Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Síða 6

Stúdentablaðið - 01.03.1993, Síða 6
Heilsað með kredithendinni! Allt sem er skemmtilegt er skammvinnt, það lærði ég af bókinni um hann Láka jarðálf sem fannst gaman að vera vondur en endaði sem sléttgreiddur stutt- buxnastrákur á skólabekk. Mér finnst voðalega gaman að eiga péninga, minnir mig (ég prófaði það þegar ég fermdist). Það var áður en Viðskip, stofnandi við- skip-tadeildar, veiddi allan þorskinn sem átti að hrygna perlum. Mér dytti samt aldrei til hugar að fara að lesa um péninga daginn út og inn. Þaö þarf visst stig vitundarþoku til þess. En, help me cod, þetta er víst til... Dagurinn í péningadeild hefst á braki í buxna- brotum, smellum í skjalatöskum og skrjáfi í endurunnum verðbréfum Viðskipta og hagfræðideild heitir fyrirbærið, samansafn af smörtu fólki í vel sniðnum fötum og pússuðum skóm með skjalarann í hægri og bjútíboxið í vinstri. Hárið ilmar af kólóni, bíllyklamir hringla í vasanum og eróbikkdótið liggur snyrtilega samanbrotið í sérhannaðri hliðartösku. Gangráð- urinn er geymdur sem gull; fíló- faxið er frelsarinn sem skráir skuldunauta og skipuleggur líf og líferni. Því er ekki undarlegt að rætt hafi verið um það að breyta sparinafni námsins í stud.fíl, heimspekideildarmönnum til mik- illar gleði. Dagurinn í péningadeild hefst á braki í buxnabrotum, smelli í skjalatöskum og skrjáfi í end- urunnum verðbréfum. Salurinn fyllist af nautshúðarangan þegar gullbrydduð föxin eru tekin úr plussklæddri geymslunni og lögð pukurslega í kjöltuna. Hávært skrats fylgir, franski rennilásinn lætur vita að hér séu heimsborgar- ar á ferð. Þegar öllum slæðum og bindum hefur verið hagrætt getur kennsla loks hafist. Námsgrein- arnar eru ekki af verri endanum; bissnessnemar fást við öll störf til sjávar og sveita eins og minninga- greinafólkið; Iðnaðurinn er hús- gagnasmíði eða höfuðstólagerð, landbúnaðurinn smalamennska eða rekstrarfræði og sjávarútvegur- inn netagerð úr lambsull eða net-tó. Velta er fyrirbrigði sem vert er að þekkja. Nauðsynlegt er að kunna að bregðast rétt við vaggi hinna vikulegu kokkteil- boða, geta stemmt sig af og rétt hallann þegar bókhaldið verður tvöfalt. Dollaradeildarmenn eru jafn- aðarmenn. Þar á bæ ríkja bæði prófjöfnuður og greiðslujöfnuður. Öll próf eru jafnþung, 150 grömm, og allar greiðslur eru eins; mynda sveip réttvísandi vestur yfir ennið. Allir hafa jafnháleitar hugsjónir, ekki konu og hund heldur krónu og pund. Þetta fólk er blátt áfram á hægri uppleið. Aurafræðin er upprunnin í Skotlandi, enda Skotar með af- brigðum örlátir. Þangað er nafn stéttarinnar líka sótt. Fyrsti fjár- fræðingurinn var Biss-ness, hálf- bróðir Loch-ness skrfmslisins og lausaleikssonur leikkonunnar Maj O'ness. Úr þeim genum eru ein- stakir hæfileikar viðskiptafólksins komnir. Ness-ættin er öðrum fremri í að leika á lýðinn, lokkar hann til sín en stingur sér svo á kaf og hverfur. Hver deild neyðist til að halda uppi minnihlutahóp. I ríkidæmis- deildinni kallast sá hópur hag- fræðinemar. Þeir eru framsýnir framagosar sem ætla sér að verða miklir menn í Ef-rópu. Nám í Haagfræði veitir nefnilega inn- göngu í Alþjóðadómstólinn í sam- nefndri borg. Ungt fólk á uppleið kemst ekki ódýrari leið að ókeypis sprautum Klossalands. Vindmyll- urnar mega nú vara sig! Fína nafnið á náminu er stud.ee. “Ec” (eða “ek”) er fornís- lensk útgáfa af “ég”, það segja mér árngerðskir safngripir sem muna Gunnar og Héðin og Njál. Stúdentar skorarinnar eru því ó- neitanlega afskaplega egósentrísk- ir og hyggja það eitt sér í hag að þeir endi sjálfir í Haag. Þá kæmi sér sannarlega vel að vera hag- mæltur og því styrkir Vísa vísna- gerðarkúrs fyrstaársnema. Æska bissnessnema var af- brigðileg eins og gefur að skilja. Meðan heilbrigð börn sögðu mamma, sögðu þeir mammon og banki er normallinn vældi bangsi. í leikskóla tóku þeir lántökugjald af dótinu sínu og innheimtu vaxta- vexti í barnaskóla; vexti af vexti félaganna. Hinir seinsprottnu prís- uðu sig sæla. Leiðin lá í Verzló þar sem fjórum árum var eitt í að læra að afgreiða í sjoppu án þess að gefa vitlaust til baka. Þaðan var arkað í hóp í æðstu menntastofnun þjóðar- innar að reikna út skoppstuðul gúmmítékka og fletjanleika vísa- korta. Stofnunin Oddi hýsir starf- semina enda návígi við sálfræðinga nauðsynlegt. (Förum nú að setja öryggið á Oddann!) Klukkan er á debithendinni, þú heilsar með kredithendinni; nettó, brúttó, bingó - og útskrift. Margra ára monnínganám má taka saman í eina setningu: Umfram allt, þó ætíð skalt, okrá því sem vel er falt! Almtnna auglysingastolan nashuatec ★ Mest seldu Ijósritunarvélar ó íslandi! ★ Faxtœki ★ Fjölritarar ★ Kjölbinditœki Vönduö þjónusta og traustar vélar tryggja vinninginn! Verið velkomin í vinningsliðið! Umboð Hljómver. Akureyri Póllinn. ísafiröl Geisli Vestmannaeyjum ÁRMÚLA B - SÍMl 67 90 00

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.