Fálkinn - 09.08.1930, Page 2
2
F A L K I N N
---- N Ý J A B í O ------
Tvær stúlkur.
Fjörug og skemtileg mynd.
Sýnd bráðlega.
D-Scholts fótalækningar.
eru viðurkendar af læknum um allan heim.
Skoðun á fótunum og allar upplýsingar eru gefnar
ókeypis af sjerfræðingi.
Biðjið um bókina „Foden og dens Pleje“.
Vörur sendar gegn póstkröfu um alt land. Sendið mál
af fótunum og lýsið greinilega hvar fæturnir eru veikir
og mun yður þá gefnar allar upplýsingar góðfúslega
endurgjaldslaust.
Hjúkrunardeildin,
Simi 60 og 1060. Austurstræti 16.
—:--- GAMLA BIO --------
Venúetta.
Sjónleikur i 8 þáttum.
Afarspenannd saga frá Korsíku.
Verður sýnd bráðlega.
Líftryggið yður
þar sem kjörin eru best.
Úr ársreikningi Lífsábyrgðarfjel.
Thule h.f. 1929:
Árstekjur .... kr. 4.621.189.52
Þar af til hluthafa — 30.000.00
(Hluthafar fá aldrei hærri upp-
hæð, skv. samþyktum fjelagsins).
Lagt i sjóði fjel. kr. 326.272.00
Til hinna trygðu — 4.264.917.52
(yfir 92% af öllum ágóða fjel.).
Ágóðaliluti hinna trygðu útborg-
ast árlega að 5 tryggingarárum
liðnum, og er ekki hærri 1929
en önnur ár.
Lífsábyrgðarhlutafjelagið
T H U L E .
Aðalumboðsmaður fyrir ísland:
A . V. TULINIUS,
Eimskipafjelagshúsinu, 2. hæð.
Simi 254. Símn.: TULIN.
Umboðsmenn óskast allsstaðar,
þar sem ekki eru umboðsmenn i
nágrenninu.
Kvikmyndir.
TVÆR STÚLKUR.
heiþr mynd, sem NÝJA BÍÓ sýnir
bráðlega. Hún byrjar á baðstað, þar
sem margt fólk er saman komið.
Henry Willoughby nafnkunnur mála-
færslumaður, frjálslyndur í skoðun-
um og iifsglaður maður, læ*"~ '"ka
mynd af sjer með nokkrum ungum
stúlkum og kann ágætlega við sig á
baðstaðnum.
Meðal ungu stúlknanna þar er ein
sem heitir Mary, sem piltunuin líst
vel á. Hún er stórrík, en fje henn-
ar er í vörslum frænku hennar ,sem
er mjög ganlaldags í hugsunarhætti
og undrandi yfir Ijettúð æskunnar.
Hún heimtar að frænka sin klæði
sig á gamla vísu og bannar henni
að fara eftir tiskunni. Mary snýr
sjer þá til málaflutningsmannsins,
en hann ráðleggur henni að giftast
og skilja siðan við manninn. Með
giftingunni fái hún umráð yfir fje
sínu og þá geti hún gert það sem
henni sýnist fyrir frænkunni. Litlu
siðar kemur Mary upp til málaflutn-
ingsmannsins, en hittir þar í staðinn
son lians og fjelaga Henry Will-
boughby yngra. Hann er ungur og
laglegur maður en strangur í skoð-
unura, og hefir myndað sjer þá skoð-
un við afskifti sín af mörgum hjóna-
skilnaðannálum: Giftu þig aldrei.
Mary segir honum ætlun sína að gift-
ast og skilja þegar við mann sinn,
en hann hneykslast mjög á orðum
hennar og segir henni duglega til
syndanna. Hún verður reið og fer.
