Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1931, Blaðsíða 2

Fálkinn - 05.09.1931, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N ----- QAMLA BIO --------- V erslunarstúlkurnar. Bráðskemtileg liljómmynd tekin af Metro-Goldwyn undir stjórn Sam Wood. Aðalhlutverkin leika hinar heimsfrægu dansmeyjar DUNCAN SISTERS (Rosetta og Vivian) og LAWRENCE GRAY. Myndin er bæði skemtileg og iburðarmikil og ætti enginn að sitja sig úr færi að sjá hinar á- gætu dans- og söngmeyjar, sem stórfrægar eru um alla veröldina Sýnd bráðlega. PROTOS ryksugan Siemens-Schuckertwerke, Berlín. w K-A-R-L-M-A-N-N-A-S-K-Ó-R Ótal teg. nýkomnar, t. d. Sandalaskór, afar liprir og ljettir, Flóka- skór, Dansskór, Reið- og Ferðastígvjel úr leðri og gúmmíi. Lárus G. Lúðvígsson, skóverslun. ------ NÝJA BÍO ---------- Oveðursnóttin. Spennandi sjónleikur um ástir gullgrafara, tekinn af Universal, undir stjórn William Wyler, eftir samnefndri skálsögu Langdon Mc. Cormich. Aðalhlutverk: LUPE VELEZ, PAUL CAVANAUGH og WILLIAM >BOYD. Gleymið ekki að sjá þessa hríf- andi mynd. Hún kemur bráðlega. ■ ■ Soffíubúð ■ ■ S. Jóhannesdóttir. Reykjavík og ísafirði ■ ■ j eru bestar vefnaðarvöru- og fata- verslanir íslands. ■ ■ - ■ ■ Tilbúmn fatnaður ■ innri sem ytri á konur, karla og börn. Álnavara 5 bæði til fatnaðar og heimilisþarfa ■ ■ V Prjónavorur ■ ■ Alt með lægsta verði. ■ ■ • Vörur sendar gegn póstkröfu um alt land. ■ ■ j Símar: í Reykjavík 1887 — 2347. j á ísafirði 21 — 42. £ ! ! Hljómmyndir. 'itm' mm Hattabúðin Hattabúðin Austurstr. 14 Nýjung: M Þessi kvöldin eru sýndar i Nýja Bíó fyrirmyndir af §» sumum nýjuhöttunum, sem tiskanhefir valið, frá tíma- f! bilinu 1880—’90 — afar klæðilegir og ódýrir. 8 Anna Ásmundsdóttir VERSLUNAR- Mynd þessi er sam- STÚLKURNAR. in fyrir aðalleikend -------------- urna: hinar frægu Duncan Sisters, sem þykja með allra snjöllustu „variete“-dansmeyjum nú- tímans og eru frægar um allan heim. Hún segir frá systrunuin Casey og Babe Hogan, sem eru afgreiðslu- stúlkur í stóru erlendu vöruhúsi og una þar lítt hag sínum. Casey er mesti óróagepill og ærsladrós en Babe alvörugefin. Einu sinni sýnir starfsfólkið í vöruhúsinu gamanleik með aðstoð pianistans Jimmy Dean og leika systurnar aðalhlutverkin. Leikurinn fer vitanlega í hundana, en leikfróður maður, sem hefir horft á, sjer að það muni vera hægt að gera fjölleikahúsþátt úr systrunum og Jimmy. Þetta gengur þó ekki eins vel og ætlað var. En Babe gift- ist Jimmy og þau sigla sinn sjó, en verður lítið ágengt á listamanna- brautinni og Casey ekki - heldur. Löngu seinna hittir Casey deildar- stjórann úr verslunarhúsinu, sem hefir verið ástfanginn af henni forð- um daga. Hann á að taka við for- stjórn útbús í París og biður hana um að verða konan sín og koma með sjer. Casey játast honum strax. En í sama bili frjettir hún að Babe syst- ir hennar sje veik og kýs heldur að fara til hennar en giftast. Babe batn- ar og þær systurnar skiljast ekki eftir það og nú bíður þeirra frægðin. Myndin