Fálkinn - 25.06.1932, Qupperneq 8
I
8
F Á L K I N N
Villiþjóðir og hálfviltar hafa á síðustu
árum fengið einskonar „einkasölu“ á
dönsum handa lwítu þjóðunum, og
negrarnir á htjóðfæraslættinum. Þeg-
ar „revg“-kongarnir þurfa á nýjum
dönsum að halda leita þeir uppi Indí-
ána, Malaja eða þesskonar fólk og
spinna svo upp úr dönsum þeirra, eitt-
hvað, sem þeir halda að falli vel í geð
á skemtihúsum stórborganna. Því er
ekki að neita, að margir þessara dansa
eru mjög fagrir, en vitanlega eru þeir
orðnir breyttir frá uppruna sínum, er
þeir koma fram á leiksviðum skemti-
húsanna. Hjer á myndinni til vinstri
sjást ungar stúlkur á Havai vera að
dansa hinn kunna „huladans“ í fjör-
unni.
Þjóðverjar eru allra þjóða mestir öl-
drykkjumenn og þeirra fremstir eru
Bajarar. Myndin hjer að neðan er frá
Múnchen og sýnir bústna fiammistöðu-
konu vera að bera fram öl. Sagt er að
duglegum bjórdrykkjumönnum íBay-
ern veitist Ijett að þamba 15 litra á dag.
>
1 Englandi hefir verið lagður 10% að-
flutningstollur á allan nýjan fisk, sem
útlend skip flytja til landsins, í þvi
skyni að vernda fiskiveiðar þjóðarinn-
ar. Bitnar þessi tollur mikið á íslernl-
ingum. í Englandi eru mjög skiftar
skoðanir um nytsemi þessa tolls og
halda margir því fram, að hann komi
ekki að tilæluðum notum en verði að-
eins til þess að gera fiskinn dýrari og
draga úr fislmeyslu. Ilinsvegar verður
því ekki neitað, að Englendingar hafa
viðbúnað til að auka fiskafla sinn síð-
an ákvæðin gengu í gildi. Myndin hjer
að ofan er úr enskri fiskveiðahöfn.
Myndin hjer til hægri er frá Þræla-
ströndinni í Vestur-Afríku. Þar er
loftslag heitara en víðast annarstaðar
á hnettinum, svo að útlendingr haldast
þar fæstir við til lengdar.