í því hittir lnin gamla málaflutn-
ingsmanninn og segir honum frá
vandræðum sínum. Meðan liún sit-
ur inni hjá honum kemur Henry inn
og talar með lítilsvirðingu um liina
ljettúðugu æsku og sjerstaklega um
þessa ungu stúlku, sem nýlega hafði
verið að tala við hann. En Mary
svarar honum fullum hálsi.. Eftir að
liún er farinn sýnir liann föður sin-
um myndina af baðstaðnum og gefur
lionum ávitur. En nú fær gamli mað-
urinn þá liugmynd að kenna syni
sinum að lifa og hann semur um
það við Mary, að hún skuli klæða
sig gamaldags búningi og vera í allri
framkomu eins og gamla frænka
heniiar vildi. Síðan skyldi þeir feðg-
arnir koma í heimsókn um kveldið.
Mary gengur inn á þetta og mynd-
in sýnir nú viðskifti Henry og lienn-
ar. Honum geðjasl i fyrstu vel að
þessari siðlátu ungu slúlku, en þó
fer svo brált, að honum leiðist liún
i þeim ham. Fara svo leikar að þau
verða ástfangin hvort í öðru og hann
fyrst fyrir alvöru, þegar lnin er orð-
in eins og hún á að sjer, að öllu
leyti í samræmi við tiskuna.
----X---r-
VENDETTA
heitir áhrifamikil mynd, sem bráð-
lega verður sýnd í Gamla Bíó. Við
hina undurfögru klettaströnd Korsiku
stendur höll Romanis greifa. Kona
hans er frá París og þráir slöðugt
að komast í glauminn og gleðina í
fæðingarborg sinni. í höllinni býr
ung munaðarlaus slúlka að nafni
nafni Maria F'errat, sem liefir fengið
nýtt heimili hjá greifahjónunum og
hugsar uin Stellu litlu, barn þeirra,
með móðurlegri umhyggju. Einn góð-
an veðurdag kemur bróðir Maríu,
Georges að nafni, og ætlar til Amer-
iku eftir að liafa eitt öllu fje sinu.
María biður greifann að veita bróður
sínum starfa og verður það úr, að
hann gerist bústjóri greifans. Greifa-
frúin fær brátt ást á honum og er
maður hennar ætlar í skemtisiglingu,
gérir hún sjer upp veiki og fer hann
þvi einn. Greifafrúin notar þá tæki-
færið og leitar eftir ástum Georges
og fær hann ekki staðist bliðlæti
hennar. Greifinn hreppir mesta ó-
veður á heimleiðinni og fregn kem-
ur um það, að skipið hafi farist.
Greifinn kemst þó lífs af og kemur
heiin til liallarinnar mjög þrekaður
og finnur konu sina í faðmi Georges.
Hann ætlar að þrífa til konu sinnar
en hún æpir á hjálp og Georges
lileypir af byssu sinni. Greifinn fellur
til jarðar í blóði sínu, en þau flýja
saman til Frakklands. Lifa þau þar
frjálsu llfi um hrið, en brátt verður
hún leið á Georges, vegna þess að
hann hefir ekki nóga peninga til þess
að fullnægja þörfum hennar. Bindur
liún þá fjelag við Austurlandamann
einn auðugan, Hassan Salem að
nafni, sem er mjög hrifinn af henni.
Víkur sögunni nú til Romanis greifa.
Hann grær loks sára sinna eftir langa
legu, og nú bíður liefndarskyldan
lians að korsíkönskum sið. Tekur
hann sjer nú ferð á hendur og fær
upplýsingar um dvalarstað konu sinn-
ar. Þegar greifinn kemur inn til henn-
ar er hún nýbúin að lenda í ákafri
deilu við Georges og er að bíða eftir
Hassan Salem. Þegar hún sjer greif-
ann verður hún hálftrylt af hræðslu
og ætlar að flýja, en alt í einu gellur
byssuskot og hún fellur dauð niður.
Litlu síðar kemur Hassan og sjer á
eftir greifanum. Hann gerir lögregl-
unni viðvart og Romani er tekinn
fastur. Byrjar nú málsókn á hendur
lionum og böndin virðast öll berast
að honum, en á síðustu stundu næst
i hinn rjetta morðingja og játar hann
glæp sinn.