Fálkinn - 25.06.1932, Side 7
F Á L K I N N
7
Arabiskur kastali á kletti, milli Aden og Oman.
verðu á Arabíuskaga, elcki langt
frá Indlandshafi. Hefir Hall-
fritz nú sagt frá hinni einkenni-
legu ferð sinni og er frásögnin
eftirtektarverð ef sönn er, sem
tæplega er að efast um.
I Hadramutlandi hefir Hell-
l'rilz komið í marga bæi, þar
sem aldrei liefir komið hvítur
maður áður. Og þessir bæir eru
svo fullkomnir og vel frá þeim
gengið í alla staði, að furðu
gegnir. Hefir hann tekið mynd-
ir þaðan, sem sýna, að þessar
Arabakynkvíslir hafa verið
langt á undan Evrópumönnum
og Ameríkumönnum í bygging-
arlist og má nefna, að þeir hafa
lckið upp á því að byggja skýja-
kljúfa löngu áður en þeir kom-
ust i lísku fyrir vestan haf.
Þarna hefir hann sjeð lms, sem
eru tíu hæðir, bygð í fallegum
og lireinum stíl og af rústum
sem hann hefir sjeð þykist liann
geta ráðið að fyrrum hafi stað-
ið þarna liallir, sem voru alt að
tultugu hæðir.
í þessu lokaða landi hefir
hann sjeð ýmsar uppgötvanir
vesturlanda, uppgötvanir sem
talið er að gerðar bafi verið í
Evrópu og liljóta að vera komn-
ar þaðan. Þarna eru bifreiðar
og vopnin sem notuð eru eru
af nýjustu og fullkomnustu
gerð. Sement er notað þarna til
bygginga. En hvíta menn vilja
þessir Arabar ekki fá inn í
landið. Þarna er enginn Ev-
rópumaður, en kaupmennirnir
Setuliðsskálinn i bœnum Terim í
Yemen.
innfæddu reka verslun við hvíta
menn og kaupa af þeim vörur.
Hellfritz sætti bestu meðferð
þarna syðra, vegna þess að
hann var skjólstæðingur sold-
ánsins. En hvorl lionum verður
leyft að koma inn í landið aftur,
eftir að hann hefir ljóstað upp
leyndarmálum þess skal látið
ósagt. Hellfritz hafði sem sje
lofað soldáninum að taka ekki
myndir en ekki efnt það heldur
svikið. Segist hann ekki hafa
getað staðist freistinguna, að
festa á ljósmyndapappírinn
þessi undur sem liann sá. Og
þegar litið er á myndirnar er
þetta ekki láandi.
Um víða veröld.
----X--—
HLJÓMLEIKAR HJÁ ABDUL HAMID
Fiðlusnillingurinn Florizel von
lteuter, sem kom hingað lil lands
fyrir nokkrum árum, segir í Endur-
minningum sínum á þessa leiÖ frá
hljómleikum, sem hann hjelt fyrir
Abdul Hamid, þáverandi Tyrkja-
soldán:
Þegar jeg var tíu ára fór jeg fyrstu
hljómleikaferð mína tit Austurlanda
og hjelt nokkra hljómleika í Kon-
stantínópel. Einn daginn kom einn
af kammerherrum soldáns lil mín
og tilkynti mjer mjer, að hans há-
tign óskaði að jeg kœmi i Yldishöll
á tilteknum degi, kl. 12 á miðnætti.
Það reyndist hægra orkt en gjört að
komast inn i höllina, því að jeg varð
að fara um ótal hlið og alstaðar voru
varðmenn. Höllin stendur á hæð, en
alt i lcring eru bústaðir hjákveuna
soldánsins. Ráðsmaður minn varð
að borga margan skildinginn til þess
að fá ftjóta afgreiðslu hjá varðmönn-
unum og samtals urðu þetta nokkur
lyrknesk pund. Loks komumst við
leiðar okkar, svo var mútunum fyr-
ir að þakka.
Jeg var sendur að tjaldabaki á
hirðleikhúsi hallarinnar og' þar
kendi margra grasa. Mjer var ætlað
að leika eitt lag á fiðlu, lið í stórri
skemtiskrá og margbreytlri. Næst á
eftir mjer átti maður einn að sýna
þauttamda hunda. Þeir hömuðust
þarna og gellu. Næst á undan mjer
áttu fimleikamenn að sýna listir sin
ar. Nú á tímum eru menn vanir að
setja íþróttirnar hærra en listina en
þarna við hirð Abdul Hamids var
jjetta metið jafnt. Jeg gægðist gegn-
um gat á fortjaldinu og sá, að grind
var fyrir framan soldánsstúkuna.
