Fálkinn - 04.04.1931, Blaðsíða 1
r
FRA UMANAKFIRÐL
Umanakfjörðurinn er á veslurströnd Grænlands skamt [ijrir norðan 70 breiddargráðu, eða að kalla má andspænis Scoresby-
sundi á austurströndinni. Þessi fjörður er langt fyrir norðan hinar fornu Grænlandsbygðir, en Eskimóar hafast þarna við
í smáþorpum meðfram firðinum og er stærsta þorpið Umanak. Þessi fjörður er orðinn talsvert kunnur umheiminum, vegna
þess að það er við botn hans, inni á jökulröndinni, sem leiðangur próf. A. Wegener hefir aðalbækisiöð sína. Myndin hjer
uð ofan lýsir vel tign Grænlands að sumarlagi, þegar risháir borgarísjakar sigla fannhvítir um firðina baðaðir sumarsólinni.
Myndin er tekin af próf. Wegener.