Fálkinn - 26.04.1930, Side 11
FÁLEINN
11
A fegurðarsamkepninni í
París í vor kom kvenfólk úr
öllum áttum til J)ess að
keppa um drotningartign-
ina í andlitsfegurð. En J)að
óhapp vildi til, að sá kepp-
andinn, sem Holland hafði
sent, var ekki tekin gild.
Reyndist hún vera þritug og
margra barna móðir, en að-
eins ógiftar stúlkur máttu
keppa. Þá var flugvjel send
í snatri eftir Öðrum fulltrúa
fyrir Holland og sjest hann
hjer vera að stíga út úr flug-
vjelinni.
Danskennari einn, sem
kennir dansa og notar út-
varpshl jóðfæraslátt hefir
tekið það til bragðs að
skifta dansgólfinu í reiti,
eins og á skákborði. Segir
hann, að danssporin lærist
fljótar með þessu móti.
Hver veit?
^eHbrigðisfræðingarnir eru ávalt
Derða vissari og vissari um, að
n>jólkin sje hin nauðsynlegasta
^ðutegund barna og unglinga. í
<',lskum skólum hafa kennararnir
^eitt sjer fyrir því, að nemendurnir
^Unduðu mjólkurfjelög. Allir, sem
Ijelaginu eru drekka flösku af
n}jólk á dag og drekka hana gegn
Utn sti'á. Er þetta gert til þess, að
0,nin svolgri ekki i sig mjólkina
^ka er það gott fyrir börn, sem
^llr,úa illa uið mjólkurlykt . Myndin
^ l>iastri sýnir sliki „mjólkurf jelag
á fundi“ í frimínútum.
Öll Mið-Evrópa hefir komist á
annan endann út af undralækni
einum, sem Zeileis heitir og á
heima í Gallspacli i Austurríki.
Til Gallspach hafa þyrpst þús-
undir krankra manna víðsvegar
að og Zeileis læknar þá með
töfrasprota. Hann snertir með
sprotanum sjúka staðinn á lík-
ama sjúklingsins og síðan lætur
hann sjúklinginn fara í raf-
geislabað; er svo rúmgott í því
baði, að 300 manns komast fyr-
ir í einu. Tekjur Zeileis eru tald-
ar 15000 krónur á dag og svo
mikið aðstreymi er að þorpinu,
að lóðir hafa 20-faldast í verði
þar. Um 150.000 manns leituðu
til Zeilleis í fyrra. En nú hefir
stjórnin lálið lxefja rannsókn á
„lækningum“ hans. Telur hún
hann almennan skottulækni.
Ileana prinsessa af Rúmentu trúlofaðist fyrir nokkru þýskum að-
alsmanni, en bráðlega kom í Ijós, að hann var gallagripur á marg-
an hátt og slitnaði því upp úr trúlofuninni, en almenningur henti
gaman að. Til þess að jafna sig eftir þetta fór Ileana í ferðalag
suður til Alexandríu ásamt móður sinni, Maríu drotningu. Sýnir
myndin móitökurnar á brautarstöðinni þar.