Alt kvennabúrið, 200 konur og eins
Fímrhahmdilijd piiœ jea Jwotkmn
. ''seqir María
Rinso
þýðir
mmni vinnu oq
hvítari þvott
STOR PAKKI
d,55 AURA
LÍTILL PAKKI
0,30 AURA
M-R 4 1 -047A IC
Þvotturinn minn er hvítari
en nokkurntíma áöur — en
jeg er líka hætt aí'Ö þetta
gamla þvottabretta nudd.
Fötin, sem eru mjög ólirein
sýð jeg eÖa nudda þau laus-
lega, svo skola jeg þau —-
og enn á ný veröa ]>au
braggleg og hrein og alveg
mjallhvít.
Þvottadagurinn veröur eins
og halfger'Öur helgidagur
þegar ma'Sur notar Rinso.
R. S. HUDSON "LIMITED, LIVERPOOL, ENGLAND
margar dætur, var viðstatt. Þó und-
arlegt megi virðast eignaðist Abdul
Hamid eklti nema tiu syni. Soldán-
inn sat ’í miðstúkunni ásamt þeim
fjórum sonum sinum, sein á lifí voru.
Á miðjum svölunum var saman
kominn fjöldi pasha. Voru þeir allir
i skrautlegum einkennisbúninguin og
með fjölda af heiðursmerkjum. Svo
byrjaði sýningin og íþróttamennirn-
ir ljeku lislir sinar. Á undan sýn-
ingunni var mjer sagt, að í hvert
sinn sem jeg heyrði bjöllu hringt
yrði jeg að herða á hraðanum og
ekki liætta meðan jeg heyrði í bjöll-
unni. Var mjer sagt að vetja lög, sem
gengi fljótt.
Jeg hafði tæpasl lokið við fyrsta
lagið þegar jeg lieyrði bjöllunni
hringt. Það var soldáninn sjálfur,
sem hjelt á þessari bjöllu, svo að
jeg varð að halda áfram. í hvert
sinn sem jeg hafði lokið við lags-
part hrópaði soldán ,,bravó“ með
djúpri raust og hringdi aftur. Jeg
Ijek þarna í heilan kukkutíma með
mesta hraða, sem jeg gat. Loks hefir
soldáninn liklega munað eftir hund-
unum, seni áttu að koma næst á eft-
i r mjer, því að nú þagnaði klukkan.
Nú kom kammerherra með fez fram
á leikhúsgólfið og staðnæmdist fyr-
ir framan stúku soldáns og lyfti upp
báðum höndunum. Var hann með
heiðursmerki í annari hendinni en
smápoka með tvö hundruð tyrknesk-
um pundum í gulli i hinni. Jeg hafði
hugsað mjer að notá hina rjettu
tyrknesku kveðju er jeg heilsaði
soldáninum: að leggja höndina fyrst
á hjartastað, síðan á munninn og
loks á ennið. Það þýðir: jeg lifi,
tala og hugsa um þig. Til þess að
gera þetta vnrð jeg að lialda fiðl-
unni, heiðursmerkinu og gullpokan-
um i vinstri hendinni á meðan, en
svo illa vildi til, að jeg misti gull-
þokann og valt innihaldið úr honum
í allar áttir. Heyrði jeg þá l'liss úr
slúkum kvennanna. Jeg gat þó heils-
áð á viðeigandi hátt og týndi siðan
upp gullið og fór út. Peniugunum
var stolið frá mjer á gistihúsinu dag-
inn eftir, enda þótt jeg þættist hafa
falið þá vel. En orðuna á jeg enn,
til niinnis um einkennilegustu hljóm-
leikana sem jeg hefi verið viðstadd-
ur.
-------—--------------
Greta Garbo er nú skilin við Hol-
lywood fyrir fult og alt, að þvi er
sagan segir. Fjelag það, sem hún
hefir verið ráðin hjá vildi ekki missa
hana og hafði hoðið henni 50.000
krónur á viku fyrir að verða áfram,
en leikkonan var ófáanleg til að taka
því boði. Sagt er að hún muni fara
til Sviþjóðar og verða þar framvegis.
-------------------x-----
Liliali Harvey og Willy Fritsch
ætla að gifta sig í haust áður en hún
byrjar starf sitt hjá Foxfjelaginu í
Ameriku. Hafa þau leikið saman í
l'jölda mörgum myndum og hefir
verið sagt, að þau hafi verið gift í
mörg ár, en þau neita því harðlega
og verður vist að taka þau trúan-
leg, því að þau ættu að vita þelta
manna best. Sagt er að Frilsch sje
lika ráðinn hjá Foxfjelaginu og ætli
vestur með konuefninu, enda væri
það hart aðgöngu að gifta sig upp á
það, að annað hjónanna væri i
Þýskalandi en hitt í Ameríku.
o •nn-9 'nivo "Um-o^o j
Drekkiö Egils-öl •
O ••*«!.■ o •*hr O "lu.-0'*0.- 0«*»‘0 "0r -OyO "!*-• O ■•%•• O O "O. O "Oi<• O "Hr •