er einkum eftirtektarverð fyrir leik þeirra Duncan systra, sem leika þarna aðalhlutverkin. Hvar sem þær koma keppist fólkið um að sjá þær og vinsældir þeirra eru sjer- stakar. Vivian Duncan er grönn og ljóshærð, blíðleg og aðlaðandi en Rosette litil og hnubbaraleg, altaf full af ærslum og lilægilegum tiltekt- um. Báðar syngja þær og dansa á- gætlega og hreyfingar þeirra eru al- veg eins í dansinum og sjest þar best systramótið. En það sem skemtileg- ast þykir við þær er hvað ólíkar þær eru í skapsmunum. Þær eru fæddar í Los Angeles og byrjuðu að dansa opinberlega þegar þær voru 16 ára. Brátt komust þær til New York og ljeku og dönskuðu í skemtileikjum á ýmsum stærstu leikhúsunum þar. í London sýndu þær sig í gamanleikn- uin „Topsy og Eva“ sem var saminn fyrir þær sjerstaklega og var tekinn á kvikmynd löngu áður en hljóm- myndirnar komu til sögunnar. Lawrence Gray, sem leikur Jim- my byrjaði tilveru sína í Hollywood sem aðstoðarmaður við Ijósin, en notaði þessa aðstöðu sína til þess að ná í hlutverk í forföllum annara. Og það tókst og hann var orðinn frægur áður en hann vissi af. Hann fer ágætlega með hlutverk sitt í þess- ari mynd. Og skopleikararnir Jed Prouty og Benny Rubin hafa einnig bráðskemtileg hlutverk. „Verslunarstúlkurnar" verða sýnd ar bráðlega í Gamla Bíó. ÓVJíÐURS- Mynd þessi, sein sýnd NÓTTIN. - verður á næstunni í ----------- Nýja Bíó, gerist í gull- grafaraþorpi einhverstaðar í Alaska. Fólkið er að bíða eftir póstbílnum, og sá sem bíður hans með mesti ó- óþreyju er ungur námueigandi, Burr að nafni. Hann á von á peningum, en þeir koma ekki og honum stend- ur það á miklu, vegna þess að hann hefir lent i fjárhættuspili við annan gullgrafara og tapað 5000 dollurum, sem hann á að borga fyrir sólarlag í kvöld, — ella missir hann námuna. Til þess að fá peningana hafði hann skrifað ríkum kunningja sínum, Dave Stewart og beðið hann um lán. Loks þegar sólin er að ganga til viðar kemur Dave sjálfur með pen- ingana, en sá sem á að taka við þeim segir, að sólin sje gengin undir, þangað til Dave fer með hann upp á húsþak, en þaðan má sjá síðustu geislana við sjóndeildarhringinn. Burr býður Dave, sem er borgar- búi, að vera hjá sjer um veturinn í kofa sinum og hann þiggur það. Fer það besta á með þeim þangað til eirin góðan veðurdag, að þeim verður litið út, við að óp heyrist. Þarna úti liggur Fachard námu- grafari, vinur Burrs, særður til bana, og yfir honum stendur dóttir hans. Fachard hafði fengist við smyglun og lögreglan komist á snoðir um þelta og elt hann er harin flýði og skotið hann á flóttanum. Hann and- ast þarna í kofa Burrs, er hann hefir beðið hann að sjá um Nanetlu dótt- ur sína. Nanetta sest þarna að og nú er bráðlega úti friðurinn milli þeirra Framh. á bls. 15. Komið nú og látið ransaka sjón yöar á Laugaveg 2. Þaö fer aö dimma og þess vegna er þaö nauðsynlegt aö fá sjor hin rjettu gleraugu. Komið þvf strax boint til sjerfræðingsins á Lgv. 2. i

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.