Stúdentablaðið - 01.03.1993, Side 7
Leiklist
Ólafur G. Haraldsson
ræðistímabil.” Persónur leiksins
eru þrjár, hjón sem eru á leið í af-
skekkt sumarhús og rekast á mann
sem endar með að þiggja hjá þeim
gistingu. Konan telur sig þar
þekkja aftur lækni sem átti þátt í
að pynta hana 15 árum áður, mann-
inn sem ákvarðaði hversu mörg
raflost líkami hennar mætti þola.
Meinið er að hún hefur engar á-
þreifanlegar sannanir gegn honum
utan eigin sannfæringu, þekkir
ekki andlit hans heldur einungis
röddinna, þefinn og snertinguna.
Hinn meinti pyntingameistari
heldur staðfastlega fram sakleysi
sínu og því stendur orð gegn orði.
Ahorfandinn verður því hinn eig-
inlegi dómari í sakamáli án sann-
ana þar sem spurt er um það
hvernig og hvenær réttlætinu sé
fullnægt, hverjunt leyfist að skil-
greina réttlætið og hvort einstak-
skamma tíma sem liðinn er frá því landi sem nýlega hefur fært
samningu þess. sjálfu sér lýðræði eftir langt ein-
Alla þessa öld hefur fjölskylda
Ariel Dorfman verið á flótta undan
ofsóknum yfirvalda. Fyrst hrökl-
uðust afi hans og amma frá Rúss-
landi gyðingaofsókna, síðan mátti
Dorfmanfjölskyldan flýja undan
herforingjastjórninni í Argentínu
til Bandaríkjanna þar sem McArt-
hyisminn tók við og hrakti þau til
Chile þar sem Ariel hóf feril sinn
sem skáld og bókmenntafræðingur
og hefur alla tíð litið á sem sitt föð-
urland. Bækur hans voru brenndar
í blóðugri valdatíð Pinochets og
enn mátti Dorfman flýja land. Það
kemur því tæplega á óvart að verk
höfundar með slíkan bakgrunn
fjalli um óréttlæti heimsins í ýms-
um myndum og þau sár sem yfir-
völd geta veitt þegnum sínum á
sál og líkama.
Dorfman skrifar Dauðinn og
stúlkan árið 1990. Það er frumsýnt
í Chile í mars 1991, í júlí sama ár
í London og vakti síðan heimsat-
hygli þegar það var frumsýnt í
Bandaríkjunum í mars 1992 með
Glenn Close, Gene Hackman og
Richard Dreyfuss í hlutverkum.
Með frumsýningu Leikfélags
Reykjavíkur bætist Island í hóp
nálægt 30 landa sem fært hafa
leikritið upp á þeim tiltölulega
Dauðinn og stúlkan gerist í
Chile þegar skammt er liðið frá
falli herforingjastjórnarinnar og
þjóðfélagið þarf í nýfengnu lýðræði
að kljást við eftirköst ógnartíma-
bilsins. Umfjöllunarefni leikritsins
einskorðast þó síður en svo við
Chile því eins og Dorfman segir
sjálfur gæti það gerst “í sérhverju
lingnum sé heimilt að leita hefndar
á sínum eigin forsendum. “Sem
leikskáld hef ég mestan áhuga á
því augnabliki þegar maður veit
ekki fyrir víst hvað er satt og hvað
logið, hvað er rétt og hvað ekki,”
segir Dorfman sjálfur, “ég varpa
einungis fram fjölmörgum spurn-
ingum án þess að gefa við þeim
svör.” Og víst er að jafn áleitnar
og spurningarnar eru þá getur
enginn svarað þeim einhlítt, eins
og íslendingar allir hafa nú fengið
að kynnast af eigin raun í seinni tíð
þegar Simon Wiesenthal-stofnun-
in ber sakir upp á íslenskan ríkis-
borgara, studdar sönnunum sem
sumum finnst og sumum ekki að
væru afgerandi fyrir dómstólum.
Það eru þau Guðrún Gísladótt-
ir, Valdimar Örn Flygenring og
Þorsteinn Gunnarsson sem fara
með hlutverkin í Dauðinn og stúlk-
an, leikstjóri er Páll Baldvin Bald-
vinsson og Ingibjörg Haraldsdóttir
þýddi verkið.
Absúrd StúdentaleikhúsDila: ... hvaö gerðist ef allir ætluöu aö fara aö vera góöir eins og þú?
