Fálkinn - 24.01.1931, Blaðsíða 9
F A L K I N N
9
/ byrjun áfriðarins voru ullir dýrgripir Rússakeisara lokaðir
niðri í eldtraustum kjöllurum og fluttir úr vetrarhöllinni í Petro-
grad. Ráðstjórnin fann ekki suma af þessum fjársjóðum fyr en
1922 og voru ]>á dýrgripirnir fluttir til Moskva og eru þeir geymd-
ir þar ásamt ýmsum öðrum gripum, sem teknir hafa verið eign-
arnámi af ýmsum höfðingjum landsins. Dýrgripir krúnunnar
kosta ógrynni fjár og hefir stjórnin selt mikið af þeim en á þó
eftir alla þá dýrmætustu — geymir þá sem einskonar varasjóð.
Hjer á myndinni sjást nokkrir af þessum merkilegu gripum, en
alls eru þeir um 400. Að ofan til vinstri er koffur drotningarinn-
ar, er það alsett safírum og gert um aldamótin 1800. Til hægri
er annað liöfuðdjásn, sem víða má sjá á myndum af Elísabetu
drotningu, konu Alexanders fyrsta. Að neðan til viristri er enn-
isspöng og brjóstnæla úr turkísum og í miðjunni spegilkúla úr
gulli, með silfurumgerð og krossi að ofan, sem stendur á stórum
safírsteini. Er þessi gripur gerður nálægt 178h á ríkisstjórnar-
árum Katrínar miklu. Kórónan til hægri er frá sama tíma, gerð
af Posier hirðgullsmið Katrínar.
Nú er alstaðar talað um atvinnuleysi, hungur og vandræði, ekki
síst í dollaralandinu Bandaríkjunum, þar sem alt hefir verið í
lmlda koli síðan hrunið mikla kom fyrir rúmu ári. Miljónir
manna ganga atvinnulausar í stórborgunum vestra og margir
þeirra hafa ekki þak yfir höfuðið. Myndin hjer að ofari er tekin
um borð á skipi á höfninni í New York. Húsnæðislausir menn
hafa fengið náttstað á yfirbygðu þilfarinu, því að huergi var
skjól að fá í landi.
Nýi timinn ryður sjer til rúms í Kína eins og annarsstaðar. Hjer
á myndinni má sjá, að kínversku stúlkurnar tolla í tískunni.
Á fyrirmyndarbúi einu í Ameriku hefir verið tekin í notkun ný
uppfinning, sem gerir kleyft að mjólka 50 kýr samtímis á fáein-
um mínútum. Básarnir eru þannig, að þeim má snúa í hring og
mjólkin sogast gegnum glerpípur út í aðrar stærri pípur, sem
liggja inn í mjólkurbúið.
Á Spáni hafa verið sífeldar óeirðir undanfarið og lögreglan hefir
nóg að gera. Hjer sjest ríðandi lögregla á stræti í Barcelona.