Fálkinn - 13.09.1930, Page 8
8
F A L K 1 N N
Myndin hjer að ofan er tekin úr lofti af Glamis-höllinni í Skot-
landi. 1 höll þessari hafa margir sögulegir atburðir skeð frá því
á miðöldum. Nú býr þar hertoginn af York, næstelsli sonur
Breta-konungs. Fyrir skömmu drö höllin enn á ný athygli
manna að sjer, því að þar var von á erfingja og fóru þangað
nokkurir af hálfu stjórnarinnar til þess að vera viðstaddir sam-
kvæmt gamalli venju. Það er gamall siður í Englandi, að ein-
hverjir ráðherranna sje viðstaddir, þegar barn fæðist, sem get-
ur komið til máda sem ríkiserfingi.
í sumar var haldið í London fjórða alþjóðaþing um alifugla-
rækt. Fyrsta þingið var haldið í Hollandi 1921, annað á Spáni
192h og hið 3. í Kanada fyrir þremur árum. Verndari þingsins
er Englandskonungur og prinsinn af Wales. í sambandi við þing-
ið er sýning mikil á alifuglum, hænsnum, öndum, gæsum, dúfuni
o. s. frv. frá ýmsum löndum, og var hún haldin í liöll þeirri hinni
miklu og fögru, er hjer birtist mynd af. Ileitir hún „Kristalshöll'
in‘‘ og var bygð fyrir heimssýninguna í London 1851, en nú er
höllin listasafn, miljón kr. virði.
Frá vígslu nýja langskipsins í dómldrkjunni i Niðarósi. Fyrir
altari stendur Stören byskup.
í Sidney í Áslralíu er nú verið að reisa brú eina geysimikla.
Verður það hæsta brú í heimi svo að stærslu skip gela siglt
undir hana. Brúin er mjög breið; liggja efiir he.nni h járnbraut-
arspor, 2 gangstjettir og akbraut, sem er 57 feta breið. Byrjað
var að reisa brúna árið 192h og er búist við að hún verði opn-
uð til umferðar að ári liðnu. t brúna fara alle 57.000 tonn af stáli.