Absúrd Stúdentaleikhús
Þann 26. mars næstkomandi
dregur Stúdentaleikhúsið tjöldin
frá uppfærslu sinni á leikritinu
Bílakirkjugarðurinn eftir spánverj-
an Fernando Arrabal, á Galdra-
loftinu á Hafnarstræti 9. Vafalaust
bíða stúdentar, sem og leikhússá-
hugafólk almennt, sýningarinnar
með eftirvæntingu, þar sem hér er
urn að ræða djarft verkefnaval hjá
leikhúsinu sem kallar á frumlegar
lausnir í sviðsmynd og öllum ytri
búningi uppfærslunnar.
Arrabal skrifaði öll sín verk á
frönsku, enda búsettur í Frakk-
landi frá tvítugsaldrinum eftir að
hafa lokið laganámi í Madríd.
Verk hans hafa verið sýnd hér á
landi, bæði á sviði og í sjónvarpi
og margir munu kannast við verk
hans Skemmtiferð á vígvöllinn og
Þeir settu handjám á blómin. Bfla-
kirkjugarðurinn gerist eins og
nafnið bendir til í bílakirkjugarði,
þar sem atburðarásin snýst um
hinn barnslega tónlistarmann
Emanú sem færir fátæklingum
tónlist ásamt félögum sínum í
trássi við lagabókstafinn. Leikur-
inn fjallar síðan um upphafningu
og fall Emanús í samfélagi bíla-
kirkjugarðsins, hann verður nokk-
urs konar kristgerfingur sem gerir
uppreisn gegn óréttlátu yfirvaldi
og hlýtur krossfestingu að laun-
urn.
Tartuffe eða Svikarinn hefur löngum verið álitið eitt snjallasta
verk frakkans Jean-Baptiste Moliere. Það var eitt af hans síðustu
verkum og varð þess valdandi að leikskáldið var sett á svartan
lista og leikritið bannað. Það kom því í hlut síðari tíma leikhúss-
manna að helja Tartuffe til þeirrar virðingar sem það nýtur nú.
Þór Tulinius færir leikritið nú upp á stóra sviði Borgarleik-
hússins í nýrri þýðingu Péturs Gunnarssonar. Aðstoðarleikstjóri
Þórs er Hafliði Arngn'msson og vafalaust mun mörgum þykja
uppfærsla þeirra félaga í það minnsta nýstárleg og jafnvel brjóta
blað í sýningarsögu verksins.
Tartuffe var frumsýnt þann 12. mars og í helstu hlutverkum
eru Þröstur Leó Gunnarsson, Guðrún Asmundsdóttir og Pétur
Einarsson.
LEIKHÚSFERÐ
Föstudaginn 2. apríl verður efnt til leikhússferðar á Dauðinn og
stúlkan eftir Ariel Dorfman, sem sýnt er á litla sviði Borgarleik-
hússins.
Tekið verður við miðapöntunum á
skrifstofu SHÍ til 25. mars.
MJÖG FÁIR MIÐAR ERU í BOÐI - hafið því samband hið fyrsta
til að tryggja ykkur miða á þetta magnaða leikrit.
Miðaverð er 1100 krónur.
STÚDENTABLAÐIE
BANDARISKAR TOLVUR. GÆÐI OG GOTT VERÐ.
Eltech tölvur hafa hvað eftir
annað fengið frábæra dóma
í fagtímaritum. Nú getur þú
fengið þér Eltech tölvu með
VESA local bus eða Intel
uppfærslusökkli fyrir næstu
kynslóð örgjörva.
Eltech:VdLvm\b\ til framtíðar.
Eltech
Ótrúleg verðdæmi:
AMD386DX 40MHz Kr.129.900,-
Í80486DX 33MHz Kr. 159.900,-
80486DX 50MHz Kr. 189.900,-
Í80486DX2 66MHz Kr. 199.900,-
Innifalið í verði: 4Mb vinnsluminni, 64K flýtiminni,
14" SVGA litaskjár, lMbSVGA skjákort, 105Mb
diskur, 1.44Mb disklingadrif, IDE drifstýring,
lyklaborð, 2 raðtengi, 1 hliðtengi og borðkassi með 8
tengiraufum. Spyrjið um aðrar gerðir.
I’C World Besl Buy umsögn: Jan '93, mars '92, jan '92
HUGVER
Laugavegi 168 Sími 91-620707, Fax 91-620706