Fálkinn - 13.09.1930, Side 11
F A L K I N N
11
Yngstu lesendurnir
Maðurinn og náttúran.
Allar uppfundningar mannanna eru
lítilfjörlegar eftirlikingar á liinum
miklu smíðum náttúrunnar. Enginn
hefir nokkurntíma getað komist v
hálfkvisti við liinn mikla smið, og
allir þeir hlutir, sem við köllum upp-
fundningar, framfarir í vjelheiminum
o. s. frv., eiga merkilegar fyrir-
ttiyndir í náttúrunni.
Fyrirmynd og eftirlíking.
Eitthvert hið merkilegasta verk-
færi sem náttúran hefir skapað er
höndin. Hún vinnur fyrir daglegu
brauði, og stingur því upp i munn-
inn á okkur. Óhjákvæmileg til þess
að starfa með og góður vinur þegar
þarf að verjast óvinunum.
Þegar maðurinn þurfti að fara- að
gera sjer verkfæri til hjálpar hend-
inni datt honum ekki snjallara ráð
í hug en að líkja eftir hreyfingum
hennar.
Líttu á grip handarinnar, er það
ekki fast og fallegt, eftir þessu var
naglbíturinn búinn til, og töngin var
búin til á sama hátt eftir öðru taki
handarinnar (sjá 1. 2. 3. 4.).
Tvö augu.
Einhver nákvæmasta uppfundning
seni gerð hefir verið er myndavjel-
in, en hún er eftirlíking af auganu.
Aðeins er sá mismunur, að það
verður að mæla út lengdir og stækka
°g minka ljósop vjelarinnar, en þetta
gerir augað sjálft.
Hugsaðu þjer nú hvernig þetta skeð-
ur.
Sjáaldrið tekur myndina og fram-
kallar hana á nethimnunni, en það-
an flytur sjóntaugin hana til heil-
ans. Myndavjelin vinnur hjer um bil
á sama hátt.
Hreyfanlegt vígi.
Siðan lifið hófst á jörðunni hafa
verið háðir blóðugir bardagar, hin-
ir sterku sigruðu hina minni máttar,
hinir slóttugri rjeðust á þá sem frið-
samari voru og daufgerðari.
Eitt dýranna var það þó, sem ekki
var hægt að yfirbuga, en það var
skjaldbakan. Hinn þykki skjöldur
hlífði henni fyrir öllum árásum, hún
dró höfuð og fætur inn undir skjöld-
inn og var ósæranleg.
Þetta óálitlega og seinfæra dýr
tóku menn til fyrirmyndar þegar
þeir ljetu gera „tankana" í siðasta
stríði. Hinir þykku veggir vernda
þá, sem í bílnum ei’u fyrir skothríð-
inni, eins og skjöldurinn dýrið.
Til eru stórar brýr, sem bygðar
eru í boga og hvíla ekki á neinum
stöplum. Þetta byggingarlag er til
orðið eftir mikil heilabrot og út-
reikninga verkfræðinganna.
Slíka brú, alveg eins fallega bygg-
ir náttúran sjálf án minstu erfið-
ismuna i hvert sinn sem hún skap-
ar eitt hinna stóru spendýra. Fjar-
lægðin milli fram og afturfóta er svo
mikil að væri þetta mannleg bygg-
ing myndi vera mikil hætta á að
hún hryndi.
Sjálfur geturðu auðvitað fundið
mörg dæmi hins sama. Flugvjelin
er t. d. alveg eins og fugl i laginu.
Neðansjávarbáturinn er bygður
eins og fiskur, já, jafnvel hugmynd-
ir til skrauts og útsaums verðum
við að sækja í dýra og jurtaheim-
inn. Náttúran er hin mikla fyrir-
mynd vor og góði leiðbeinandi.
Felumynd.
Þarna er tigrisdýrið. Hvar eru
veiðimennirnir, sem eiga að leggja'
það að velli?
Á árunmn 1916 til 1928 fóru fram
alls 7763 hjónavigslur hjer á landi.
