inngöngu sína í kvikmynda- veldið Hollywood því að þakka að hann hafði verið frumkvöðull að gerð tónlistarþátta fyrir sjónvarp á sjötta áratugnum. Aðalhlutverkin í Jesus Christ Superstar eru í hönd- um Ted Neeley, Carl Anderson og Yvonne Elliman en hún söng einmitt á upprunalegri hljómplötu- útgáfu verksins þar sem þeir Ian Gillan söngvari Deep Purple og Murray Head gerðu þeim kumpán- um Jesú og Júdasi skil. Myndin var tekin í Israel í þeirri sömu eyðimörk og Kristur vafraði um í fjörtíu daga án matar og skeggræddi við andskotann. Eyðimörkina höfðu ísraelsmenn og Egyptar vætt blóði í sex daga stríð- inu og markar hemaðarhyggja nú- tímans nokkuð umgjörð myndar- innar. Fyrir þá sem vilja átta sig frekar á leikstjóranum Jewison, eða svona rétt til þess að hafa ein- hverja titla á hraðbergi, þá má geta þess að hann hefur leikstýrt mynd- um eins og The Cincinnati Kid, In The Heat Of The Night, Roller- ball, Agnes bam guðs, In Country og Moonstruck. Sumsé frægur maður á ferð og músíkin maður lif- andi - Hósíanna! Jesus Christ Superstar verður sýnd í Háskólabíói 7. aprfl á hef- bundnum miðvikudagssýningar- tíma Hreyfimyndafélagsins, kl. 21:00 og að auki á Skírdag 8. apr- fl, laugardaginn 10. aprfl og á ann- an í páskum 12. apríl. 5 miða kort H reyf imy ndaf é- lagsins gilda á Norrænu kvik- myndahátína! Stúdentum og öðrum fé- lagsmönnum Hreyfi- myndafélagsins gefst færi á að nýta sér hin hræódýru 5 miða kort Hreyfimyndafélagsins til að njóta þess besta sem Norræn kvik- myndagerð hefur uppá aö bjóöa. 5 miöa kortin sem fást í Bóksölu stúdenta og í Háskóla- bíói gilda sumsé á Nor- rænu kvikmyndahátíö- ina. STÚDENTABLAÐIÐ Einar Logi Vignisson skrifar

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.