Fálkinn - 24.01.1931, Side 2
2
F Á L K I N N
------ QAMLA BIO ------------
Dóttir skrælinfljans.
Sjónleikur í .8 þáttum
frá jökulbreiðum Grœnlands,
samkvæmt skáldsögu
Einer Mikkelsen:
„John Dale“. Myndin er tekin af
A/S Skandinavisk Talefilm, lcik-
ið er á norsku og sænsku.
AðalhJutverk:
Mona Mártenson,
Ada Egede Nissen,
Paul Richter.
PILSNER
BEST. ÓDÝRAST.
INNLENT.
ÖLGERÐIN
EGILL SKALLAGRÍMSSON.
PHIUPS
2601.
Nýtt 4-lampa tæki frá PHILIPS,
með innbygðum „dynamiskum“
gelli.
Fæst aðeins fyrir riðstraum.
Verð kr. 690.00.
Eins árs ábyrgð.
GeflningarstOð i Reykjavik
Fjölbreyttast úrval:
Kápur, Kjólar, Kjólaefni.
Káputau, Prjónavörur,
Nærfatnaður, Sokkar,
Vetrarfrakkar, Regnfrakkar.
Treflar, Bindi, Húfur, Hattar.
H^Verslunin Egill Jacobsen^
Best að auglýsa í Fálkanum
------- nýja bío ------------
AuflnaMikstilfinninfl.
Skemtilegur og áhrifamikill sjón-
leikur í 8 þáttum, tekinn af
Warner Bros, undir stjórn
G. Fitzmaurice.
Aðaililutverk:
Billie Dove og
Rod la Roque.
Myndin eftir frægri sögu ensku
skáldkonunnar Ellinor Glyn.
Sýnd bráðlega.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
s PEYSUFATASILKI.
Alklæði, 4 tegundir. j
Silkifiauel og alt til j
peysufata. Upphluts- j
silki. Upphlutsskyrtu- [
efni.
: SKINNHANSKAR.
:
Silkisvuntuefni. Slifsi. j
Vetrarsjöl, tvilit.
Kashmirsjöl.
■
■ Nýkomið í
Soffíubúð
S. Jóhannesdóttir.
Austurstræti 14. Reykjavik.
Talmyndir.
■■■■■■■■■■■■■■■■
AUGNABLIKSTILFINNING
Mynd með þessu nafni liefir verið
gerð af Warner Bros eftir sögu Elli-
nor Glyn. Saga þessi lýsir tilfinning-
um ungs ríkisfólks i Bandaríkjunum
og eru aðalpersónurnar ung stúlka,
Joan að nafni, sem Billie Dove leikur,
ógiftur auðmaður, Michael, leikinn
af Rod la Roque, ljettúðug kona, sem
Viola heitir (leikin af Gwen Lee) og
bróðir hennar, drykkjumaður og
iandeyða, sem lifir á systur sinni
(Robert Schable). Myndin gerist á
baðstað í Bandaríkjunum.
Joan er foreldralaus en lifir hjá
fjárhaldsmanni sínum, sem er önug-
ur og stirðlyndur, en Michael getur
ekki varist ágengni Violu, sem vill
endilega giftast honum, til þess að
ná i auðæfi hans. Þeim kemur jjvi
saman um, honum og Joan að giftast
til málamynda, til þess að losna við
Violu og fjárhaldsmanninn. Fundum
þeirra hefir borið saman á þann hátt
að Joan hefir lirapað í flugvjel sinni
niður á sjóinn skamt þar frá, sem
Michael var að skemta sjer í báta-
póló, og liefir hann bjargað henni,
og kynnast þau upp úr því.
Kvikmyndin er afar íburðarmikil
óg lýsir vel iifi ameriskra iðjuieys-
ingja. Skemlilegir eru boltaleikirnir
við I.ong Island, þar sem keppend-
urnir hamast kringum vatnsknöttinn
á afar hraðskreiðum vjelbálum. Og
Joan fer ekki varhluta af að leggja
sig í hættu þarna, t. d. hrapar hún
tvívegis i flugvjel.
Þetta er bæði tón og talmynd og
talið er skýrt. Myndin er búin til leiks
af George Fitzmaurice, sem áður hefir
stjórnað leik margra ágætra mynda.
„Augnablikstiifinningin" verður
sýnd í Nýja Bíó innan skamms.
-------------------x-----
DÓTTIR SKRÆLINGJANS.
Þessi mynd hefir verið tekin með
milcilli eftirvæntingu alstaðar á
Norðurlöndum og fengið afar mikla
aðsókn víðast hvar, enda er rnynd-
in norræn að ýmsu leyti. Einar
Mikkelsen Grænlandsfari hefir skrif-
að sögupa, sem hún byggist á, um
ameríkönsku landeyðuna Jack Nor-
ton, sem kemsl óviljandi með sel-
veiðara norður í Eskimóabygðir og
verður að lokum svo hugfanginn af
lífinu þar — og ekki síst Eskimóa-
stúlkunni Ekaluk, að hann vill. ekki
skilja við hana aftur og kýs að
dvelja áfram með Skrælingjunum,
þegar honum býðst að komast burt
jiaðan aftur.
Þetta er hljóðmynd, tekin með
hinum dönsku tækjum Petersen &
Poulsen. Norska frúin Ada Egede-
Nissen átti mikinn þátt í því, að ráð-
ist var í að fara til. Grænlands og
taka þessa mynd og eru margir leik-
endurnir norskir. Leikur hún sjálf
mjög stórt hlutverk en eitt aðal-
hlutverkið í karlmannahóp leikur
Haakon Hjelde, Norðmaður sem
leikið liefir í ýmsum kvikmyndum,
norskum og frönskum. Hann leikur
Skrælingja og tekst vel. En hvíta
manninn, Jack Norton leikur Þjóð-
verjinn Paul Richter, hinn alkunni
ágæti leikari og Skrælingjastúlkuna
sænska leikkonan Mona Mártenson
og eru þau hlutverk bæði afbragðs-
vel leikin.
Mynd þessi er mjög eftirtektar-
verð bæði fyrir leikinn og ekki síst
vegna umhverfisins, sem hún er leik-
in i. Maður sjer þar grænlenska nátt-
úrufegurð og kynnist mjög vel ýms-
um háttum Skrælingja, því að gera
má ráð fyrir að rjett sje með farið
það grænlenska í inyndinni, þvi að
fjelagið hefir notið aðstoðar manna,
sem hafa dvaLið árum saman í Græn-
landi, t. d. danska rithöfundarins
Helge Bangsted. — Myndin verður
verður sýnd bráðlega í Gamla Bió.
Viðskiftin líka best
við Herbertsprent.