Og hvar og hvernig lætur fólk gifta
sig? Langflestir fara heim til prests-
ins og láta gefa sig saman þar, eða
um 60 af hverjum hundrað brúðhjón-
um. í kirkju voru aðeins tæplega
tólf af hverjum 1000 brúðhjónum
gefin saman árið 1928, á heimili
annarshvors brúðhjónanna eða kunn-
ingja þeirra 21.6 af hundraði og hjá
sýslumanni eða bæjarfógeta 6.7 af
hundraði. Það fer sívaxandi, að fólk
láti gefa sig saman á heimili prests-
ins, enda er það lika handhægast.
Af hjónavígslum i Reykjavík árið
1928 fóru af hverju hundraði um 80
fram hjá prestinum, 8,3 í heimahús-
um, 4,5 í kirkju og 7,3 hjá bæjarfó-
geta. íbúðir prestanna í Reykjavik
eru því þau húsakynni, sem lang-
flestar vígslur fara fram í af öllum
húsum hjer á landi. Þess má geta,
að Reykvíkingar eru ekki eins hrædd-
ir við að láta gifta sig í kirkju og þeir
voru fyrir nokkrum árum. Á árun-
um 1916—’20 giftust þar aðeins 1*4
af hundraði í kirkju, en árið lff27
6,8 hundraði.
-----x----
Stúlka ein i London var nýlega gift
símleiðis unnusta sínum, sem á heima
á Java. Var þetta gert til þess, að
hún þyrfti ekki að hlíta ýmsum á-
kvæðum um útlendinga, sem lögum
eru samkvæmt og krafist er af þeim,
sem koma inn í landið.
Hjón ein i Pennsylvaníu giftu sig
fyrir skemstu sjálf á þann hátt að
þau tókust í hendur, að borgarstjór-
anum ásjáandi og sögðu bæði í senn:
Nú erum við gift. Og borgarstjórinn
hefir viðurkent að þetta hjónaband
sje löglegt. Það er ekki að ástæðu-
lausu að Ameríka er stundum kölluð
land frelsisins. Þegar þau skilja, þá
fara þau vitanlega til borgarstjórans
og segja: Nú erum við skilin. Og
borgarstjórinn tekur það vitanlega
gilt, ekki síður en hitt.
Brasso
ber sem gull j
af eiri af
öðrum
f æ g i 1 e g i. |
Fæst alstaðar. •
IIUIU •■••■•■• •••■■■•• iuuiu
[ Tækifærisfljafir j
Fagurt úrval.
■
■ Nýjar vörur. — Vandaðar
■
vörur. — Lágt verð.
■
Verslun
■
Jóns Þórðarsonar.
m
i
í M á I n i n g a -!
í í
vörur
: :
Veggfóður
| :
: Landsins stærsta úrval.
í »MÁLARINN« |
■ ■
Reykjavik.
| VeWiáhöId. Skotfæri.!
■ s
Nýr verðlisti nýútkominn. — •
■ 5
■ Sendur ókeypis þeim sem áhuga |
I hafa á slikum vörum.
■ ■
Harald Börpesen,
■ ■
Frederiksberggade 28,
Köbenhavn. £
Áteiknaðar hannyrðir
fyrir hálfvirði.
Til þess að auglýsa verslun vora
og gera áteiknaðar vörur vorar
kunnar um alt ísland á sem skjót-
astan hátt bjóðum vjer öllu ís-
lensku kvenfólki eftirtaldarvörur
1 áteikn. kaffidúk .. 130xl30cm.
1 — ljósadúk .. 65 X 65 —
1 — „löber“ ... 35 X100 —
1 — pyntehandkl. 65x100 —
1 — „toiletgarniture" (5 stk.)
fyrir danskar kr. 6,85 auk burð-
argjalds.
Við ábyrgjumst að hannyrðirnar
sjeu úr 1. fl. ljerepti og með feg-
urstu nýtísku munstrum. Aðeins
vegna mikillar framleiðslu getum
við gert þetta tilboð, sem er hafið
yfir alla samkepni.
Sjersiök trygging vor: Ef þjer
eruð óánægð sendum við pen-
ingana til baka.
PöntunarseðillFálkinn 13. sept.
Nafn ..........................
Heimili........................
Póststöð ......................
Undirrituð pantar hjermeð
gcgn eftirkröfu og burðargjaldi
.......... sett hannyrðaefni á
danskar kr. 6,85 settið, 3 sett
send burðargjaldsfrítt.
Skandinavisk Broderifabrik,
Herluf Trollesgade 6,
Köbenhavn K.
Léreltstuskur kaupir Berbertsprent