Fálkinn - 05.09.1931, Qupperneq 1
16 siðar 46 anra
IV.
Reykjavik, langardaginn 5. sept. 1931
36.
HDN6URSNEYB í KÍN4
IJklega hefir engin þjóð veraldar
haft af jafn miklu höli að segja síð-
ustu tuttugu árin eins og Kínverjar.
Síðan 1912 má lieita að samfeld
borgarastyrjöld hafi geysað um
þetta víðlenda ríki, ræningjaflokk-
ar farið um landið og drepið fólk
og rænt það og kveikt í híbýlum
þess, eða þá að herlið fjandmann-
anna hefir látið greipar sópa um alt
sem matarkyns fanst í heilum hjer-
uðum og skilið fólkið eftir svelt-
andi og deyjandi. Heil fylki hafa
komist á vonarvöl af þessum ástæð-
um og hundruð þúsunda eða jafn-
vel miljónir reynt að flýja land og
komast fil Mandsjúríu undan yfir-
gangi böðlanna. Við þetta hefir svo
bæst uppskerubrestur og vatnsflóð,
sem hafa gert út af við fjölda fólks.
Vppskeran hefir eyðilagst svo herfi-
lega, að Kínverjar sem fleyta utan-
rikisverzlun sinni á útflutningi hrís-
igrjóna að jafnaði hafa ekki sjeð
sjer annað fært en að biðja Banda-
ríkjastjórnina um að lána sjer korn
til þess að draga úr neyð þeirra
mörgu miljóna, sem mist hafa al-
eigu sína í vatnavöxtunum. Kínverj-
ar lifa einkum á hrísgrjónum en
neyta aðeins að litlu leyti fæðu úr
dýraríkinu. Er því konunatarþörf
þeirra afar mikil. Hrísgrjónaekrur
Kínverja eru mjög frjósamar þegar
ekki ber óhöpp að höndum, svo að
bændurnir hafa ekki nema 1—3
hektara lands hver, eða eins og kot-
býlistún hjer á landi, en yrkja það
með afar mikilli vandvirkni. lljer
á myndunum eru sýndar hrísgrjóna
ekrur i Kína. Á þeirri efri sjást
bændur vera að plægja forareðjuna,
sem hrísgrjónunum er sáð í; eru
naut noluð til að draga plóginn. En
á efri myndinni sjest akurinn full-
vaxinn og hefir verið skorið upp af
parti á honum.
.............................yrr-
■
■ .. .
t