Stúdentablaðið - 01.03.1993, Side 5
Þjóðleikhúsið
sýnir á litla sviðinu:
Stund
gaupunnar
eftir Per
Olov Enquist
Leikritið gerist á geðsjúkrahúsi
á einni kvöldstund. Þar segir af
ungum pilti sem búið er að loka
inni fyrir lífstíð en hann hefur myrt
miðaldra hjón að því er virðist af
tilefnislausu og síðan margoft
reynt að fyrirfara sér, auk þess sem
hann hefur drepið kött sem hann
fékk að hafa hjá sér á sjúkrahúsinu.
Við þessa sögu koma kvenprestur
auk ungrar konu frá Háskólanum
og reyna þær að grafast fyrir um
þennan pilt og ástæður hans. I
þessari sérstæðu glæpasögu er
fjallað um himnaríki og helvíti,
sjálfseyðingarhvöt - og um guð.
Horft er á atburðina frá sjónarhóli
kvenprestsins og hafa atburðirnir
það mikil áhrif á hana að hún lætur
af prestskap.
Höfundurinn, Per Olov
Enquist er almennt talinn eitt
fremsta leikskáld á Norðurlöndum.
Hann hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1969.
Innan félagsvísindadeildar,
guðfræðideildar og heimspekideild-
ar í H.í. er áhugi fyrir því að skipu-
leggja hópferðir á þetta verk enda
efni þess óvenjulegt og magnað.
Þórarinn Eldjárn þýddi Stund
Gaupunnar og í aðalhlutverkum
eru þau Ingvar E. Sigurðsson, Guð-
rún Þ. Stephensen og Lilja Þóris-
dóttir. Ingvar er meðal annars
þekktur fyrir hlutverk sín í Pétri
Gaut, Kæru Jelenu og Stræti.
Sigurvegarar í keppnisgreinum íþrótta- og
heilsudaga Stúdentaráðs 1993
íþrótta- og hcilsudögum
Stúdcntaráðs er nýlokið. Stúd-
entar hafa puðað, hlaupið,
sparkað, hent, slegið og hugsað
í tólf daga. Og nú geta þeir
hætt þessu öllu - eða hvað?
Iþróttadögunum lauk með
hátíð í íþróttahúsi Hagaskóla 12.
mars þar sem leikið var til úr-
slita í knattspyrnu, handbolta og
körfubolta.
í knattspyrnu karla léku til
úrslita lið Röskvu, með leik-
mönnum úr ýmsum deildum, og
lið úr matvælafræðinni. Leiknum
lauk með sigri Röskvu.
I úrslitaleiknum í knatt-
spyrnu kvenna áttust við
„Skytturnar" úr lyfjafræði og „-
Skalli“ úr sjúkraþjálfun. Lyfja-
fræðinemar unnu.
I úrslitaleik í handbolta
karla milli „Sálfræðinganna" úr
sálarfræði og „Troðslanna" úr
viðskiptafræði unnu sálamir.
I körfuknattleik karla: stóð
barátlan á milli „Troðaranna" úr
verkfræðinni og liðs læknanema
sem heitir „Hvað sem er“.
Skemmst er frá því að segja að
Troðararnir sýndu að þeir geta
unnið hvað sem er.
Læknanemar eru greinilega
sterkir í körfunni því kvennalið
úr deildinni, „Skópíurnar" léku
til úrslita í körfuknattleik
kvenna. Læknastúdínur stigu
þó skrefi Iengra en félagar
þeirra og sigruðu „Sniðskotin"
úr læknisfræði.
Úrslit í öðrum
greinum
Ballskák:
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Tannlæknadeild
Blak karla:
Þjálfi - Sjúkraþjálfun
Blak kvenna:
Linda - Sjúkraþjálfun
Borðtennis:
Benedikt Halldórsson-
Raunvísindadeild
Bridge:
Jón Þór og Siguijón -
Verkfræði
Fjallahjólakcppni:
Hjalti
Handbolti kvenna:
Valkyrjumar -
Ur hinum ýmsu deildum
Hlaupið:
Toby Tanser 6,5 km og
Gerður Rún Guðlaugsdóttir
6.5 km.
Eygerður Inga Hafþórsdóttir
3.5 km og Arnaldur
Gylfason 3,5 km
Hnit karla:
Þorsteinn P. Hengsson -
Tannlæknadeild
Hnit kvenna:
Danielle Bisch -
Heimspekideild
Keila:
Kristrún, Jörundur og Bjöm
Viðskiptaffæði
Pílukast:
Þorkell Sigurgeirsson -
Viðskiptaífæði
Skallatennis:
Hreinn - Viðskiptafræði
Skák:
Sigurður Daði Sigfússon -
Raunvísindadeild
Skvass:
Þóroddur Ottesen -
Viðskiptadeild
Yfirskrift íþróttadaganna
var „hæfileg keppni holl - hæfi-
leg hreyfing er nauðsyn". Mark-
miðið var að fá sem flesta stúd-
enta til þátttöku í skemmtileg-
um leik. Og árangurinn varð
glæsilegur - fjöldi stúdenta atti
kappi í hinum ýmsu greinum og
allt í bróðemi.
Stúdentarnir sem stóöu í eld-
línunni vikum sarrum við undir-
búning og framkvœmd íþrótta-
daganna eiga heiður skilinn og
þakkirfrá háskólastúdentum.
NÁMS
0
a
LÍNAN
BUNAÐARBANKINN
- Traustur banki
STUDENTABLAÐIÐ
Glæsilegir
íþróttadagar
■ MANNA